Svona lítur hreinsunardagurinn minn út | Einföld rútína
Jóladagatal Lifðu Til Fulls
15th December 2021
Ólíkar tegundir af magnesíum
10th January 2022
Jóladagatal Lifðu Til Fulls
15th December 2021
Ólíkar tegundir af magnesíum
10th January 2022
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Svona lítur hreinsunardagurinn minn út

Hreinsunardagar eru frábærar til þess að fríska upp á líkamann, losna um bólgur og koma manni í jafnvægi eftir langt frí eða hvíld. Einnig ef þú finnur fyrir síþreytu eða uppþembu þá getur það verið sterkt merki um að það sé kominn tími á smá hreinsun!

Það er algengur misskilningur að við þurfum að fasta eða drekka eingöngu safa til þess að hreinsa líkamann. Hreinsunardagurinn hér neðar inniheldur bæði safa, jógúrt, hrökkkex, súpu og meira að segja súkkulaðikúlu.

Hreinsun er tími til að borða hreina fæðu og gefa meltingunni hvíld frá reyktum og sykruðum mat sem oft fylgir hátíðarhöldum. Góður svefn og að hlúa að líkamanum er eitthvað sem ég legg frekar áherslu á á hreinsunardegi.

Smá undirbúningur daginn áður en hreinsunardagur er tekinn er ávísun á að dagurinn gangur betur fyrir sig. Gefðu þér klukkustund eða svo til að versla inn og undirbúa. Einnig er hægt er að kaupa tilbúna safa eða búst drykki til að minnka fyrirhöfn.

Ég versla flest hráefnin í Nettó enda frábært úrval af hollustuvörum þar!

Hreinsunardagur

Hreinsunardagur

Morgunmatur – Grænn og hreinsandi safi

Það er engin betri leið (að mínu mati) til að byrja daginn heldur en á hressandi grænum safa!

Millimál – Súkkulaðikúlur

Millimálin eru val, ef maður finnur fyrir orkuleysi

Hádegi – Kókosjógúrt með jarðaberjum og banana

Það má útfæra jógúrtin á ýmsan hátt og nota með því hnetur, möndlur eða aðra ávexti en þá sem eru í uppskriftinni.

Millimál –  Hrökkbrauð og hummus

Einnig er hægt að nota gulrætur eða annað grænmeti í staðinn fyrir hrökkbrauð.

Kvöldmatur – Súpa eða Vegan lasagna

Hér mæli ég með að gera Vegan lasagna eða linsubaunasúpu með engifer sem þú finnur hér.

Lestu einnig:
5 ráð til þess að efla meltinguna á 48 klst!
Streita og Magnesíum
Besti tíminn til að borða fyrir brennslu og orku

Undirbúningur

Verslið inn daginn áður, leggið chia fræ í bleyti fyrir jógúrt, útbúið hrökkbrauð eða/og súkkulaðikúlur til að hafa við hendi, einnig má flýta enn frekar fyrir og útbúa safann og jógúrtið.

Byrjið daginn á grænum safa og borðið næst þegar hungrið kallar. Ef svengd er ekki mikil yfir daginn er óþarfi að borða allan matinn hér á matseðlinum. Ykkur er velkomið að skipta uppröðun uppskrifta eftir hentisemi, þetta hér að ofan er bara tillaga en má algjörlega hliðra til.

Allar uppskriftirnar eru einfaldar og þægilegar, vegan og lausar við hvítan sykur og gluten.

Láttu vita í spjallið að neðan ef þú ætlar að skella þér í einn góðan hreinsunardag og ekki gleyma að tagga mig á Instagram ef þú prófar uppskriftirnar! Mér finnst alltaf jafn gaman að heyra og sjá frá ykkur.

Deildu síðan yfir á Facebook og byrjum árið með því að fylla líkamann af orkuríkum mat!

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *