Færð þú oft sykurlöngun þegar það er streitutímabil hjá þér?
Um daginn sendi vinkona mín mér þessa spurningu á Facebook: “Júlía,Ég gekk eins og í leiðslu áðan beint inní Bónus og keypti Síríus súkkulaði. Núna er brjálað að gera og ég sæki alltof mikið í sykurinn. Hvað á ég að gera?”
Mér fannst þetta svo góð spurning og ég heyri hana ótrúlega oft. Því langaði mig að deila með þér hvernig við tækluðum sykurlöngun hennar og hvaða lykilvítamín er gott að passa upp á á streitutímabilum.
Þetta hefur hjálpað mér og vinkonu minni að átta okkur betur á hversu mikið magnesíum við þurfum að taka, en magnesíum er einmitt það lykilvítamín sem við þörfnumst á álagstímum.
–
–
Magnesíum
Magnesíum hjálpar við sendingu taugaboða og slökun vöðva. Við þurfum magnesíum til að sinna taugaboðum frá vöðvunum til heilans og einnig er magnesíum nauðsynlegt fyrir upptöku kalks. Magnesíum ásamt kalki hjálpar við vöðvaslökun sem aðstoðar m.a. við æðavíkkun og lækkun á blóðþrýstingi.
Það hefur meira að segja verið kallað hin náttúrulega “chill pill” en það getur dregið verulega úr streituhormónum. Þegar líkaminn er undir streituálagi, þá framleiðir hann streituhormónog dregur þetta úr magnesíumforða líkamans.
Því er það oft þannig að þegar við erum undir mikilli streitu krefst líkaminn meira magns af magnesíum en vanalega og því gott að taka það inn á streitutímabili.
Þegar líkamann skortir magnesíum er mjög algengt að við sækjum í sykur enda súkkulaði sérlega magnesíumrík fæða.
– Magnesíum jafnar blóðsykurinn og hjálpar líkamanum að vinna úr frútkósa (sem finnst í sykri). Svo ef kemur til þess að þú fáir þér fæðutegund sem hefur hátt hlutfall af frúktósa eða sykri, eru minni líkur á því að þú fáir “sykursjokk”, ef líkami þinn hefur nóg af magnesíumforða.
Það er einnig mikilvægt fyrir þá sem æfa mikið þar sem það getur hjálpað líkamanum að jafna sig eftir æfingar.
Einkenni þess að þú gætir gætir þurft að taka inn magnesíum eða þurft meira eru m.a., stirðir vöðvar,krampar í vöðvum, óróleiki, kvíði, streita, erfiðleiki með að afslöppun, orkuleysi og þreyta.
Við erum öll mismunandi og sumir þurfa meira en aðrir. Ef þú ert undir mikilli streitu, æfir mikið eða sækir gjarnan í sykur kallar líkaminn yfirleitt á meira magnesíum.
Ég og vinkona mín komumst að því að á streitutímabilum gæti hún þurft að bæta við örlítið meira af magnesíum en staðlaði dagskammturinn segir til um og tók hún þá í bæði töflu og vökva formi þar til hún fann betra jafnvægi. –
– Hvernig á að taka inn magnesíum
Hægt er að taka inn magnesíum í duft- eða töfluformi.Hlustaðu á líkamann og ráðfærðu þig við lækni ef þú íhugar að bæta við staðlaða dagskammtinn. –
Magnesíumríkar fæðutegundir:
dökkt kakó og kakónibbur
döðlur
gráfíkjur
kasjúhnetur
klettasalat
avókadó
sesamfræ og tahini (sesammauk)
bananar
alfalfa spírur
Ég vona að greinin hjálpi þér að tækla sykurlöngunina undir streitu!
Láttu vita í spjallinu að neðan ef þú tengir við skort á magnesíum?
–
Þar sem magnesíumskortur leiðir til sykurlöngunar, mæli ég með því að þú skoðir ókeypis fyrirlesturinn minn á netinu –“3 einföld skref sem halda sykurlöngun burt, brenna fitu náttúrulega og tvöfalda orkuna!” til að vinna enn beturá sykurlöngun!
3 skrefa formúlu mína til að losna við sykurlöngun…án þess að mega aldrei aftur borða nammi
Hvaða sætugjafa á að nota og hverja EKKI
Algengustu mistökin í breyttum lífsstíl sem geta leitt okkur í fitugildru
5 orkuríkar fæðutegundir sem slá á sykurlöngun nær samstundis mínum sem er skotheld vörn gegn sykurlöngun
Uppskrift af drykk sem er skotheldur gegn sykurlöngun –
– Ef þér líkaði greinin væri ég afar þakklát ef þú deildir henni yfir á Facebook, sérstaklega ef þú átt vinkonu sem glímir við sykurlöngun vegna streitu!
Heilsa og hamingja,
Heilsa og hamingja
Deildu
Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Lifðu til Fulls notar vafrakökur til að auðvelda notkun þína á vefnum.Samþykkja
Privacy & Cookies Policy
Privacy Overview
This website uses cookies to improve your experience while you navigate through the website. Out of these cookies, the cookies that are categorized as necessary are stored on your browser as they are as essential for the working of basic functionalities of the website. We also use third-party cookies that help us analyze and understand how you use this website. These cookies will be stored in your browser only with your consent. You also have the option to opt-out of these cookies. But opting out of some of these cookies may have an effect on your browsing experience.
Necessary cookies are absolutely essential for the website to function properly. This category only includes cookies that ensures basic functionalities and security features of the website. These cookies do not store any personal information.
1 Comment
Takk fyrir þetta. Flott hjáþér.