Allt um Chia fræ
breytingaskeiðið
6 fæður til að borða yfir breytingaskeiðið
16th May 2023
Holl grillsósa
11th July 2023
breytingaskeiðið
6 fæður til að borða yfir breytingaskeiðið
16th May 2023
Holl grillsósa
11th July 2023
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Allt um Chia fræ

Chia fræ urðu ofboðslega vinsæl fyrir nokkrum árum.

Og núna er eins og margir hafa bara fengið nóg af chia fræjunum enda fylltist allt af uppskriftum af chiagrautum. 

Engu að síður eru chia fræ ótrúlega næringarrík og góð fyrir líkamann og eru alltaf til heima hjá mér, bæði inn í búrinu og í bleyti í ísskápnum. 

Margir hafa ekki verið nægilega vel upplýstir um meðhöndlun á fræjunum svo þau nýtast sem best fyrir líkaman. Aðrir hafa prófað fræin en finnst þau bragðast illa og finna jafnvel fyrir meltingar óþægindum. 

Mig langar að taka saman allt sem þú þarft að vita þegar kemur að chia fræjum og hvernig best á að meðhölda þau og á sama tíma sameina fjölda allra chia uppskriftirnar sem við höfum birt á heimasíðunni okkar.

Þetta er klárlega grein sem þú vilt vista hjá þér til þess að geta komið að henni aftur og aftur.

Hvað eru Chia fræ?

Chia fræ eru lítil svört fræ sem koma upprunalega frá Suður-Ameríku en það var ekki fyrr en á 21.öldinni að þau náðu gríðalegum vinsældum og eru í dag talin algjör heilsufæða.

Helsti ávinningur chia

Helstu ávinningar chia fræja eru m.a; 

  • Bæta þrek og þol
  • Bæta meltinguna
  • Draga úr sykurlöngun
  • Próteinrík
  • Veita langvarandi 
  • Jákvæð áhrif á kolvetnaupptöku líkamans
  • Rík af andoxunarefnum, vítamínum og steinefnum
  • Ríkasta plöntuuppsprettan af omega-3 fitusýrum

Hvernig á að borða chia fyrir hámarks upptöku? 

Forðist að borða þau beint úr pokanum þar sem chia fræin bólgna upp þegar þau komast í snertingu við vatn og bólgna þau upp í meltingunni. Ekki er það ákjósanleg leið enda getur hún valdið óþægindum.

Ef þú borðar chia fræin beint úr pokanum geta þau einnig fests á milli tannanna sem er óþolandi. 

Bestu leiðir til að hámarka upptökuna er með því að:

  • Leggja fræin í bleyti í 10 mín eða yfir nóttu
  • Mala þau niður í blandara eða með kaffikvörn

Algengast er að leggja chia fræin í bleyti og þykir mér persónulega best að leyfa þeim að liggja í bleyti yfir nóttu. 

Ef þú gleymdir að leggja chia fræin í bleyti og ætlar að gera þér búst mæli ég með því að láta chia fræin í blandara, bæta við þeim vökva sem þú vilt nota og leyfa því að standa áður en þú bætir út í rest af hráefnum.

Hvernig er best að geyma chia fræ?

Best er að geyma chia fræin á köldum þurrum stað. Lesa má nánar um hvernig best er að geyma chia fræin í þessari grein hér.

Hvernig legg ég chia fræ í bleyti? 

Sjálf er ég alltaf með chia fræ í bleyti, í glerkrukku í ísskápnum. Við hjónin erum svo dugleg að nota þau í búst eða á grautinn.

Chia fræ lögð í bleyti

3 msk chiafræ

½ bolli vatn

Setjið 3 msk af chia fræjum í 1/2 bolla af vatni og hrærið í 10 mín eða látið liggja í bleyti yfir nótt í skál eða krukku. Ráðlagður dagskammtur af bleyttum chia fræjum er 3-4 matskeiðar.

Hvað geymast chia fræin lengi í bleyti?

Chia fræ geymast í allt að 5-7 daga í bleyti í ísskápnum. Einnig hef ég heyrt um að frysta chia grauta en hef þó ekki prófað það sjálf.

Hvað ef mér finnst chia fræin vond á bragðið eða fæ klígju af þeim?

Ef þér finnst chia fræin ekki góð myndi ég mæla með að mala þau niður og setja út í búst eða jógúrt, þú finnur lítið sem ekkert bragð af þeim þannig.

Hvað ef ég finn fyrir hægðatregðu þegar ég borða chia fræ?

Flestir sem borða chia fræ finna fyrir bættri meltingu og mýkri hægðum.

 Af og til heyri ég þó af því að sumir upplifa hægðatregðu eftir chia fræ en slíkt getur gerst ef fræin eru ekki lögð í bleyti eða möluð niður. Einnig er hægt að finna fyrir hægðatregðu ef maður innbyrðir meira en ráðlögðum dagskammt af chia. Ráðlagður skammtur er í kringum 2 msk eða c.a 15 gr. beint úr pokanum. Byrjaðu því á minna og bættu rólega meira við í mataræðið.

Hvenær á að að borða chia fræ?

Chia fræin er í raun hægt að borða hvenær sem er. Þar sem fæðan getur verið orkugefandi, þrátt fyrir að innihalda ekkert koffín, er hún frábær sem morgunmatur, út í búst eða sem millimál. Þú verður samt ekkert vakandi fram á nóttu ef þú færð þér jógúrt eða chia graut í kvöldmatinn.

Einnig hafa chia fræ verið lengi vel notuð af íþróttafólki fyrir æfingu. Fyrir þá sem vilja forðast þunga máltíð fyrir æfingu er þetta létt og orkugefandi.

Skiptir máli hvar maður kaupir chia fræin, lífræn eða venjuleg?

Mikilvægt er að kaupa chia fræ sem innihalda ekki skordýraeitur. Bestu líkurnar á því er með því að kaupa þau lífræn en einnig eru venjuleg chia fræ oft án eiturefna. 

Hvernig veit ég hvort chia fræin mín séu slæm?

Ef ekkert stendur í innihaldslýsingum er hægt að greina slæm chia fræ með ýmsum leiðum: 

  • Vond lykt
  • Fræin eru föst saman í klumpum
  • Blaut fræ í pokanum

Forðastu að borða slík chia fræ.

Hvernig er hægt að borða chia fræ?

Hægt er að gera chia graut eða bæta út í búst, drykki eða hafra- eða kínóagrautinn sem er algengast. Hér sjáið þið nokkrar góðar uppskriftir frá okkur sem innihalda chia fræ.

Uppskriftir

Chia fræ grautar

5 mín chia grautur með vanillu
3 einfaldir chia grautar fyrir þá sem eru að flýta sér
Chia búðingur með hnetusmjöri og sultu
Chia grautur með himneskum chai kókosrjóma

Jógúrt

Kókosjógúrt með banana og jarðaberjum
Klikkað gott muffin-toffee jógúrt
Kókosjógúrt með stökku múslí og kakómjólk

Búst og skálar

Himneskt chai búst
Súkkulaði– og myntubúst
Hindberjaskál
Frábær detox drykkur

Nú væri frábært að heyra frá þér, borðar þú chia fræ?

Hvað lærðir þú nýtt með því að lesa þessa grein?

Ef greinin var gagnleg, ekki halda henni fyrir þig eingöngu og deldu henni með vinum þínum með því að afrita slóðina og senda í póst, messenger eða birta á facebook hjá þér

Fyrir meiri innblástur vertu viss um að fylgja okkur á Facebook og  tagga okkur á Instagram þegar þú gerir þér næst chia-graut!

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *