5 innihaldsefni, 5 mín, fullkominn millibiti fyrir orku
hörfræ
Besta leiðin til að geyma chia og hemp
12th August 2014
vegan ís
5 hlutir sem ég er að elska akkurat núna
26th August 2014
hörfræ
Besta leiðin til að geyma chia og hemp
12th August 2014
vegan ís
5 hlutir sem ég er að elska akkurat núna
26th August 2014
Show all
Deildu á facebook
Facebook

5 innihaldsefni, 5 mín, fullkominn millibiti fyrir orku

chia grautur

Í dag langar mér að sýna þér einfalda og snögga uppskrift fyrir millimáli sem styður við orku, þyngdartap og minni löngun í sætindi.

Chia grautur er fullur af próteini úr plönturíkinu, omega 3, trefjum og góðum kolvetnum

Það er líka ótrúlega einfalt í undirbúning og þú getur notið hans án samviskubits.

Þessi grautur er því tilvalin fyrir Reykjavíkur maraþonið, sem orkumikið snarl, morgungraut, nesti í vinunna eða þegar þú vilt slökkva á sykurþörfinni!

Hér kemur uppskriftin góða, prófaðu hana svona eða leyfðu hugmyndafluginu að ráða og bætt við hlutum eins og kanil, sítrónubörki eða myntu til að breyta til.

 

Góður vanillu chia grautur

-Fyrir 4

 

Innihald:

1/2 bolli kasjúhnetur

1 og 3/4 bolli vatn

1/8 bolli hunang

1/2 msk vanilludropar

klípa salt

1/4 bolli chia fræ

 

Val: Stór klípa af kanil, 1/4 tsk sítrónubörkur eða 3 fersk myntulauf.

1. Settu kasjúhneturnar, vatnið, hunang, vanilludropana og saltið í blandara og blandaðu þangað til mjúkt og kekkjalaust, ca. 30 sek.

2. Settu allt í skál og bættu við chia fræjunum og hrærðu. Settu allt saman í glerílát og bíddu í 10 mín eða leyfðu að liggja í ísskápnum í um 2 klst. Ef þú átt ekki góðan blandara, leyfðu kasjúhnetunum að liggja í vatni í um 3 klst áður en þú setur þær í blandarann upp á áferðina.

Ef þú ert að drífa þig er hægt að sleppa því að leggja þær í bleyti en upptaka næringarefna þeirra bætist við það að leggja þær í bleyti.

 

 

Njóttu grautsins eins og hann er eða skreyttu hann með berjum að eigin vali.

Grauturinn er svolítið sætur og því ekkert síðra að setja grautinn í fallegar skálar og bera fram sem eftirrétt.

 

Borðar þú chia fræ, ef svo er hvernig? Og ef ekki hvernig list þér á þessa uppskrift?

Segðu okkur síðan hvernig smakkaðist

Alltaf gaman að heyra frá þér!

Deildu síðan með vínkonu sem er áhugasöm um góðar og hollar uppskriftir með því að líka hér við á facebook.

 

Heilsa og hamingja

Júlía heilsumarkþjálfi

 

 

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

2 Comments

  1. Bjarney S says:

    Takk fyrir þetta verð að prófa þetta

  2. Íris says:

    Hefur þú hitaeiningafjölda fyrir þessa uppskrift. Ég er í 5:2 og þarf að vita hvað ég borða margar slíkar.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *