10 vinsælustu greinar og uppskriftir ársins 2016!
karamellukaka
Karamellukaka fyrir jólin
22nd December 2016
sykurlöngun
7 einfaldir hlutir sem slá á sykurlöngun
17th January 2017
karamellukaka
Karamellukaka fyrir jólin
22nd December 2016
sykurlöngun
7 einfaldir hlutir sem slá á sykurlöngun
17th January 2017
Show all

10 vinsælustu greinar og uppskriftir ársins 2016!

uppskriftir ársins

Gleðilegt nýtt ár!

Veistu hvað gerist eftir rúmar 2 vikur?
14 daga sykurlaus áskorun hefst og þér er boðið að vera með, ókeypis!

Einu sinni til tvisvar á ári höldum við slíka áskorun þar sem þú færð uppskriftir, innkaupalista og stuðning til þess að hefja sykurminni lífstíl, ókeypis! Yfir 23.000 manns slógu til síðast og tala þáttakendur um hversu auðvelt það er að taka út sykurinn með þessari áskorun! Nú er þitt tækifæri að losna við síþreytuna og jólakílóin (ef þau létu finna fyrir sér í ár) í ókeypis áskorun!

Smelltu hér til að tryggja þér stað í áskoruninni!

Með nýju ári finnst mér gott að gera tvennt. Hreinsa líkamann og líta til baka.

Síðustu daga hef ég notað 5 daga hreinsun mína til að hressa kropp­inn við eft­ir hátíðarn­ar. Kröft­ug­ hreinsun get­ur einmitt hjálpað við að minnka maga­mál, bjúg og syk­ur­löng­un. Þá byrja ég daginn á melt­ing­ar­gerl­um í töflu­formi,  fæ mér heitt vatn með sítr­ónu og fylgi svo 5 daga matseðli sem skilur líkamann alltaf eftir endurnærðari og léttari! Ef þú hefur áhuga getur þú smellt hér og fengið 1 dags matseðil og nýárstilboð!

Svo langar mig að deila með þér vinsælustu greinunum og uppskriftunum frá 2016. Þetta er flott tækifæri til þess að skoða þær greinar sem þú gætir hafa misst af, eða rifja upp þær bestu!

10 vinsælustu greinar og uppskriftir ársins 2016!

1. Plöntumiðað mataræði og Crossfit. Viðtal við Önnu Huldu.

Anna Hulda deilir því hvernig hún háttar mataræði sínu, áköfum æfingum og annríki lífsins.

 IMG_8356-1024x827

2. Orkulaus seinnipartinn? Prófaðu þessa…

Fjórar saðsamar uppskriftir af chia graut sem einfalt er að útbúa og hafa meðferðis í nesti þegar þú þarft á orkuskoti að halda.

orkulaus seinnipartinn

3. Afmælistertan mín: Brownie með ostaköku- og jarðaberjakremi!

Þriggja laga kaka, án unnins sykurs, glúteins og mjólkurafurða! Gerist ekki betri eftirréttur!

 brownie m

4. Marsipan konfekt

Aðeins þrjú innihaldsefni og enginn eldunartími! Þessi uppskrift var ein þeirra sem birtist í kökublaði Gestgjafans og sló þar verulega í gegn.

DSC_8955-1-1024x643

5. Drekktu þennan til að slá á sykurþörfina

Græni sykur-detox drykkurinn minn er ríkur af magnesíum, próteini og góðri fitu sem heldur sykurpúkanum burt.

drekktu þennan til að slá á sykurþörfina

6. Sjö hlutir til að nota í staðinn fyrir sykur + spennandi tilkynning

Hefur þú velt því fyrir þér hvað þú gætir notað í stað sykurs? Hér er greinin sem hjálpar þér við það!

 sjö hlutir til að

7. Fimm sekúndna prófið sem segir þér hvort þú þurfir að sleppa sykri

Hér sérð þú áþreifanleg einkenni sykurs, svo þú getur metið hvort þú þurfir á honum að halda eða ekki! Vertu með í næstu sykurlausu áskoruninni,  núna í janúar 2017! Smelltu hér til að skrá þig, ókeypis!

 5-sekúnda-prófið-sem-segir-þér-hvort-þú-þurfir-að-sleppa-sykri-2

8. Þrír æðislegir sumarkokteilar

Sykurlaus margarita, Endurnærandi mojito og Jarðaberja- og myntu sangria…

sumarkokteila

9. Höldum holl og góð jól! Dásamleg sætkartöflumús með ristuðum pecanhnetum

Uppskrift sem hentar bæði í hátíðarmat sem og hversdagsleikann!

holl og góð jól

10. Súkkulaðikúlur á innan við 4 mínútum, þú verður að prófa!

Þessar hrákúlur gerðu allt vitlaust á samfélagsmiðlum, enda fljótlegir, einfaldar, án unnins sykurs og slá á sykur-og súkkulaðilöngun nær samstundis!

Chocolate-Chia-Balls-1


Ókeypis 14 daga sykurlaus áskorun fer að byrja!

Það er alveg að koma að áskoruninni sem beðið hefur verið eftir!  Smelltu hér til að skrá þig og vera með ókeypis.

Með skráningu í 14 daga áskorun færð þú uppskriftir, innkaupalista og stuðning til þess að hefja sykurminni lífsstíll! Við byrjum mánudaginn 30.janúar! Allar nánari upplýsingar hér.

Ef þér líkaði greinin, endilega deildu og smelltu like á facebook 🙂

Segðu svo endilega frá í spjallinu hér neðar;
Hver er uppáhalds greinin þín frá 2016? Hverju vilt þú heyra meira af  á árinu 2017?

Þar til næst hvet ég þig að stefna hátt og setja þig og heilsuna þína í forgang!

P.S.
Nýtt líf og Ný þú 4 mánaða lífsstílsþjálfun fer að byrja! Smelltu hér til að fara á forgangslistann!

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *