Þrír æðislegir sumarkokteilar
Besta leiðin að geyma og nota kryddjurtir
21st June 2016
Hvernig á að halda í hollustu á ferðalaginu?
5th July 2016
Besta leiðin að geyma og nota kryddjurtir
21st June 2016
Hvernig á að halda í hollustu á ferðalaginu?
5th July 2016
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Þrír æðislegir sumarkokteilar

breyttur lífstíll

Sumarið er sannarlega komið og tími fyrir holla kokteila! Hér koma þrír einfaldir og fljótlegir drykkir sem eru í alvörunni ótrúlega góðir fyrir þig.

Ég nota gjarnan sítrónur og límónur í kokteilinn en sítrónur eru fullar af C vítamíni og innihalda pectin trefja sem geta hjálpað við hreinsun.  Ég mæli með lífrænum sítrusávöxtum þar sem mesta eitrið er á berkinum en ef þú notar hefðbundnar má kreista safann úr þeim og henda berkinum. Ef þú ert að fara í gegnum 5 daga matarhreinsun mína eru drykkirnir hæfir samhliða. 

Drykkirnir eru sérlega hressandi og geta slegið á sykurþörfina því er tilvalið að útbúa þá á góðri kvöldstund og bera fram í grillboðinu. Þrátt fyrir vera óáfengir bera kokteilarnir skemmtilegt nafn sem lýsir bragðinu betur.

DSC_8670

Ónæmisbætandi margarita

3 appelsínur (notið kjötið úr 1 appelsínu samhliða)

1 sítróna

lúka af ferskri myntu

30 dropar Sólhattur

Skreytt með:  Chilliflögum, límónusneiðum, myntu

Setjið allt í safapressu, skreytið svo drykkinn með myntu og chilli flögum

Endurnærandi mojito

2 lúkur grænkál

1 gúrka

2 lífræn epli

1-2 cm lífræn engiferót

2 límónur

1 lúka fersk mynta

1/2 bolli léttkolsýrt sódavatn

Skreytt með: Myntublöðum og límónusneiðum

Setjið allt í safapressu, skreytið svo drykkinn með myntu og límónusneiðum.

DSC_8676

DSC_8693

Jarðaberja- og myntu sangria

Jarðaber

Gúrka

Mynta

Sítróna eða límóna

Léttkolsýrt vatn

Skerið niður jarðaber, gúrku og sítrónur. Setjið í glas og hellið yfir léttkolsýrðu vatni eða sódavatni.

Njótið í góðum félagsskap á sólríkum degi!

DSC_8588

Fyrir uppskriftir af sætu og hollu súkkulaðikúlunum á myndinni, sækið ókeypis sektarlausu sætindarafbókina hér.

Ef þú fylgist með mér á samfélagsmiðlum veistu að ég elska að stökkva út í sólina hvenær sem tækifæri gefst, jafnvel þó einungis sé um örfáar mínútur að ræða. Slíkar stundir, þó stuttar séu geta haft svo ótrúlega mikil áhrif á daginn manns.

Ég get ekki beðið eftir að deila með þér fleiri uppskriftum úr uppskriftabókinni minni sem kemur í verslanir um land allt í lok sumars! Fylgstu með, ég veit þú vilt ekki missa af henni. Uppskriftirnar eru einfaldar, fljótlegar og styðja við heilbrigðan ljóma, orku og fallegar línur.

Ef kokteilarnir voru þér að skapi, líkaðu og deildu þá endilega orkunni áfram á Facebook!

Láttu svo vita í spjallinu að neðan, hvern þeirra þú ætlar þú að prófa og hvernig smakkast!

Heilsa og hamingja

Júlía heilsumarkþjálfi

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *