7 hlutir til að nota í staðinn fyrir sykur og spennandi tilkynning
Drekktu þennan til að slá á sykurþörfina
9th February 2016
Nýtt líf og Ný þú myndbandsþjálfun er hér!
23rd February 2016
Drekktu þennan til að slá á sykurþörfina
9th February 2016
Nýtt líf og Ný þú myndbandsþjálfun er hér!
23rd February 2016
Show all
Deildu á facebook
Facebook

7 hlutir til að nota í staðinn fyrir sykur og spennandi tilkynning

sykurlaus áskorun

Margir hafa sett af stað heilsuvæna hefð á nýja árinu með því að sleppa eða neyta minna af sykri núna aðra vikuna í ókeypis áskorun – sykurlaus áskorun. Nú er önnur vikan hafin og er hægt að vera með og fá innkaupalista og uppskriftir frá heimasíðunni

Í mars hefst okkar 4 mánaða Nýtt líf og Ný þú þjálfun og í því tilefni hefst ókeypis myndbandsþjálfun, 18. feb þar sem ég gef 4 kennslumyndbönd og leiðarvísi sem kenna þér fyrstu skrefin að því að skapa lífsstíl sem gefur orku, þyngdartap og sá sem þú heldur þér við.

Farðu hér til að tryggja þér ókeypis myndbandsþjálfun! 

7 hlutir til að nota í staðinn fyrir sykur 

 

Stevia

Á meðan sykur hindrar skilaboð til heila sem gefa merki um að þú sért orðin södd, hjálpar stevia að viðhalda heilbrigðri matarlyst og halda blóðsykursstigi í líkamanum í jafnvægi. Rannsóknir sýna einnig að stevia getur einnig lækkað blóðsykurstig líkamans og unnið gegn sykursýki. Stevia er allt að 200-350 sinnum sætari en hvítur sykur og þarf því afar lítið magn hverju sinni, 2-4 dropar eða 1/2-1 tsk af steviu dufti getur oft verið feikinóg. Fyrir þá sem eru ekki hrifnir af steviu eða finna slæmt eftirbragð af því er upplagt að bæta döðlu eða öðrum sætuefnum hér á listanum við til að vega uppá móti bragðinu.

 

Döðlur

dates-health

Bættu við andoxunarefnum frá döðlum í næstu baksturstilraun. Með lágan blóðsykurstuðul og sætt bragð geta döðlur verið fullkomnar í bakstur á köku, brauði, hráköku, múslíbar eða bara einar og sér. Þær svala þannig sykurþörfinni á mun hollari hátt en hvíti sykurinn.

 

Kakó

cocoa-powder-lead

Gott getur verið að nota lífrænt kakó til þess að svala súkkulaðiþörfinni. Lífrænt kakó er ríkt af járni og magnesíum sem hjálpa þér gegn sykurpúkanum og auka orkuna. Bættu við kakó útá chia grautinn þinn eða búst.

 

Kanil

undefined_wide-4e532178c3fbb65e93fc64e8a24d1b450d045834-s900-c85

Kryddaðu uppá morgunkaffið, te-ið eða grautinn með því að setja smá kanil útá. Kanill gefur sætt bragð og styður við ónæmiskerfið án þess að bæta neinum kalóríum við.

 

Bananar

Banana1

Bananar eru náttúrulega sætir á bragðið, stútfullir af vítamínum og steinefnum, sérstaklega B – 6 og kalíum. Bananar innihalda einnig magnesíum sem getur unnið gegn sykurlöngun.  Bættu bönunum útí búst drykkinn, í hrákökuna eða notaðu sem sætu á bakstrinum.

 

Rúsínur

Með því að setja rúsínur í blandara getur þú búið til góða náttúrulega sætu, sem inniheldur trefjar og andoxunarefni. Þetta er upplagt í baksturinn og kemur skemmtilega á óvart.

 

Hunang

Hunang er andoxunaríkt og gefur góða næringu frá hreinni náttúruafurð. Notið þó sparlega þar sem hunang inniheldur frúktósa sem í of miklu magni getur leitt til hækkunar á blóðsykri og fitusöfnunar..  Njóttu þess að setja smá hunang útí te-ið þitt eða útá dressinguna.

 

 

Ég vona að þetta gefi þér einhverjar hugmyndir til að prófa áfram næst þegar sykurlöngunin kemur upp.

 

Hvað af þessum fæðutegundum notar þú? Hvernig vilt þú bæta þeim við?

Köfum dýpra í spjallinu að neðan

Aðeins 2 dagar í  ókeypis myndbandsþjálfun, tryggðu þér stað á meðan tækifæri gefst hér!

Með skráningu færð þú innsýn í efni úr Nýtt líf og Ný þú þjálfun sem hefst í mars og lærir m.a:

  • 5 skrefa leiðarvísi að varanlegu þyngdartapi, orku og betri heilsu
  • Hvernig megrunarkúrinn eykur fitusöfnun og hvað þú getur gert í staðinn
  • Af hverju við gefumst alltaf upp og hvernig þú getur breytt því
  • Hvernig þú getur aukið vellíðan í þínu skinni og dregið úr bólgum – strax í dag

 

Smelltu hér til að tryggja þér sæti

Heilsa og hamingja

Júlía heilsumarkþjálfi

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *