10 vinsælustu greinar og uppskriftir ársins 2017!
Orkurík berjabomba sem slær á sykurþörfina
20th February 2018
Besti tíminn til að borða fyrir brennslu og orku
15th March 2018
Orkurík berjabomba sem slær á sykurþörfina
20th February 2018
Besti tíminn til að borða fyrir brennslu og orku
15th March 2018
Show all

10 vinsælustu greinar og uppskriftir ársins 2017!

Hæhæ!

Síðustu tveir mánuðir hafa verið heldur betur sykurlausir og skemmtilegir hjá mér  enda janúar sá tími sem við flest tökum heilsuna í gegn.

Ég kynnti nýja námskeiðið “Frískari og orkumeiri á 30 dögum” sem hefur fengið gríðarlega góð viðbrögð og nú síðustu dagarnir til að skrá þig og lauk 14 daga sykurlausu áskoruninni með ykkur með stæl!

Nú þegar ég hef loks tíma til að setjast niður fannst mér tilvalið að líta aðeins til baka og deila með ykkur 10 vinsælustu greinunum og uppskriftum ársins 2017! Enda hef ég þetta sem árlegan lið og því ekki seinna vænna en að deila því núna.

2017 var ævintýralegt ár hjá mér, ég fór í heimsreisu sem setti svip á árið og kom heim full innblásturs í nýjum spennandi réttum.

En hér eru vinsælustu greinar og uppskriftir ársins 2017! Þetta er tilvalið tækifæri til að rifja upp girnilegar uppskriftir eða sjá eitthvað sem þú gætir hafa misst af.

1. Kókosjógúrt með jarðaberjum og banana

Það kemur lítið á óvart hvað er númer 1! Enda kókosjógúrtið ein vinsælasta uppskrift sem ég hef nokkru sinni gert. Ef þú hefur ekki prófað hana mæli ég svo sannarlega með því.
DSC_2651

2. 5 fæðutegundir sem losa þig við bólgur og bjúg

Einföld ráð sem losa þig við hvimleiðar bólgur og bjúg.

DSC_2886

3. Útþanin og orkulaus? Prófaðu þennan drykk..

Gríska gyðjan – uppskrift sem ég fékk innblástur af á ferðalögum mínum í Grikklandi í sumar.

DSCF1625-2-1024x785

4. Bestu vítamínin eftir fertugt

Vítamín og bætiefni einfölduð fyrir konur yfir fertugt. Einnig má sjá hér hinn hlutann.

DSC_0588 (1)

5. Truflaður vegan súkkulaðisjeik með fudge sósu

Þessi er í miklu uppáhaldi hjá mér! Algjörlega ómóstæðilegur súkkulaðisjeik sem enginn trúir að sé sykurlaus.

DSC_3308

6. Kanilhjúpaðar jólamöndlur

Möndlurnar sem ég borðaði algjörlega yfir mig af yfir jólin! En þær eru einnig tilvaldar sem snarl á laugardagskvöldum eða yfir páskana sem nálgast nú heldur betur!

_DSC3063

7. Morgunmatur fyrir útileguna

Öll elskum við hluti sem einfalda okkur lífið og matseldina. Í þessari grein gaf ég góð ráð til að gera fljótlegan morgunverð sem hægt er að grípa á ferð.

morgunverður

8. Chiagrautur með himneskum chai kókosrjóma

Algjör lúxusmorgunmatur sem er jafnframt einfaldur. Mæli með að prófa og gera jafnvel tvöfalda uppskrift til að eiga daginn eftir!

DSC_0341

9. Indversk vefja með Yesmine

Yesmine vinkona mín svaraði nokkrum spurningum og deildi bragðgóðri indverskri uppskrift.

Untitled 2

10. Hindberjaskálin

Hindberjaskálin er jafn bragðgóð og hún er falleg!

shutterstock_468680858 copy

Segðu mér í spjallið að neðan hvað var uppáhalds bloggið þitt frá liðnu ári?

Endilega deildu síðan greininni með  á samfélagsmiðlum til vina!

Vonandi veitti þetta þér innblástur fyrir vikuna!

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *