Bestu vítamínin eftir fertugt (síðari hluti)
Bestu vítamínin eftir fertugt
24th April 2017
Spínat og járn
9th May 2017
Bestu vítamínin eftir fertugt
24th April 2017
Spínat og járn
9th May 2017
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Bestu vítamínin eftir fertugt (síðari hluti)

Í síðustu viku sagði ég þér frá nauðsynlegum vítamínum eftir fertugt. Ýmsar breytingar eiga sér stað í líkanum með árunum og er því mikilvægt að fylgjast vel með því hvaða vítamín líkaminn þarf að hverju sinni. Hér er seinni hlutinn af vítamínum sem gott er að taka eftir fertugsaldurinn. Þau geta hjálpa til við að sporna við kvillum og sjúkdómum.

—-

 

Járn

Konur, sérstaklega eftir fertugsaldur, þurfa lífsnauðsynlega að fá nóg af járni. Járn styrkir blóðrásina og vinnur gegn þreytu og sleni.
Spínat og grænt laufgrænmeti er sérstaklega járnríkt sem og þurrkaðir ávextir eins og apríkósur, fíkjur og rúsínur. Það er hinsvegar mikilvægt að taka ekki járn sem bætiefni nema þörf sé á, þar sem járn er alls ekki gott í of miklu magni.

Omega 3

Omega 3 nauðsynlegt fyrir okkur öll og spilar lykilhlutverk í starfsemi heila og hjarta og getur einnig dregið úr bólgum, liðverkjum og húðvandamálum. Omega 3 er sérstaklega mikilvægt þar sem það hjálpar okkur að vinna gegn aldurstengdum kvillum eins og aukinni hættu á hjartasjúkdómum og hrörnun heilans. Það mýkir upp húðina og stuðlar að fitubrennslu (sérstaklega um kvið).
Feitur fiskur er frábær omega 3-rík fæða, sem og lýsi. Ef þú kaupir hylki, leitaðu þá eftir omega 3, fiskiolíu með DHA. Ég mæli með Omgea 3 frá Dropa.

B1 (Thiamine)

B1 er eitt af lykilvítamínum sem hefur áhrif á taugakerfi og minnið. Öll B-vítamín hjálpa líkamanum við upptöku næringarefna og að breyta kolvetnum í glúkósa sem virkar eiginlega eins og eldsneyti þar sem líkaminn notar það í að búa til orku. B-vítamín blanda með B1, B6 og B12 hjálpar líkamanum að brenna fitu og próteini. B1 finnst í dýrafurðum og frá plönturíkinu eru sólblómafræ sérlega rík af B1.

Lesa einnig:
Bestu vítamín eftir fertugt
6 fæður til að borða yfir breytingarskeiðið
Frábær detox drykkur

Þú ert kannski nú þegar að taka inn eitthvað af þessum bætiefnum, ef ekki mæli ég með því að íhuga slíkt sem og bæta við fæðutegundum í daglegu mataræðið.

Láttu vita í spjallið að neðan, hvað stóð uppúr hjá þér eftir greinina?

Ég er viss um að þú sitjir sjálf/ur á einhverjum hollráðum um hvað virkar fyrir þig og hvað hefur alls ekki virkað. Endilega deildu þeim í spjallið hér að neðan!

Mundu svo að fylgja okkur á Facebook og Instagram.  fleiri uppskriftir og ráð.

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

3 Comments

  1. kristjana s kristjansdottir says:

    ég tek alltaf B1 tíamín bara þegar ég fæ pirring í fæturnar , ætti ég að venja mig á að taka það inn á hverjum degI

  2. Margret Haraldsdóttir says:

    er ekki næjanlegt að taka sterkar B vítamín eru ekki flest Bvítamín í því.
    Kv.
    Margrét

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *