
Gylltur chia búðingur
3rd March 2026
Steinefni og streita
16th March 2026
Gylltur chia búðingur
3rd March 2026
Steinefni og streita
16th March 2026Um daginn deildi ég vinsælustu uppskriftum frá árinu 2025. Núna langar mig að deila með ykkur vinsælustu og jafnframt fróðlegustu bloggunum sem komu út á síðasta ári. Hér eru allskonar blogg og nokkur skemmtileg og fræðandi viðtöl um vörur sem ég nota í daglegu lífi og held mikið upp á.
–

–
Fræolíur: Hættan sem leynist í mataræðinu þínu
Hér fer ég yfir hvað fræolíur eru, af hverju þær eru umdeildar. Hvernig þær geta haft áhrif á heilsu líkamans. Ég deili einnig hvaða olíur er betra að velja í eldamennsku og hvernig þú getur tekið einföld skref til að gera betri val í daglegu mataræði. Smelltu hér til að vita meira um fræolíur.
–

–
Kraftur kollagens: Hrein næring úr íslenskri náttúru!
Í þessu bloggi fer ég yfir hvað kollagen er, af hverju framleiðsla líkamans minnkar með aldrinum og hvernig það getur haft áhrif á húð, liðheilsu og endurheimt. Ég deili einnig hvað gerir íslenskt marine kollagen sérstakt, hvernig líkaminn nýtir það og hvernig þú getur stutt líkama þinn með hreinni og sjálfbærri næringu.
–

–
Dropi: Íslenskt hágæða lýsi
Hér fjalla ég um fer ég yfir hvað gerir Dropa einstakt. Hvernig kaldvinnslan varðveitir náttúruleg vítamín og Omega-3 fitusýrur og af hverju gæði og rekjanleiki skipta máli. Ég deili einnig hvaða heilsuávinning margir upplifa af reglulegri inntöku og hvernig best er að taka lýsið inn í daglega rútínu.
–

–
iHerb heilsukarfan mín
Ég panta nokkrum sinnum á ári frá iHerb og safna þá saman vörum sem ég nota reglulega í daglegri rútínu. Í greininni deili ég því sem leynist yfirleitt í körfunni minni, af hverju þessar vörur eru í uppáhaldi hjá mér og hvernig ég nota þær í hversdagslífinu.
Ég setti líka afsláttarkóða í færsluna fyrir þá sem vilja prófa iHerb.
–
Lestu einnig
Vinsælustu bloggin 2023
Af hverju sumir hafa hægari brennslu en aðrir og hvað þú getur gert!
Vinsælustu bloggin 2024
–
–

–
Kraftur þarmaflórunnar: Leiðin að betri heilsu
Í þessu bloggi er viðtal við Birnu, stofnanda Jörth. Um hvernig hugmyndin að Abdom 1.0 varð til. Af hverju heilbrigð þarmaflóra skiptir svona miklu máli og hvernig hún nálgast þróun náttúrulegra og sjálfbærra heilsuvara. Við förum líka yfir hvernig varan er hönnuð til að styðja meltingu, ónæmi og almenna vellíðan.
–
–
–
Var einhver grein sem fór framhjá þér?
Var eitthvað nýtt sem þú lærðir? Endilega láttu vita í spjallið hér að neðan.
Áttu vin eða hinkonu sem gæti gagnast af þessari grein? Endilega deildu þessu með þeim yfir á Facebook og Instagram.

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!


