Steinefni og streita
Heimagert majónes
Vinsælustu bloggin árið 2025
9th March 2026
3 steinefnakokteilar sem ég elska
24th March 2026
Heimagert majónes
Vinsælustu bloggin árið 2025
9th March 2026
3 steinefnakokteilar sem ég elska
24th March 2026
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Steinefni og streita

Ég varð bara að fá að deila þessu með þér.

Þetta er eitthvað sem ég trúi að geti hjálpað þér að átta þig betur á sambandi streitu og orku. Það getur líka hjálpað þér að skilja betur hvernig þú getur stutt við orkustig líkamans, sérstaklega á tímum þegar álagið er mikið. 

Í kringum árið 2022 fór ég að finna fyrir óvenju mikilli þreytu og á sama tíma miklum þorsta. 

Það var ekkert öðruvísi í rútínu minni, ég var að borða ótrúlega hreint, fá góðan svefn, hreyfa mig reglulega og hvíla þess á milli.

Þess vegna fann ég að ég þurfti að kafa dýpra og komast að því hvað var að valda þessu ójafnvægi í líkamanum. Því meira sem ég las mig til, því meira fór ég að hallast að því að steinefnin gætu verið að spila stórt hlutverk. Ég ákvað að láta mæla ástand steinefna í líkamanum með hársýni (sjá nánar hér).

Niðurstöðurnar sem ég fékk voru sjokkerandi, ég reyndist vera lág í öllum helstu steinefnum.

Þetta skýrði í raun mörg af þeim einkennum sem ég hafði verið að upplifa.


En hvernig fékk ég steinefnaskort í fyrsta lagi?

Í mínu tilfelli var orsökin streita.

En málið er að nýrnahetturnar (litlir kirtlar sem sitja ofan á nýrunum) framleiða hormón sem stýra ýmsum mikilvægum verkferlum í líkamanum. Þar má nefna brennslu, blóðsykur, ónæmiskerfið og ekki síst úrvinnslu streitu.

Þegar streita varir lengi geta nýrnahetturnar þreyst. Það getur birst í einkennum eins og:

  • Sífelldu orkuleysi
  • Miklum þorsta
  • Löngun í salt
  • Lágum blóðþrýstingi
  • Vanvirkum skjaldkirtli
  • Minnkandi kynhvöt
  • Veikara ónæmiskerfi

Mörg okkar tengja streitu fyrst og fremst við vinnuálag. En streita getur einnig líka tengst líkamlegu álagi eins og ofþjálfun, svefnleysi, gömlum áföllum eða skorti á næringu í kringum æfingar.

Hún getur líka tengst of mikilli neyslu á örvandi efnum eins og áfengi, koffíni, nikótíni eða sterum. Einnig getur líkamlegt álag komið eftir barnsburð eða veikindi, til dæmis flensu eða lungabólgu.


Lesa einnig:
Bestu bætiefnin eftir fertugt (uppfært)
Mikilvægi D-vítamíns fyrir andlega og líkamlega heilsu
5 ráð fyrir konur sem vilja fasta

Hvernig getur streitt leitt til steinefnaskorts?

Þegar við erum undir langvarandi streitu eða miklu álagi fer líkaminn í eins konar neyðarham. Hann einbeitir sér að því að halda okkur gangandi, ekki endilega að byggja okkur upp.

Í þessu ástandi:

  • Eyðir líkaminn meira af ákveðnum steinefnum, sérstaklega magnesíum, natríum og kalíum.
  • Við losum steinefni hraðar út, meðal annars með þvagi og svita.
  • Meltingin veikist oft sem þýðir að við nýtum steinefni úr fæðu verr.
  • Blóðsykur sveiflast meira, sem eykur enn frekar þörf líkamans fyrir steinefni.


Einkenni steinefnaskorts koma oft ekki í ljós fyrr en líkaminn hefur verið undir álagi í þó nokkurn tíma. Líkaminn er klár og notar ákveðnar forbirgðir fyrst um sinn. En þegar einkennin fara að koma fram getur bataferlið tekið nokkrar vikur eða jafnvel mánuði. Þess vegna er forvörnin alltaf best.

Hvernig vann ég upp steinefnaskortinn hjá mér?

Til að vinna upp steinefnaskortinn bætti ég fyrst og fremst við íslensku sjávarsalti allt að þrisvar á dag eða oftar í bæði mat og drykk. Ég bætti þá salti yfir matinn minn og út í vatnið mitt.  Af og til greip ég einnig í steinefni í duftformi sem hægt er að blanda út í vatn. Ég passaði mig á að velja tegund sem var ekki með viðbættum sykri eða óþarfa innihaldsefnum.

Mér fannst vatn með salti ekkert sérstaklega gott og vissi að endalaus notkun á dufti væri ekki endilega það besta lausnin. Þess vegna fór ég að gera mér steinefnakokteila, hagkvæm og bragðgóð leið til að bæta við steinefnum. Ég mun deila þeim uppskriftum á næstunnu.

Það reyndi vel á þolinmæðina að vinna ekki mun strax. En eftir langvarandi streitu og álag þurfti líkaminn minn einfaldlega tíma til að vinna upp skortinn. Það tók mig marga mánuði áður en ég fór að finna raunverulegan mun á orkustigi og líðan.

Ef það var eitthvað sem þessi reynsla kenndi mér þá er það að vanmeta ekki streituna, hún getur verið lúmsk og ekki alltaf bara vinnuálag sem þarf að huga að. Ég deili þessu með þér í þeirri von um að hjálpa þér á þinni vegferð að betri heilsu og minna þig á að passa upp á steituna og steinefnin.



Láttu vita í spjallið að neðan

Hefur þú nýlega farið í gegnum tímabil streitu og álags? Grunnar þig um að þú glímir við steinefnaskort?

Segðu mér frá því hér að neðan og köfum dýpra.

Þekkir þú einhvern sem gæti gagnast af þessari grein, sendu greinina yfir til að hjálpa fleirum.

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *