
Steinefni og streita
16th March 2026
7 einföld hreinsunarráð
7th April 2026
Steinefni og streita
16th March 2026
7 einföld hreinsunarráð
7th April 2026Hefur þú heyrt um steinefna kokteila eða á ensku „adrenal cocktails“?
Ég byrjaði að gera mér svona kokteila fyrir nokkru síðan og ég verð bara að segja að ég fann svo ótrúlega mikin mun á orku og almennri vellíðan.
Þetta eru einfaldir, áfengislausir drykkir sem taka innan við 30 sekúndur að útbúa, en geta haft ótrúelga jákvæð áhrif á líkamann sérstaklega þegar hann er undir álagi.
Nýrnahettur eru litlir kirtlar sem sitja ofan á nýrunum og gegna lykilhlutverki þegar kemur að orku, streituviðbrögðum og jafnvægi í líkamum. Þegar við erum undir miklu álagi geta þær orðið yfirkeyrðar og það hefur áhrif á hvernig okkur líður yfir daginn.
Svona kokteilar hafa orðið mikið vinsælir erlendis og það er ekki að ástæðulausu. Fáir hafa þó heyrt af þeim hérlendis, svo nú er tími til að breyta því.

–
Kokteilarnir sem bjarga deginum
Eins og ég deildi með í nýlegri grein, þá komu tímabil hjá mér þar sem steinefnaskortur vegna streitu hafði mikil áhrif á orkuna. Þessir kokteilar urðu því lítil dagleg venja sem hjálpuði mér að byggja mig upp aftur.
Þeir innihalda þrjú lykil næringarefni sem styðja við líkamann: C-vítamín, steinefnasölt og kalíum. Þú færð C-vítamín frá appelsínum, límónu eða lime og það hjálpar líkamanum að nýta og taka upp steinefni betur. Steinefnin færðu helst frá hágæða salti og kalíum frá ,,cream of tartar”. Nánar í athugasemdir uppskrifta.
Það er hægt að njóta kokteilana án cream of tartar og finna mun á orkunni. Ég gerði það sjálf í góðan tíma. Fyrir fullan ávinning mæli ég þó með að hafa cream of tartar með.
–
Lesa einnig:
Bestu bætiefnin eftir fertugt (uppfært)
Mikilvægi D-vítamíns fyrir andlega og líkamlega heilsu
5 ráð fyrir konur sem vilja fasta
–
Mikilvægt að hafa í huga
Sumir finna breytingu á orkunni strax á fyrsta degi, en hjá öðrum getur það tekið tíma. Ef líkaminn er búinn að vera lengi undir álagi getur það tekiðdaga, vikur og jafnvel mánuði að byggja upp birgðir aftur. Þess vegna er gott að gera þetta að daglegri venju, jafnvel 2-3 á dag til að byrja með.
–

Steinefnakokteilar
1. Þessi nýkreisti
½ bolli appelsínusafi
1 tsk cream of tartar
Væn klípa af bleiku himalaya salti eða sjávarsalt
–
2. Þessi með kókosvatni
330 ml af kókosvatni
¼ tsk af bleiku himalaya salti eða sjávarsalt
½ límóna
1 msk af magnesíum Slökun duft
klakar
–
3. Þessi með meiru
1/2 bolli appelsínusafi
2 tsk ósæt kókosmjólk
1 skúppa kollagen-duft
1/4 tsk cream of tartar
¼ tsk bleiku himalaya salti eða sjávarsalt
–
Settu hráefnin í glas og hrærðu vel. Drekkið strax. Einnig má setja allt í blandara, sérstaklega ef þú ert að gera kokteilinn sem inniheldur kollagen og kókosmjólk.

Athugasemdir:
Cream of tartar fæst í hagkaup og er yfirleitt staðsett í bökunarhillunn. Sjá mynd hér sem dæmi svo þú vitir hverju þú leitar eftir.
Ég mæli með að nota Íslenskt sjávarsalt eða Himalaya salt, bleika saltið. Best er að nota fínmalað salt þar sem það leysist betur upp í vatni.
Drekkur þú steinefni reglulega? Heldur þú að svona kokteilar gætu hjálpað þér?–
Mig langar svo að heyra frá þér. Láttu vita í spjallinu hér að neðan ef þú prófar og segðu mér frá þinni reynslu. Ef þér fannst greinin gagnleg, deildu henni með vinkonum, þannig hjálpar þú okkur að hjálpa fleirum.
Ekki gleyma að fylgja okkur á Facebook og Instagram fyrir fleiri ráð og nýjar uppskriftir sem styðja heilsuna og orkuna.
—

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!


