7 einföld hreinsunarráð
3 steinefnakokteilar sem ég elska
24th March 2026
Matcha sumarskál
20th April 2026
3 steinefnakokteilar sem ég elska
24th March 2026
Matcha sumarskál
20th April 2026
Show all
Deildu á facebook
Facebook

7 einföld hreinsunarráð

Eftir páskana er alveg eðlilegt að líkaminn sé aðeins þyngri, orkuminni eða úr jafnvægi eftir breytingar á mataræði og rútínu.

Þá getur verið gott að fara aftur í einfaldar og nærandi venjur sem styðja líkamann, hjálpa meltingunni og koma orkuni jafnt og þétt aftur í gang.

Hér eru mín sjö uppáhalds hreinsunarráð til að hjálpa líkamanum að komast aftur í jafnvægi.


Auðveld hreinsunarráð

1. Drekktu vel af vatni 


Reyndu að drekka um 2 lítra af vatni á dag eða meira ef líkaminn kallar á það. Oft upplifum við hungur þegar líkaminn er í raun að biðja um vökva.

Byrjaðu daginn á að drekka að minnsta kosti 1/2 lítra af vatni. Þú getur bætt við sítrónu eða örlitlu af cayenne til að örva meltinguna og koma kerfinu af stað.

 —

2. Byrjaðu daginn með grænum búst

Grænn búst gefur líkamanum næringu strax á morgnana og hjálpar honum að komast aftur í jafnvægi.

Ef þú ert með hægan skjaldkirtil getur verið gott að takmarka hrátt spínat og velja aðrar grænar jurtir í staðinn. Ég mæli með þessari uppskrift hér.

 — —

3. Öndun og þakklæti 

Taktu nokkrar mínútur á morgnana til að anda djúpt og rólega. Það hjálpar til við að súrefnisvæða líkamann, róa taugakerfið og hreinsa hugann.

Að æfa þakklæti yfir daginn, jafnvel bara fyrir litla hluti getur haft ótrúlega jákvæð áhrif á líðanina.


4. Heitt vatn með sítrónu

Að byrja daginn á heitu vatni með kreistri sítrónu er einföld og áhrifarík venja. Hún styður við meltinguna og hjálpar líkamanum að „vakna“.

Ef þú vilt breyta til geturðu skipt sítrónu út fyrir límónu.

— 

5. Hreyfðu þig daglega

Hreyfing þarf ekki að vera flókin til að hafa áhrif. Göngutúr, létt æfing eða líkamsrækt getur gert kraftaverk fyrir orkuna og líðanina.



Lesa einnig:
Kvöldrútína fyrir betri svef
Candida og sykur
10 mín morgunrútína sem gefur þér orku og léttleika

6. Taktu D-vítamín og Omega

D-vítamín er eitt af mikilvægustu vítamínunum sem að líkaminn þarfnast til að halda góðri heilsu. Ásamt omega 3 sem er nauðsynlegt fyrir hjarta – og æðakerfið og hjálpar til að vinna gegn bólgum í líkamanum.

7. Nærðu þig með ofurfæði

Ofurfæði getur verið einföld leið til að styðja líkamann enn frekar.

Maca er til dæmis þekkt fyrir að styðja við orku, hormónajafnvægi og almenna vellíðan. Hún hefur reynst sérstaklega vel fyrir konur, meðal annars á breytingaskeiðinu.

Byrjaðu rólega t.d. með 1/4 teskeið í búst og sjáðu hvernig líkaminn bregst við. Þú getur lesið meira til um maca hér


Þreytt á öfgum og orkuleysi?

fyrirlestur

Ég er að halda ókeypis fyrirlestur í beinni, þar sem ég deili 5 einföldum og sannreyndum skrefum sem hjálpuðu mér að: Losna við orkuleysi og bjúg, léttast á náttúrulegan hátt og finna jafnvægi með mataræðið. 

Ef þú þreytt á endalausum öfgum og skyndilausnum, þá er þessi fyrirlestur fyrir þig. 

Tvær dagsetningar í boði og þeir sem mæta eiga möguleika á að fá veglegan vinning frá Feel Iceland. 

Engin upptaka verður send, tryggðu þér þitt pláss í dag -> Smelltu hér til að skrá þig! 

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *