
Bláberjapæ með hnetubotni
14th August 2025
Dropi: Íslenskt hágæða lýsi
16th September 2025
Bláberjapæ með hnetubotni
14th August 2025
Dropi: Íslenskt hágæða lýsi
16th September 2025Sumarið er yndislegt, en það getur líka tekið aðeins á líkamann. Rútínuleysi, óreglulegar máltíðir og slitróttur svefn getur skilið eftir bjúg, orkuleysi og þyngslatilfinningu.
Ef þú kannast við þetta þá er hér einföld og áhrifarík 10 mínútna morgunrútína sem hreinsar líkamann, gefur þér meiri orku og kemur þér í gang fyrir daginn.
–

–
Drekktu stórt glas af vatni
Eftir svefninn er líkaminn þurrkaður. Að byrja daginn á stóru vatnsglasi er einfaldasta leiðin til að fylla á vökvabirgðirnar, koma meltingunni í gang og gefa frumunum þínum ferskan kraft. Vatnið hjálpar einnig til við að losa úrgangsefni sem safnast hafa upp yfir nóttina.
Mörg okkar vanrækja þessa fyrstu mínútu dagsins, en þegar þú venst því að hella upp á glas áður en þú gerir nokkuð annað, finnurðu fljótt mun á orku og einbeitingu.
–
Lesa einnig:
Kvöldrútína fyrir betri svef
Candida og sykur
Mikilvægi D-vítamíns fyrir andlega og líkamlega heilsu
–
Volgt vatn með sítrónu
Sítrónuvatn hefur lengi verið vinsælt sem fyrsti drykkur dagsins og það er ekki að ástæðulausu. Sítrónan örvar meltinguna, styður lifrina og hjálpar líkamanum að losa sig við eiturefni. Margir finna einnig að þetta bætir húðina og gefur ferska byrjun á deginum.
Lítið ráð: kreistu hálfa sítrónu í volgt vatn og drekktu hægt. Ef þú vilt geturðu bætt smá klípu af engifer eða túrmerik saman við fyrir auka hreinsandi áhrif.
–
Grænn djús eða þeytingur
Að næra líkamann strax á morgnana með grænu grænmeti, trefjum og vítamínum er frábær leið til að koma jafnvægi á blóðsykurinn og fá orku sem endist. Grænn djús eða þeytingur getur innihaldið spínat, sellerí, agúrku, epli eða sítrónu, allt létt og nærandi hráefni sem gefa líkamanum það sem hann þarfnast eftir nóttina.
Þetta er líka einfalt tækifæri til að koma meira grænmeti inn í daginn, sérstaklega ef hann verður annasamur.
–
Komdu sogæðakerfinu í gang
Sogæðakerfið er eins konar hreinsistöð líkamans, það sér um að flytja burt úrgang og bjúg, en ólíkt blóðrásinni hefur það ekki sína eigin „pumpu“. Það þarf hreyfingu til að virkjast.
Með því að taka nokkur létt hopp eða fara í stuttan, rösklegan göngutúr seturðu þetta kerfi í gang og hjálpar líkamanum að losa bjúg. Þetta getur líka aukið orkuflæði og gert þig mun léttari í líkamanum.
Ráð: Ef þú átt ekki trampólín geturðu staðið á mjúkum fleti, t.d. baðherbergismottu eða teppi, og tekið 20–30 létt hopp til að vernda hnén.
–
Af hverju þetta virkar?
Þegar þú sameinar vökva, næringu og hreyfingu strax að morgni ertu í raun að ýta á “reset-takkann” í líkamanum. Vatnið vökvar og hreinsar, sítrónan örvar meltinguna, græni djúsinn gefur frumunum orku og léttu hoppin eða gangan setja sogæðakerfið í gang.
Þetta tekur aðeins 10 mínútur en getur breytt heilli líðan. Þú finnur fyrir meiri orku, betra jafnvægi og léttleika sem fylgir þér inn í daginn.
–
–

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!



