Candida og sykur
Orkugefandi hnetusmjörsþeytingur sem vinnur á sykurþörf
2nd April 2024
Uppáhalds vörurnar mínar
15th April 2024
Orkugefandi hnetusmjörsþeytingur sem vinnur á sykurþörf
2nd April 2024
Uppáhalds vörurnar mínar
15th April 2024
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Candida og sykur

Glímir þú við uppþembu og magaverki? Upplifir þú síþreytu eða ofnæmi?

Hefur þú óþol fyrir ýmsum matvælum og færð auðveldlega meltingartruflanir?
…ef svo er, þá gæti verið að þú sért að glíma við ofvöxt á Candida sveppi!

Hvað er Candida?

Candida albicans er gersveppur sem finnst í líkamanum og má finna hann víða, m.a. í leggöngum, húð, munni og meltingarfærum. Líkaminn er fullfær um að halda sveppnum í skefjum en í honum leynast ýmsar bakteríur sem vinna gegn honum og halda jafnvægi í líkamanum. 

Í sumum tilvikum er hins vegar talað um ofvöxt á Candida og á það við þegar sveppurinn er orðinn það dreifður að líkaminn nær ekki að halda honum í sefjum. Ýmsar ástæður eru fyrir slíkum ofvöxt, m.a. sýklalyf og ónæmisbælandi lyf, en ein helsta ástæðan er þó oft slæmt mataræði og ofneysla sykurs.

Lesa einnig:

7 einfaldir hlutir sem slá á sykurlöngun
Hollari valkostir fyrir óholla ánægju
Einkenni kulnunar og hvernig á að vinna úr henni

Konur og Candida

Margar konur sem ég þekki hafa glímt við Candida á lífsleiðinni en það er töluvert algeng vandamál kvenna.

Helsta einkenni Candida hjá konum eru:

  • Sýking í leggöngum en það lýsir sér sem kláða, sviða eða vondri lykt.
  • Sýking í munni t.d. hvítir blettir á tungu
  • Tíðar og krónískar þvagfærasýkingar
  • Meltingarvandamál á borð við krampar, niðurgang, blóð í hægðum eða sársauki í kvið.
  • Liðaverkir en Candida getur farið út í blóðstreymið og til liðamóta

Ef einstaklingur glímir lengi við ofvöxt Candida og vinnur ekki á honum geta afleiðingar verið orsök að ýmsum öðrum sjúkdómum. (Sjá nánar hér) Hægt er að fara til læknis til að greina Candida.

Hver er lausnin?

Sem betur fer eru til allnokkrar leiðir til þess að vinna gegn ofvexti Candida og m.a með breyttu mataræði og hollum lífsstíl sem hefur reynst mörgum vel. Mikilvægast er þá að forðast sykur í öllu formi m.a. hvítan sykur, ávexti, djús, hunang og ýmsar mjólkurvörur. Einnig er áfengi og kaffi ofarlega á lista yfir bannaðar fæðutegundir ásamt matvælum sem innihalda ger og myglu.

Ýmsar fæðutegundir vinna gegn sveppnum sem gott er að bæta við í mataræðið. Þær fæðutegundir eru m.a hvítlaukur, eplaedik, brokkolí, engifer, olífuolía, negull, kanill, villtur lax og sítróna  (allar sem við notumst við m.a í Frískari og orkumeiri á 30 dögum námskeiðinu).

Ýmsar jurtir og mörg fæðubótarefni sem vinna gegn sveppnum sem gott er að taka m.a. Bio Kult (fæst í Nettó), Acidophilus t.d frá Corebiotics eru sterkir og góðir (fæst hjá Heilsubarnum) og Oregano olía til inntöku (t.d frá Jurtaapótekinu). Fleiri bætiefni eins og Liposomal PC er einnig talin góð í að halda candida í skefjum.

Ath að allar ráðleggingar hér á vefsíðu Lifðu til fulls eru birtar sem fræðsluefni og mælum við með því að leita læknis áður en breytingar á mataræði eða inntaka fæðubótarefna er hafin.

Þó að engin töfralausn sé til staðar til þess að vinna gegn Candida sveppnum er lífstílsbreyting og breytt mataræði talin sterkasta vopnið ásamt því að styrkja og efla ónæmiskerfið og hefur hjálpað mörgum að bata. Ætti að okkar mati breytt mataræði ávallt að koma fremur eða/og samhliða bætiefnum.

Breytt mataræði sterkasta vopnið

Ekki örvænta ef þér þykir lífstílsbreyting með breyttu mataræði eða að taka út sykur yfirþyrmandi enda hef ég sett saman dúndur net-fyrirlestur hér þar sem þú færð ráð til þess að vinna á Candida sveppinum með hreinni fæðu, taka við lífstílsbreytingu og gera sykurleysið bragðgott, einfalt og raunhæft.

hollt mataræði

Láttu vita í spjallinu að neðan:

Tengir þú við einkenni Candida?  

Hefur þú glímt við Candida og náð að vinna úr því? Ef svo er, hvað hjálpaði þér að ná bata?

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *