Einkenni kulnunar og hvernig á að vinna úr henni
Uppáhalds heilsuvörur mínar!
16th February 2021
Sjokkerandi sannleikur um megrunarkúrinn
24th March 2021
Uppáhalds heilsuvörur mínar!
16th February 2021
Sjokkerandi sannleikur um megrunarkúrinn
24th March 2021
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Einkenni kulnunar og hvernig á að vinna úr henni

streita

Líður þér eins og aldrei gefist tími til að hugsa um þig og að þú hangir aftast í forgangsröðinni?

Hangir heilsan hjá þér á bláþræði?

Glímir þú við streitu eða síþreytu?

…Ef svo er, þá eru góðar líkur á því að þú sért að keyra þig út eða að heilsan sé nú þegar komin í þrot. Þetta kallast kulnun eða “burnout” á ensku.

Hvað er kulnun?

Langt tímabil sem einkennist af yfirvinnu, streitu og svefnleysi, þar sem viðkomandi hugar að öllu öðru en heilsunni, er m.a. það sem veldur burnout eða útkeyrslu.

Að keyra okkur út getur orsakað ýmsa heilsubresti og getur tekið langan tíma að vinna upp góða heilsu á ný. Margir enda á að þurfa að taka leyfi frá vinnu og getur það hreinlega endað í algjörri tilfinningalegri uppgjöf.

Kulnun felur í sér algjöra örmögnun, bugun í starfi og þeirri tilfinningu að vera ekki að standa sig í vinnunni eða öðru sem viðkomandi hefur fyrir stafni. Margir fara að finna fyrir tilfinningalegum dofa gagnvart lífinu og miklum erfiðleikum við að klára það sem þarf að klára. Hægt er að lesa meira hér.

Konur og kulnun

Við konur erum í sérstökum áhættuhópi, en rannsóknir hafa sýnt að konur eru mun næmari fyrir áhrifum streitu. Flestir sem eru á leið með að keyra sig út átta sig þó ekki á því fyrr en eftir á, þegar of seint er að koma í veg fyrir afleiðingarnar.

Vinnustaðir þar sem konur eru stærstur hluti starfsmanna búa yfir hæstu tíðni kulnunar. Auk þess er algengara að konur taki á sig meiri ábyrgð en karlmenn heima fyrir, varðandi húsverk, uppeldi barna og annað sem verður til þess að streita eykst enn frekar. 

Hvernig veistu hvort þú stefnir í burnout

Eftirfarandi eru einkenni þess að þú sért að keyra þig út…

  • síþreyta
  • lægri kynhvöt
  • slæm melting
  • þreyta
  • vöðvabólga
  • höfuðverkur
  • hárlos
  • óreglulegar blæðingar
  • svefnleysi
  • andlegt ójafnvægi
  • þunglyndi
  • þyngdaraukning
  • bakverkir
  • of hár blóðþrýstingur
  • liðverkir
  • gleymska
  • pirringur
  • áhugaleysi
  • tilfinningaleg örmögnunviðkvæmni fyrir hávaða og áreiti
  • öndunarerfiðleikar
  • hægari brennsla

Kulnun er ekki eitthvað sem ætti að taka léttilega og getur það haft alvarlega fylgikvilla eins og breytingar á virkni skjaldkirtilsins og alvarlegar hjartsláttartruflanir svo eitthvað sé nefnt.

Hvernig á að vinna sig upp úr kulnun?

Það fyrsta sem þarf að breytast er forgangsröðun. Kulnun eða burnout verður til þegar forgangsröðun er brengluð. Þú hefur verið aftast á forgangslistanum og það mun ekkert gerast fyrr en þú ákveður að setja þína heilsu í forgang.

En oft er sagt að ekki sé hægt að gefa af tómum brunni og slíkt á vel við þegar talað er um kulnun. Til þess að gefa af til annarra verðum við fyrst að gefa til okkar.

Þetta er sannarlega auðveldara sagt en gert og ýmsar leiðir til að byrja þessa endurröðun á forgangi m.a. með eftirfarandi atriðum:

  • Skrifaðu niður allar ástæðurnar fyrir því að þessi nýja forgangsröðum muni hjálpa þínum nánustu
  • Leitaðu þér aðstoðar, játaðu fyrir þér að þitt mynstur er að setja aðra í forgang á undan þér, þetta er veiki punkturinn þinn. Fáðu aðstoð við að koma þér á gott skrið og breyta þessu mynstri. Að lenda í burnout ætti ekki að vera feimnismál heldur fylgifiskur lífsins og merki um það að okkur er annt um að standa okkur í vinnu og hugsa um okkar nánustu. Stundum vinnusemin og metnaður okkar að standa okkur vel tekið yfir og haft áhrif á heilsuna, það að játa okkur sigraðar er fyrsta skrefið.
  • Skoðaðu dagatalið þitt og allt sem þú ert búin að skuldbinda þig við, finndu út hverju þú getur sleppt eða frestað í ákveðinn tíma og hvernig þú getur dreift ábyrgðinni á ákveðnum hlutum yfir á aðra. Oft getur verið gagnlegt að skoða dagatal okkar aftur í tímann til að finna þá þætti sem sem virkilega valda okkur streitu og aðra þætti sem draga úr streitu.

Góður árangur eftir úrvinnslu kulnunar

Lausnin sem hefur vænlegasta árangurinn til að vinna úr burnout er að skapa þér nýtt jafnvægi á milli þess að sinna heilsunni og daglegum skyldum. Þá er mikilvægt að vinna ekki einungis í mataræðinu heldur einnig hugarfari, streitulosun og hreyfingum enda helst þetta allt í heldur. 

Þetta er akkúrat það sem við gerum með okkar flaggskipsþjálfun „Nýtt líf og Ný þú“, 4 mánaða þjálfun sem hefst nú í tíunda sinn, þar sem ég leiði þig skref fyrir skref að lífsstíl sem gefur þér vellíðan, sátt í eigin skinni og jafnvægi! Sú þjálfun er sniðin að konum sem hafa keyrt sig út og vilja setja heilsuna í forgang, aðeins er opið fyrir skráningar einu sinni á ári eins og er. Sjá árangur frá nokkrum þessara kvenna hér.

Inga Dóra var á mjög slæmum stað í lífinu og glímdi við vefjagigt, magasár og mikla vanlíðan eða eins og hún orðar það sjálf: „Ég var eiginlega bara öll í klessu inni í mér“. Hún þurfti að leggja sig eftir vinnu alla daga en hefur heldur betur aðra sögu að segja eftir að hún tók þátt í Nýtt líf og Ný þú þjálfun og er farin að ganga á fjöll aftur, sinna fjölskyldunni og er nú full af orku!

Karen kom inn í Nýtt líf og Ný þú þjálfun eftir að hafa upplifað mikil einkenni streitu og kulnunar og var komin á þann stað að hún virkilega þurfti stuðning til þess að taka heilsuna almennilega í gegn. Þjálfunin breytti hugarfari Karenar svo sannarlega til hins betra, hún léttist, öðlaðist aukna orku og miklu betri svefn og er hún því mjög sátt við þá ákvörðun sína að hafa skráð sig í þjálfun.

Ásta Björg hafði glímt við síþreytu í 20 ár, hún var komin á þann stað að heilsan hafði sannarlega “crashað” eins og hún orðar það. Hún var mikið verkjuð og þyngdin ekki að haggast. Sem kennari og móðir var tilhugsunin að halda áfram svona lífi óbærileg og það var þá sem hún ákvað að breyta lífi sínu til hins betra með Nýtt líf og Ný þú þjálfun. Í dag hefur hún öðlast líf fullt af vellíðan, orku og léttleika og eins og hún orðar það sjálf: „Núna veit ég hvert ég er að fara, ég veit hvað það er sem ég ætla að fá út úr þessu því eg er búin að varða leiðina með aðstoð úr þessu námskeiði. Mér finnst ég vera á réttri leið með góðri aðstoð og mæli hiklaust með þessu.“

Þú getur sannarlega öðlast breyttan lífsstíl eins og árangurssögurnar hér að ofan sýna. Smelltu hér til að komast á biðlista fyrir Nýtt líf og Ný þú þjálfun.

Skrifaðu mér í spjallið að neðan

Hversu mörg einkenni kulnunar tengir þú við?

Ert þú að glíma við kulnun eða hefur þú lent í kulnun áður?

Ég hlakka til að kafa dýpra mér þér í spjallinu.

Ef greinin vakti athygli þína máttu endilega deila með á Facebook og sérstaklega til vinkonu sem gæti átt við þennan vanda að stríða.

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

2 Comments

  1. Ása says:

    Eru einhverjir karlmenn sem þú hefur unnið með eða hafa reynslu til að deila?

  2. Lifðu til fulls heilsumarkþjálfun says:

    Sæl Ása, já það eru karlar sem hafa lokið námskeiðum hjá okkur líka og hafa góða reynslu að deila 🙂 Oftast er það þannig að konur skrá sig hjá okkur en karlinn nýtur góðs af matnum og sér árangur líka. Fylgstu með til að heyra slíkar árangurssögur þegar nær dregur að við opnum fyrir þjálfun.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *