
3 fersk sumarsalöt
9th June 2025
10 mín morgunrútína sem gefur þér orku og léttleika.
18th August 2025
3 fersk sumarsalöt
9th June 2025
10 mín morgunrútína sem gefur þér orku og léttleika.
18th August 2025Nú þegar haustið læðist að og bláberin fylla móana er tilvalið að búa til eitthvað einfalt, nærandi og ljúffengt úr afrakstri náttúrunnar. Þessi bláberjapæ með hnetubotni er fullkomin núna í haust, hún er falleg á borði, orkurík og án alls viðbætt sykurs.
–

–
Uppskriftin kemur frá Þórdísi sem heldur úti blogginu og Instagraminu Grænkerar en þar deilir hún einföldum, plöntumiðuðum réttum sem höfða jafnt til líkama og sálar. Eins og Þórdís segir sjálf: “Pæið er silkimjúkt, sætt og meinhollt. Hráfæðis eftirréttur sem bragðast vel beint út frystinum og hentar í öll tilefni.”
Þórdís hefur tekið þátt í 3 daga hráfæðis hreinsuninni okkar og fann strax mun. Hún upplifði meiri orku, léttari líkama og minni bjúg. Þú getur lesið reynslusöguna hennar hér.
–
Lesa einnig:
Svona lítur hreinsunardagurinn minn út
Kraftur þarmaflórunnar: Leiðin að betri heilsu
Reynslusaga Þórdísar frá 3 daga hráfæðishreinsun
—

–
Bláberja pæ með hnetubotni
Botn:
150 gr valhnetur
150 gr döðlur
1/2 tsk vanilluduft
Smá sjávarsalt
Fylling:
150 gr kasjúhnetur (lagðar í bleyti í minnst 2 klst)
150 gr frosin bláber
1/2 dl hlynsýróp
1/2 dl kókosolía (brædd)
Safi úr 1/2 sítrónu
1 tsk vanilluduft
–
1. Maukaðu öll hráefni í botninn í matvinnsluvél þar til úr verður þétt blanda. Þrýstu í bökunarform.
2. Blandaðu öllum hráefnum í fyllinguna í kraftmiklum blandara þar til silkimjúkt.
3. Helltu fyllingunni yfir botninn, sléttaðu úr og settu í frysti í minnst 2 klst.
4. Taktu úr frysti 10–15 mínútum áður en borið er fram.
—
Ef þér líkaði þessi færsla, endilega deildu henni með vinkonu eða öðrum sem þú heldur að muni gagnast af.
Mundu svo að tagga okkur á Instagram @lifdutilfulls – við elskum að sjá ykkar útfærslur!

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!



