
Ferskju- og engiferdrykkur
28th May 2025
Bláberjapæ með hnetubotni
14th August 2025
Ferskju- og engiferdrykkur
28th May 2025
Bláberjapæ með hnetubotni
14th August 2025Hvað er betra en litríkt og nærandi salat á sólríkum degi?
Ég elska að skella saman fersku salati með góðri dressingu, hvort sem það meðlæti með grillmatnum, léttur hádegisverður eða þegar mig langar bara í eitthvað hollt og gott. Hér eru mín uppáhalds sumarsalöt, einföld, litríkt og fullkomin fyrir heita daga.
–

–
Lestu einnig:
Sumarleg jógúrtskál með blárri spirulínu
Ferskju- og engifersdrykkur
Pitaya sumarskál full af orku
–

–
Salat með jarðarberjadressingu
Fersk jarðarber og steinselja gera þetta salat sumarlegt, jarðarberjadressingin gefur fallegan lit og skemmtilegt bragð.
Salatið
2 handfylli spínat eða grænt salat
1 rauðlaukur
veglegt handfylli af íslenskum jarðarberjum
2 smáar gúrkur
fersk steinselja
nokkrar valhnetur, muldar
–
Jarðarberjadressing
1 bolli íslensk jarðarber
1 límóna, kreist
1⁄2 tsk salt
1/4 bolli olífuolía
1 tsk kókospálmanektar/hlynsíróp
–
1. Setjið öll hráefni í jarðarberjadressingu í blandara og vinnið örlítið, dressingin er best þegar hún er pínu kekkjót. Smakkið til með salti eða sætugjafa eftir smekk.
2. Skerið rauðlauk, gúrku og jarðaber og setjið í skál ásamt salatblöðum. Velltið uppúr helming dressingar og skreytið með steinselju og valhnetum. Berið fram með afgangs dressingu og njótið. Algjör sumarsæla.
–

–
–
Avókadó salat með truflaðri tahinidressingu
Einfalt og bragðgott sumarsalat. Ég fegra salatið með radísum og íslenskum þara!
Salatið
handfylli græn salatblöð að eigin vali
1 avókadó
4-6 radísur
1⁄2 nori örk (sushi blöð)
handfylli þari
handfylli graskersfræ
–
Tahini dressing
1⁄4 bolli tahini
1 tsk eplaedik
1⁄4 bolli vatn
1 tsk sítrónusafi
1 tsk miso
(Hægt er að nota 1 tsk meira af tahini í stað miso. Miso-ið gefur þó góða viðbót í dressinguna)
–
1. Setjið öll hráefni í tahinidressingu í blandara og vinnið þar til silkimjúkt. Ég geymi gjarnan dressinguna í sprautubrúsa í kæli og nota á salöt, grænmeti eða á hrökkex frá Mama’s gone crackers (fæst í Nettó).
2. Skerið radísur í þunnar sneiðar og avókadó í ferninga. Skerið nori örkina eða rífið.
3. Veljið fallegan disk fyrir salatið og setjið 1-2 tsk af miso tahini dressingu þar ofaná. Raðið salatblöðum yfir, avókadó, radísum, rifinni nori örk, þara og graskersfræjum. Bætið við dropa hér og þar af tahinidressingu. Njótið og notið sem forrétt, meðlæti eða léttan hádegisverð.
–
Lestu einnig:
Ferskir sumarkokteilar
Hinn fullkomni partýplatti
“Sú ferska” – Samloka með kjúklingabaunasallati og spírum
–

–
Mangó salat með dill-vínegrett
Mangó og dill er æðisleg samsetning í sumarsalöt.
Salatið
2 handfylli ljósgræn salatblöð
1 þroskað mangó
2 kirsuberjatómatar
1 smágúrka, skorin
1 lítill vorlaukur
4-6 íslensk jarðarber
–
Dill-vínegrett
handfylli ferskt dill
1 límóna kreist
2 tsk olífuolía
1 tsk sætt sinnep
salt eftir smekk
–
1. Skerið dill smátt og vinnið í blandara ásamt rest af hráefnum. Bætið við salti og pipar fyrir sterkara bragð.
2. Skerið mangó, kirsuberjatómata, vorlauk, gúrku og jarðarber. Veltið salatlaufum uppúr helming dressingar og leggið í skál. Bætið restinni af hráefnunum við og berið fram. Gaman er að fegra með spírum og radisíum.
Mér þykir mangósalatið gott með hvaða grillmat sem er en öll salötin hér hafa verið í sérstöku uppáhaldi hjá mér. Sniðugt er að breyta til með dressingarnar, eftir því hvað til er í ísskápnum t.d.
–
Njótið elsku vinir, eigið litríkt og ferskt sumar og munið að deila með vinum á samfélagsmiðlum og tagga okkur á Instagram!
Lestu einnig:
Grænmetis- grillveisla í sumar!
Sumarskál sem skorar
Ferskir sumarkokteilar
–
Taktu heilsuna lengra með ókeypis net-fyrirlestri
Vegna tækni truflanna á síðasta fyrirlestri höfum við bætt við fleiri dagsetningum á ókeypis net-fyrirelsturinn “Vellíðan í eigin skinni”. Þar deili ég 5 einföldum og sannreyndum skrefum sem hjálpuðu mér að: Losna við orkuleysi og bjúg, léttast á náttúrulegan hátt og finna jafnvægi með mataræðið.
Ef þú þreytt á endalausum öfgum og skyndilausnum, þá er þessi fyrirlestur fyrir þig.
Engin upptaka verður send, tryggðu þér þitt pláss í dag 👉 Smelltu hér til að skrá þig!


Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!



1 Comment
Takk fyrir að deila salat uppskriftum kæta Júlía. Njóttu sumarsins. kv Thordis.