Ferskir sumarkokteilar
Sumarsalat með jarðaberjadressingu
16th July 2019
Meltingagerlar sem hjálpa við bólgur og hægðatregðu
6th August 2019
Sumarsalat með jarðaberjadressingu
16th July 2019
Meltingagerlar sem hjálpa við bólgur og hægðatregðu
6th August 2019
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Ferskir sumarkokteilar

Í dag deili ég með þér frískandi vítamín-bombum í formi sumarkokteila (of gott til að vera satt er það ekki?)

Það er fátt betra á sólríkum sumardegi en að setjast út í sólina með ískaldan kokteil og njóta stundarinnar. 

Þessir kokteilar sem ég deili hér með þér eru…

  • Næringarríkir
  • Svalandi
  • Fullkomnar blöndur af sætu og súru
  • Fallegir og skemmtilegir til að deila með vin/vinkonu

Sítrus margarítan inniheldur sólhatt sem er sýklaeyðandi, styrkir ónæmiskerfið og er sagður bæta meltinguna. Auk þess inniheldur hann sítrónu og appelsínur sem eru c-vítamínsprengjur og eitt það besta sem maður fær á sumrin.  

Epla og engifer mojitoinn er vítamínbættur (og auðvitað áfengislaus) útgáfa af hinum hefðbundna mojito, með engifer sem dregur úr bólgum og bætir meltinguna og grænkáli sem er eitt það hollasta sem við gefum líkamanum. 

Mynta er talin geta unnið gegn iðruólgu eða IBS (meltingarkvilli), sem ég glímdi einmitt sjálf við um tíma. 

Lesa einnig:

Túrmerik latte á tvo vegu

Himneskur Mangó Lassi drykkur

Himneskur chai búst

– 

Sítrus margaríta

3 appelsínur (notið kjötið úr 1 appelsínu samhliða)
1 sítróna
lúka af ferskri myntu
30 dropar sólhattur (t.d frá A.vogel, fæst í Heilsuhúsinu)

Skreytt með: chilliflögum, límónusneiðum og myntu. 

Setjið allt í safapressu og skreytið svo drykkinn.

Ráð: Ef þið eigið ekki safapressu er hægt að kreista sítrónurnar, fjarlægja steinana og blanda svo rest samanvið. Einnig má nota hreinan appelsínusafa t.d appelsínusafi frá Biona sem fæst m.a. í Nettó í glerkrukku (eða Trópí).

Epla og engifer mojito

2 lúkur grænkál1 gúrka
2 lífræn epli
1-2 cm lífræn engiferót
2 límónur
1 lúka fersk mynta
1/2 bolli léttkolsýrt sódavatn

Skreytt með: myntublöðum og límónusneiðum.

Setjið ávexti og grænmeti í safapressu, bætið sódavatni útí og skreytið svo drykkinn með myntu og límónusneiðum.

Þessir dásamlegu kokteilar bragðast best í háu spariglasi. 

Ef þið prófið kokteilana megið þið endilega smella mynd og deila með mér á samfélagsmiðlum! Ég elska að sjá myndir frá ykkur af uppskriftunum mínum og ykkar útfærslum. 

Njótið dagsins!

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

2 Comments

  1. Eyja Jóhannesdóttir says:

    Langaði bara að spurja hvort hægt sé að gera þennan drykk án þess að eiga safapressu?? Er ekki í lagi að setja þetta allt saman í blandara?

    • studningur@lifdutilfulls.is says:

      Sæl Eyja,

      já þú getur gert það 🙂 Þá væri samt sniðugt að sigta hratið frá þegar þú hefur blandað þessu öllu saman. Í mojito uppskriftinni mælum við einnig með að blanda öllum hráefnunum saman, nema kolsýrða vatninu, sigta hratið frá og bæta svo kolsýrða vatninu við í lokin 🙂

      Njóttu vel!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *