
7 ráð til að bæta blóðsykurinn
28th April 2025
3 fersk sumarsalöt
9th June 2025
7 ráð til að bæta blóðsykurinn
28th April 2025
3 fersk sumarsalöt
9th June 2025Vaknar þú stundum þrútin og orkulaus?
Þá gæti þessi drykkur verið það sem líkaminn þinn kallar á. Drykkurinn er ótrúlega ferskur og einfaldur. Enda tilvalin yfir sumarið.
Þessi drykkur er samsettur af hráefnum sem vinna saman að því að draga úr bólgum, styðja við meltingu og veita líkamanum náttúrulega orku. Engifer, kanil ásamt chia- og hempfræjum eru þekkt fyrir bólgueyðandi eiginleika og ferskjan bætir bæði bragð og andoxunarefni.
Fullkominn drykkur þegar þú vilt styrkja líkamann innan frá.
–

r
Ferskju- og engiferdrykkur
1/2 bolli möndlumjólk eða vökvi að eigin vali
1/2 bolli jógúrt (kókosjógúrt, grískt jógúrt eða skyr)
1 bolli ferskjur frosnar
1/2 bolli banani afhýddur og frystur
1/2 bolli klakar, val
1 tsk. fersk engiferrót (eða ½ tsk. engiferduft)
1/4 tsk kanil, val
1-2 msk. chiafræ lögð í bleyti
2-3 msk. hempfræ eða/og einn skammtur af kollagendufti frá Feel Iceland, val gefur aukaprótein ásamt því að vera bólgueyðandi.
–
1. Setjið allt í blandara og hrærið saman eða í safapressu. Bætið við vökva eftir þörfum.
2. Sigtið síðan með sigti eða grisjupoka.
–
Lesa einnig
Frískandi bólgueyðandi drykkur fyrir hormónajafnvægi og vellíðan
7 ráð til að bæta blóðsykurinn
Meltingargerlar sem hjálpa við bólgum og hægðatregðu
–

Ljósmynd frá Kari Skelton
Verður þetta næsti drykkur sem þú prófar?
Endilega deildu með mér hér að neðan hvernig hann smakkast og ekki hika við að tagga okkur á Instagram við elskum að sjá myndir frá ykkur!
–
Taktu heilsuna lengra með ókeypis net-fyrirlestri
Vegna vindælda höfum við bætt við fleiri dagsetningum á ókeypis net-fyrirelsturinn “Vellíðan í eigin skinni”. Á fyrirlestrinum deili ég 5 einföldum skrefum sem hjálpuðu mér að finna takt sem heldur, ekki kúr, heldur raunverulegt jafnvægi.
Smelltu hér til þess að skrá þig!

–

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!


