Frískandi bólgueyðandi drykkur fyrir hormónajafnvægi og vellíðan
Kanilhjúpaðar jólamöndlur
9th December 2024
Kraftur þarmaflórunnar: Leiðin að betri heilsu
20th January 2025
Kanilhjúpaðar jólamöndlur
9th December 2024
Kraftur þarmaflórunnar: Leiðin að betri heilsu
20th January 2025
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Frískandi bólgueyðandi drykkur fyrir hormónajafnvægi og vellíðan

Í dag deili ég með ykkur nýjum og dásamlegum ananas túrmerik drykk. Þessi ljúffengi drykkur er hannaður til að styðja við hormónastarfsemi, draga úr bólgum og veita orku. Uppskriftin er hluti af nýjum leiðarvísir sem ég hef sett saman “Bólgueyðandi drykkir” ásamt fleiri einföldum og næringarríkum drykkjum sem styðja vellíðan og jafnvægi.


Engifer gefur þessum drykk bæði hlýjan og frískandi keim og hjálpar til við að draga úr bólgum og styðja við ónæmiskerfið. Túrmerik, sem er þekkt fyrir sterka bólgueyðandi eiginleika, eykur vellíðan og getur dregið úr verkjum. Chiafræin eru full af trefjum, omega-3 og próteini sem stuðla að jafnvægi og orku. Hempfræ eða kollagenduft gefa drykknum aukaprótein og styðja við heilbrigða húð, liðheilsu og hár.


Lesa einnig: 
Berjabúst fyrir breytingaskeiðið
Orkugefandi hnetusmjörsþeytingur sem vinnur á sykurþörf
Himneskur Mangó Lassi drykkur

Ljósmyndir í eigu
Ljósmyndir í eigu Claire Bear Bites.

Ananas túrmerik þeytingur

1 bolli möndlumjólk eða vökvi að eigin vali

1 klípa engiferduft eða 1 tsk. ferskt, rifið engifer

2 bollar frosinn ananas

1 banani

1 tsk. ferskt túrmerik (afhýtt) eða ½ tsk. túrmerikduft

1-2 msk. chiafræ (lögð í bleyti í 10 mínútur)

2-3 msk. hempfræ eða einn skammtur af kollagendufti frá Feel Iceland.



1. Setjið fyrst grunnhráefnin í blandara og hrærið vel saman.
2. Bætið svo við ofurfæðunum og hrærið á ný.



Láttu mig vita í spjallið að neðan hvort þú prófir þennan þeyting og hvernig smakkast!

Ekki gleyma svo að tagga okkur á Instagram ef þú gerir þér þennan drykk, við elskum að sjá ykkar útfærslur.


Lifðu til fulls áskriftin leiðir þig skref fyrir skref að heilbrigðum lífsstíl með vikuplönum, uppskriftum, íhugun og heilsu ráðum sem styðja við meltingu draga úr bólgum og hjálpa þér að finna jafnvægi og orku í daglegu lífi. .

Nú í janúar getur þú skráð þig með 40% afslætti og fengið kaupaukannBólgueyðandi drykkir – 15 næringarríkar uppskriftir sem styðja við hormóna jafnvægi og vellíðan

Smelltu hér til að skrá þig í Áskriftina og fáðu kaupaukann Bólgueyðandi drykkir með aðeins í janúar.

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *