ÁSKRIFTIN · NÆRING & NÚVITUND

Þinn lífstíll, þitt jafnvægi.

Vellíðan í eigin skinni og lífstíll sem þú nýtur að viðhalda.

★★★★★
Þúsundir kvenna síðan 2012
Hollur réttur með bowls og fersku hráefni
10
mínútúr
á dag 
300+
uppskriftir fyrir
orku og ljóma
13+
ár af reynslu
600+
ánægðir áskrifendur
300+
uppskriftir
100%
RAunhæft
Kannast þú við þetta?

Þú ert búin að prófa allt en ekkert situr eftir.

Þú ert ekki ein. Flestar konur sem koma til okkar hafa farið í gegnum sömu hringrásina áður en þær fundu eitthvað sem virkaði.

Orkan sveiflast

Þyngdin, orkan og heilsan fara upp og niður. Þú veist ekki lengur hverju á að treysta þegar kemur að mataræði.

Sektarkennd og átök

Þú kennir sjálfri þér um, heldur að þú sért ekki nógu öguð og sveiflast milli átaka og uppgjafar.

Lítill tími, mikið vesen

Dagarnir eru annasamir. Þú þarft eitthvað einfalt sem passar inn í lífið þitt ekki eitthvað sem flækir það meira. 

Ímyndaðu þér...

Að vakna með orku, jafnvægi og sátt í eigin skinni.

Já takk, ég vil þetta
Þrjú einföld skref

Hvernig virkar áskriftin?

Þú þarft ekki að finna upp hjólið, bara fylgja plani og við sjáum um rest.


Byrjaðu vel

Fyrstu 14 dagarnir hjálpa þér að fyllast orku, vellíðan og ljóma hratt og örruglega með fullbúnum matseðli og hugarfarsbreytingu.

Fylgdu vikuplani

Í hverri viku færðu skipulag, innkaupalista, mínútu hugleiðingu og fræðslu, þannig að þú þarft ekki að hugsa fyrir neinu.

Þinn lífsstíll

Farðu lengra með heilsuna og finndu jafvægi sem virkar fyrir þig með nýrri fræðslu og hópsímtali í hverjum mánuði.

Áskriftin er fyrir þig ef...

Þú vilt eitthvað sem virkar  og endist.

Hvað er innifalið

Allt sem þú þarft á
einum stað.

Ekkert vesen. Bara einfalt skipulag, bragðgóður matur og leiðsögn sem hjálpar þér að halda þér á réttu brautinni.

Fyrstu 14 dagarnir

Komdu þér af stað á réttan hátt

Fyrstu 14 dagarnir leggja grunninn. Fullbúinn matseðill sem eykur orku, örvar brennslu og dregur úr bólgum ásamt hugarfars- breytingu og fræðslu sem hjálpar þér að nálgast mataræðið á nýjan hátt.

  • Fullbúinn matseðill með morgunmat, hádegis- og kvöldmat
  • Daglegir hugarfarsbútar sem þróa nýjar venjur
  • Skref-fyrir-skref leiðsögn frá fyrsta degi
14 daga matseðill
Vikuplan

Vikuplan sem einfaldar lífið

Í hverri viku færðu einfalt plan með uppskriftum, innkaupalista og fræðslu. Sumir dagar taka aðeins 10 mínútur aðrir aðeins lengur. Þú getur skipt á uppskriftum og lagað planið að þínum dögum.

  • 5 einfaldar uppskriftir á viku
  • Innkaupalisti aðgengilegur í síma eða tölvu
  • Vikuleg hugleiðing og fræðsla
Vikuplan og innkaupalisti
Mánaðarlegt heilsuþema

Heilsuþema sem þróast með þér

Í hverjum mánuði tökum við fyrir nýtt viðfangsefni eins og blóðsykursstjórnun, streitu, sykurþörf, orkurík fæða eða jafnvel jólabakstur. Þemun koma fram í stuttri fræðslu, hópsímtali og eru tvinnuð inn í vikuplanið. 

  • Mánaðarlegt þema í fræðslu og uppskriftum
  • Mótar lífsstíl þinn með þér
  • Heldur þér við efnið 
Heilsuþema og hópsímtal
Samfélag & stuðningur

Þú ert ekki ein í þessu

Vertu hluti af hópi kvenna sem eru á sömu vegferð og skilja nákvæmlega hvernig þetta er. Þú getur spurt, deilt bæði því sem er erfitt og litlu sigrunum á leiðinni.

  • Lokaður hópur kvenna á sömu vegferð
  • Aðgengi 24/7 sími, spjaldtölva eða tölva
  • Hvatning og stuðningur þegar þú þarft
Samfélag kvenna
Kennslur á heimasvæði

Fræðsla sem styður við þig

Fáðu aðgang af stuttum og hnitmiðuðum kennslum til að horfa eða hlusta á þegar þér hentar og leita í eftir þörf. Þar lærir þú að finna jafnvægi í mataræðinu, styðja við líkamann, virkja hugarfarið og skapa lífsstíl sem þú getur viðhaldið allt árið um kring.

  • Stutt og hagnýt fræðsla þegar þér hentar
  • Lærðu að skapa meira jafnvægi í daglegu lífi
  • Einföld verkfæri fyrir betri líðan til lengri tíma
Heilsuþema og hópsímtal
Samfélag kvenna
Mánaðarleg Hópsímtöl 

Hópsímtöl með heilsumarkþjálfa

í hverjum mánuði er haldið hópsímtal í beinni með Júlíu eða Berglindi, heilsumarkþjálfa. Þar færðu að spyrja, fá leiðsögn og sníða það sem þú ert að læra að þínu lífi.

  • Hópsímtöl með Júlíu eða Berglindi
  • Fáðu svör og leiðsögn fyrir þína heilsu
  • Vertu hluti af hvetjandi samfélagi
Bónusar

Sem hjálpa þér að taka heilsuna lengra

Allt innifalið í áskriftinni.

300+ uppskriftir

Sívaxandi uppskriftabanki sem styður orku, vellíðan og ljóma.

Myndabanki betri matvæla 

Veldu réttu vörurnar úti í búð án óþarfa sykurs og aukaefna.

Þinn eigin matseðill

Settu saman þinn eigin matseðil og innkaupalista úr uppskriftunum.

Barnvænar uppskriftir

Fljótlegar, einfaldar uppskriftir sem slá í gegn hjá litlu krílunum.

Hvernig er MAtaræðið

Einfalt, fljótlegt
og bragðgott.

Hér finnur þú eitthvað fyrir alla.

Það sem áskrifendur segja

Þetta er ekki bara mataræði  þetta er nýtt líf.

★★★★★

,,7 kg léttari og með orkuna aftur”

Ég byrjaði vegna orkuleysis, liðverka og yfirþyngdar. Í dag er ég orkumeiri, glaðari, verkjalausari og 7 kg léttari. Áskriftin hefur líka tekið stressið úr daglegu lífi, enginn hausverkur yfir kvöldmatnum. Þetta er ekki skyndilausn þetta er lífsstíll sem virkar. Mæli heilshugar með Áskriftinni.

Rebekka Kristjánsdóttir
Meðlimur í samfélagi Lifðu til fulls 
★★★★★

,,Vikuplanið leiðir til góðs lífsstíls"

Ég er stórhrifin af vikuplaninu, það einfaldar manni lífið í alla staði þar sem þú færð eitthvað eitt lífsstílsbætandi á dag og getur víxlað dögum ef þarf. Mikil ró yfir því en tók á ýmsu sem leiðir til góðs lífsstíls. 

Jóhanna Skúladóttir 
Meðlimur í samfélagi Lifðu til fulls 
★★★★★

,,8kg farin, orkan meiri og glaðari"

Með áskriftinni losnaði ég við 8 kíló, fékk meiri orku og kraft og er almennt glaðari. Mér líður betur og hef tekið upp hollari venjur dagsdaglega. Ferlið er einfalt og skýrt. Maður þarf ekki að vera snillingur í eldhúsinu, þetta er frábær leið til að koma sér í betra jafnvægi á sínum hraða.

María Björgvinsdóttir
Meðlimur í samfélagi Lifðu til fulls 
★★★★★

,,Léttist um 2 kíló á fyrstu vikunum"

Miklu auðveldara að kikka aftur inn í rútínuna eftir sumarfrí. Vanalega hefði ég frestað því að byrja aftur en núna var staðfesta innra með mér.  Fann strax mun á orkunni, er almennt glaðari og laus við aukakílóin. Kom mér á óvart hvað mér finnst þetta skemmtilegt, einfalt, ekkert vesen og raunhæft.  

Anna E. Borg
Meðlimur í samfélagi Lifðu til fulls
★★★★★

„Vikuplanið heldur mér á beinu brautinni"

Vikuplanið hjálpar mér að halda mér á réttu leiðinni og koma mér úr því að detta niður í ofát á sjálfstýringu. Svo gott að hafa svona plan vikulega, fylgja uppskrift og drekka í sig fróðleikinn og hugarvinunna.

Helga Björk Bjarnadóttir
Meðlimur í samfélagi Lifðu til fulls 
★★★★★

,,Sef betur, liðirnir góðir og betra líf"

Ég er orðin miklu meðvitaðri um hvaða matur fer ekki vel í mig og langar ekki í allan óholla matinn eins og áður. Mér finnst svo gaman að vera í áskriftinni og fá uppskriftir og allan fróðleikinn og hvet alla til að fara þessa vegferð með áskriftinni.

Birna Kjartansdóttir
Meðlimur í samfélagi Lifðu til fulls 
Júlía, stofnandi Lifðu til fulls
Hæ, ég heiti Júlía

Ég hjálpa konum að öðlast varanlega lífsstílsbreytingu.

Ég er heilsumarkþjálfi, næringar- og lífsstílsráðgjafi, heilsukokkur og stofnandi Lifðu til fulls. Síðan 2012 hef ég hjálpað þúsundum kvenna að öðlast varanlega lífsstílsbreytingu, án átaka eða megrunarkúra.

Ég þekki af eigin reynslu hvernig það er að vera föst í vítahring sykurs, meltingarvandamála og síþreytu. Það var ekki fyrr en ég breytti hugarfarinu, mataræðinu og daglegum venjum að ég fékk að upplifa varanlega lífsstílsbreytingu.

Í dag lifi ég full af orku, vellíðan og sátt í eigin skinni án þess að upplifa að ég sé í átaki eða þurfi að neita mér um góðan mat. Þetta er ekki megrunarkúr. Þetta er byrjun á nýjum lífsstíl.

- Júlía

Veldu áskrift

Settu heilsuna í fyrsta sæti.

⏳ 40% afsláttur... aðeins í takmarkaðan tíma

Mánaðaráskrift

Tilvalið ef þú vilt prófa
5.990 kr / mán
Fullt verð 9.900 kr
  • Aðgangur að öllum uppskriftum og efni
  • Vikuplan og fullbúinn 14 daga matseðill
  • Mánaðarlegt heilsuþema og hópsímtal
  • Aðgangur í tölvu, spjaldtölvu eða síma
  • 3 mánaða bindingstími
Skrá mig mánaðarlega

★ SKRÁNINGARBÓNUS AÐEINS NÚNA

 15 bólgueyðandi bústdrykkir

Uppskriftir og fróðleikur um fæðu sem dregur úr bólgum, eykur orku og örvar náttúrulega brennslu. Aðgangur strax eftir skráningu.

Fylgir bæði ársáskrift og mánaðaráskrift
Algengar spurningar

Það sem aðrir spyrja oftast.

Vegna þess að þetta er ekki átaksplan með lokadag heldur lífsstíll sem þróast með þínum líkama og lífi. Margar í hópnum hafa prófað ótal megrunarkúra áður og segjast loksins hafa fundið eitthvað sem endist.

Strax. Þú færð aðgang að öllu efninu um leið og þú skráir þig og getur byrjað á 14 daga matseðlinum samdægurs. Þú heldur sömu kjörum sem þú tryggir þér núna, jafnvel þótt verðin hækki síðar.

Mataræðið er hvorki keto né vegan og hráefni fást í næstu matvörubúð. Þú lærir að velja besta hráefnið svo óhollar venjur fjara út með tímanum, án streitu og án þess að neita þér um neitt.

Já, uppskriftirnar eru hannaðar fyrir íslenskt eldhús og fjölskyldur. Maturinn slær í gegn hjá öllum aldurshópum.

Flestar uppskriftir eru einfaldar og fljótlegar, hannaðar fyrir annasamt líf. Sumir taka aðeins lengri tíma og henta betur um helgar. Þú getur alltaf skipt á uppskriftum í vikuplaninu.

Það er eðlilegt að taka sér pásur. Margar konur finnar að þegar þeim fer að líða betur halda þær áfram að hugsa um heilsuna sína, líka í fríum ekki af skyldu heldur af því að þeim líður vel. Þetta snýst ekki um fullkomnun heldur að gera sitt besta hverju sinni. Að missa úr eyðileggur ekki árangurinn, það er hluti af ferlinu.  

Nei. Heimasvæðið okkar er einfalt og við sendum innskráningarleiðbeiningar um leið og þú skráir þig. Við erum alltaf til staðar ef eitthvað kemur upp.

Þú getur sagt upp hvenær sem er eftir 3 mánaða lágmarkstíma á mánaðaráskrift. Engin binding er eftir það. Sjá skilmála hér

Það sem áskrifendur segja

Mér hefur aldrei liðið jafn vel í eigin líkama.

★★★★★

„Aðal árangurinn er sú vellíðan sem ég hef fengið"

Áður en ég byrjaði var mér oft íllt í maganum og útþanin. Ég missti rúm 2kg, en aðal árangurinn er sá að mér líður almennt betur, er með minni magaverki og útþaninn magi úr sögunni og finn meiri orku í kjölfarið.

Sigrún Elva
Meðlimur í samfélagi Lifðu til fulls 
★★★★★

,,Komin með minn lífsstíl"

Ég var orðin frekar dauf og döpur, hafði verið á hægri leið upp í þyngd síðasta árið og hafði löngun til að breyta lífsstíl mínum. Í dag eru farin 6 kíló og ávinningurinn er margþættur, ekki bara þyngdartapið heldur líður mér allri betur. 

Hildur Tryggavadóttir
Meðlimur í samfélagi Lifðu til fulls 
★★★★★

,,Betri hugsunarháttur

Hugsunarháttur breyttist til hins betra bara eftir þetta fyrsta vikuplan! Svo frábært að fá þessar nýju uppskriftir vikulega.   

Ragna Haraldsóttir
Meðlimur í samfélagi Lifðu til fulls 
★★★★★

,,10 kg án þess að hafa fyrir því og jafnvægi alla daga!"

Áður en ég byrjaði hjá Júlíu var ég alltaf þreytt og uppþembd. Mér fannst ég ekki orðin nógu gömul til að líða svona.  Núna hef ég lést um 10 kíló, bara með því að taka til í mataræði mínu. Og það er bara bónus, því það var ekki eitt af markmiðum mínum. Það besta af öllu er jafnvægið, alla daga, besti árangurinn. Jafnvægi í einu og öllu, skapi, hungri/seddu, orku/þreytu og bara öllu.

Vala Ólöf Jónasdóttir
Meðlimur í samfélagi Lifðu til fulls 
★★★★★

,,Þetta er ekki námskeið heldur hjálpar manni að gera hollt mataræði að lífsstíl”

Heilsan var ágæt en ég átti það til að þyngjast, fá bjúg og borða óreglulega. Mig langaði að koma meiri reglu á mataræðið og ákvað að prófa Lifðu til fulls.
Í dag borða ég reglulegar, holla máltíðir og finn mikinn mun á líðaninni. Ég er léttari á mér, fæ síður bjúg og líður betur bæði líkamlega og andlega. Ég finn líka meira jafnvægi í daglegu lífi og meiri stjórn á venjunum mínum. Aðhaldið, fræðslan og uppskriftirnar hjálpa mér að halda áfram.
Þetta er ekki bara námskeið heldur lífsstíll sem virkar.


Margrét Sigbjörnsdóttir
Meðlimur í samfélagi Lifðu til fulls 
★★★★★

,,Sú allra besta fjárfesting"

Áður en ég hóf samstarf með Júlíu leið mér mjög illa bæði andlega og líkamlega. Ég var með verki, orkulaus, döpur og hafði reynt margt í gegnum tíðina án árangurs.
Eftir að ég kynntist Lifðu til fulls hefur líðan mín breyst gríðarlega til batnaðar. Hreyfigetan hefur aukist, ég er orkumeiri, bjartsýnni og finn mikinn mun á bæði líkama og sál. Minnið hefur batnað og húðin orðið mjúkari, kláði og pirringur að minnka.Fyrir mér er þetta ein besta fjárfesting sem ég hef gert og í dag upplifi ég heilbrigðari sál í sterkari líkama.

Ásgerður Guðbjörnsdóttir
Meðlimur í samfélagi Lifðu til fulls 
Þinn tími er núna

Láttu draumalífsstílinn verða að veruleika.

Settu heilsuna í fyrsta sæti og byrjaðu daginn í dag. Þú átt skilið að líða vel í eigin skinni alla daga.

Skrá mig með 40% afslætti
★★★★★  Þúsundir ánægðra kvenna síðan 2012