
10 mín morgunrútína sem gefur þér orku og léttleika.
18th August 2025
Kraftur kollagens: Hrein næring úr íslenskri náttúru!
25th September 2025
10 mín morgunrútína sem gefur þér orku og léttleika.
18th August 2025
Kraftur kollagens: Hrein næring úr íslenskri náttúru!
25th September 2025Íslenska hafið hefur lengi verið uppspretta næringar og styrks. Þorskalýsi hefur fylgt þjóðinni í aldir og verið notað sem náttúrulegur styrkur fyrir bæði líkama og sál. Árið 2012 ákváðu þrjár konur í MBA námi við Háskóla Íslands að sækja innblástur í þessa 1000 ára gömlu hefð og skapa nýja kynslóð lýsis.
Þannig varð Dropi til, fyrsta íslenska „extra virgin“ þorskalýsið unnið úr ferskri lifur Atlantshafsþorsks við Vestfirði. Með sérstökum aðferðum við lágt hitastig tekst að varðveita fitusýrur og vítamín í sinni hreinustu mynd, án viðbættra efna. Fyrir marga hefur Dropi orðið hluti af daglegri rútínu sem styður orku, jafnvægi og vellíðan í nútíma lífi.
–

–
Úr hverju er Dropi, hvernig er vinnsluferlið öðruvísi en hefðbundið lýsi og hvað gerir það einstakt?
Dropi er eingöngu úr lifur Atlantshafsþorsks. Vinnsla fer fram með svokallaðri kaldvinnsluaðferð þar sem hitinn fer aldrei yfir ~42 °C. Þessi aðferð varðveitir náttúruleg vítamín (A og D), Omega-3 og aðrar fitusýrur. Aðferðin hefur verið í þróun í um 1000 ár og gerir Dropa jafnframt að jómfrúarolíu (extra virgin).
Hún er hreinsuð með virkum kolum og uppfyllir HACCP- og evrópska gæðastaðla. Sérkenni Dropa felast meðal annars í sérstakri vinnslu við lágt hitastig sem varðveitir náttúruleg A- og D-vítamín.
Enn fremur er rekjanleikinn stór hluti af því sem gerir vöruna einstaka. Hver flaska er merkt með QR-kóða sem gerir neytendum kleift að sjá nákvæmlega hvenær afurðin var veidd og af hverjum. Þetta þýðir að þú getur fylgst með sögunni frá hafinu að flöskunni.
–
Af hverju er mikilvægt að fá nægilegt magn af Omega-3?
Omega-3 fitusýrur eru nauðsynlegar og mikilvægar fyrir margar heilsufarslegar sakir, t.d. fyrir hjarta- og æðavirkni, heilastarfsemi og bólgumyndun. Þær eru algjörlega nauðsynlegar og líkaminn getur ekki framleitt þær sjálfur, því þarf að fá þær úr fæðu eða bætiefnum.
–

–
Hvaða heilsuávinning upplifa neytendur helst?
Samkvæmt rannsóknum getur inntaka á þorskalýsi hjálpað við að viðhalda eðlilegum bólguviðbrögðum, stutt við andlega heilsu, s.s. kvíða og jafnaðargeð, stutt við augn- og hjartaheilsu og stuðlað að heilbrigðri virkni maga, þarma, beina og liða. Varan hefur einnig verið tengd við minni liðverki og bólgumyndun. Þetta rímar við þær umsagnir sem við höfum fengið frá fjölmörgum af okkar viðskiptavinum.
–
Lestu einnig
Kraftur þarmaflórunnar: Leiðin að betri heilsu
10 mín morgunrútína sem gefur þér orku og léttleika.
Járnskortur og þreyta
–
Hvernig er best að taka Dropa og þarf að hafa eitthvað í huga með öðrum bætiefnum?
Almennt er tekið ein teskeið (5 ml) á dag, sem uppfyllir um 90% af D-vítamín þörf og rúmlega 100% af A-vítamín þörf. Mikilvægt er að fara varlega ef þú tekur blóðþynningarlyf, ert barnshafandi (of mikið A-vítamín getur skaðað fóstur), eða ef þú ert á lyfjum sem hafa áhrif á blóð eða lifur.
Margir taka Omega-3 með mat sem inniheldur fitu til að bæta upptöku. Algengt ráð er að taka lýsi með máltíð.
–
Hvenær fara flestir að finna mun á líðan sinni?
Það getur verið algjörlega einstaklingsbundið hvort og hversu langan tíma það tekur að finna áhrifin, en algengt getur verið að finna fyrir jákvæðum áhrifum innan nokkurra vikna ef miðað er við daglega eða nokkuð reglulega inntöku.
–
Hvernig sjáið þið framtíð Dropa eru einhverjar nýjungar á leiðinni?
Aukin sala á erlendum mörkuðum, t.d. í Bandaríkjunum, Bretlandi, Skandinavíu og Hollandi. Þróun nýrra bragðtegunda og betra aðgengi að vörunni, en nýlega hófum við sölu á Dropa í verslunum Krónunnar og vonum að sem flestir nýti sér það bætta aðgengi að vörum okkar.
–
Dropi er ekki bara þorskalýsi. Það er tenging við íslenska náttúru, gamlar hefðir og hágæða heilsuvöru sem hefur verið þróuð með mikilli natúru og virðingu fyrir hráefninu. Hver flaska segir sögu um ferskan fisk, vandlega vinnslu og þá umhyggju sem fer í að varðveita náttúruleg vítamín og Omega-3 fitusýrur. Ef þú vilt gefa líkamanum það besta og njóta heilsuvöru sem sameinar hefð og nútímaleg gæði, er Dropi algjörlega þess virði að kíkja á.
Nýttu þér afsláttar kóðann okkar LIFDU15 á Dropi.is. Gildir til 15.október 2025.

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!



