
Dropi: Íslenskt hágæða lýsi
16th September 2025
Sítrónu og hungangs te
14th October 2025
Dropi: Íslenskt hágæða lýsi
16th September 2025
Sítrónu og hungangs te
14th October 2025Kollagen er eitt mikilvægasta próteinið í líkamanum, það styður við húð, liði, bein, vöðva og meltingu. En eftir 25 ára aldur fer líkaminn smám saman að framleiða minna af því. Þá förum að taka eftir breytingum: Húðin verður slappari, liðirnir stirðari, endurheimtin hægari og orkustigið óstöðugra.
Feel Iceland nýtir íslenska náttúru til að skapa hreinustu útgáfu af kollageni sem völ er á. Með sjálfbærri vinnslu úr villtum fiski við Ísland framleiða þau hágæða marine kollagen sem líkaminn nýtir hratt og vel.
–
Af hverju skiptir kollagen máli?
Kollagen er prótein sem finnst náttúrulega í líkamanum. Það er eitt algengasta byggingarefni líkamans og telur um 30% af próteinum. Kollagen gefur ýmsum líffærum styrk t.d. æðum, þörmum, lungum, beinum, brjóskvef, sinum, liðböndum og húð. Kollagen fæðubót er framleidd út fæðu sem við borðum venjulega lítið eða ekkert af eins og húð, beinum og brjóski. Með því að bæta kollageni við mataræðið getum við stutt líkamann á náttúrulegan hátt og fundið fyrir meiri styrk og vellíðan.
–
Saga Feel Iceland: Hugmynd að vörumerki
Hugmyndin að Feel Iceland kviknaði 2013 þegar Hrönn stofnandi fyrirtækisins leigði borð í frumkvöðlasetrinu í Sjávarklasanum. Þar sá hún tækifæri í því sem áður var talið úrgangur, fiskroði sem fiskvinnslur borguðu meira að segja fyrir að farga.
Með ástríðu fyrir nýsköpun og sjálfbærni ákvað hún að umbreyta þessari auðlind í verðmæta heilsuvöru. Árið 2014 var fyrsta kollagenið frá Feel Iceland komið á markað og í dag er það orðið vinsælt val meðal fólks sem vill styðja líkama sinn með hreinni næringu úr íslenskri náttúru.
–

0
Hvað gerir íslenskt marine kollagen sérstakt?
Kollagenið frá Feel Iceland er hreint hágæða kollagen sem er framleitt úr íslenskum fiski. Til að ná fram bestu gæðum við framleiðslu kollagensins er notaður sérhannaður tækjabúnaður og hefur það tekið áratugi að besta bæði framleiðsluferið og gæðin. Rannsóknir hafa sýnt fram á hraðari upptöku mannslíkamans á kollageni sem unnið er úr fiski samanborið við kollagen sem unnið er úr öðrum dýraafurðum. Kollagen er oftast búið til úr svína-eða nautgripaafurðum en með því að framleiða kollagenið úr íslenskum villtum fisk er ekki hægt að finna nein sýklalyf eða hormon í afurðinni.
–
Lestu einnig:
Dropi: Íslenskt hágæða lýsi
Fræolíur: Hættan sem leynist í mataræðinu þínu
7 ráð til að bæta blóðsykurinn
–
Ávinningur fyrir notendur
Rannsóknir og reynsla notenda sýna að regluleg neysla á kollageni getur haft fjölþætt áhrif:
1. Húð: Bættur raki, meiri teygjanleiki og grynnri hrukkur eftir 8-12 vikna inntöku á kollageni.
2. Liðamót: Kollagen-peptíð safnast í brjóski og geta minnkað liðverki og bætt hreyfanleika.
3. Bein: Eykur beinþéttni og stuðlar að nýmyndun beina, þá sérstaklega hjá konum eftir tíðahvörf.
4. Æðar og melting: Styður við teygjanleika æðaveggja og getur hjálpað til við sáragróanda og bætt þarmaheilsu.
–
Nýtis kollagen í bætefnaformi?
Algeng spurning er hvort líkaminn geti raunverulega nýtt sér kollagen í bætiefnaformi. Kollgenið frá Feel Iceland er vatnsrofið sem þýðir að það er búið að fjarlægja vetnistengi á milli sameinda þannig að kollagenpeptíðin verða aðgengilegri til upptöku fyrir líkamann.
–
Frammtíðarsýn Feel Iceland
Framtíðin er björt, Kollagen er eitt mest selda fæðubótarefni í heiminum í dag. Feel Iceland leggur áherslu á sjálfbærni og nýtingu sjávarafurða og þær áherslur munum við halda í hávegum. Stöðug vinna á sér stað þegar kemur að vöruþróun og því alltaf eitthvað í pípunum þegar kemur að nýjum vörum. Við leggjum mikla áherslu á að sinna íslenska makaðnum auk þess að huga að því að stækka á erlendri grund.
–
Saga Feel Iceland sýnir að góðar hugmyndir, ástríða og nýsköpun geta orðið að vöru sem styrkir heilsu og vellíðan. Þau hafa ekki bara skapað vöru sem styður við heilsu og vellíðan heldur einnig fundið leið til að auka verðmæti úr auðlind sem áður var lítið nýtt.
Með kóðanum FI-tvenna færðu frían brúsa þegar þú kaupir tvær eða fleiri vörur á Feel Iceland heimasíðunni. Nýttu þér þetta tækifæri og prófaðu EKTA íslenskt kollagen.
–
Færð þú þér kollagen? Deildu þessu með vin/vinkonu sem þú telur þurfa á þessum lestri að halda. Ekki gleyma að fylgja okkur á Instagram og Facebook

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!



