
Kraftur kollagens: Hrein næring úr íslenskri náttúru!
25th September 2025
Bleik skál fyrir bleikan október
23rd October 2025
Kraftur kollagens: Hrein næring úr íslenskri náttúru!
25th September 2025
Bleik skál fyrir bleikan október
23rd October 2025Nú þegar styttist í veturinn, skammdegið og kulda sem stingur kinnarnar er gott að minna sig á hversu mikilvægt það er að hugsa extra vel um sig.
Nýlega veiktist ég með flensuna og það minnti mig á hversu gott er að styðja líkamann með hlýjum drykkjum eins og te, hvíld og næringarríkri fæðu. Þetta eru einföld atriði sem geta gert stóran mun þegar kvefið og flensan læðist upp á mann.
Eitt af því sem mér finnst sérstaklega gott á þessum tíma árs er heitt te með hunangi, sítrónu og fersku engifer. Það tekur ekki langan tíma að útbúa og er fullkomið þegar líkaminn þarf smá hlýju og ró.
,0

-.
Heitt sítrónu te gegn flensu
1. 1 bolli heitt vatn
2. Saft úr hálfri sítrónu
3. 1 matskeið hunang
4. Nokkrar sneiðar af fersku engiferi
Blandið öllum hráefnunum saman og leyfið teinu að standa örlítið áður en hellt er í bollann. Smakkaðu og bættu við meira hunangi eða engifer eftir þínum smekk.
Eftir að hafa drukkið bollann finnur maður hvernig líkaminn nýtur hlýjunnar og hvernig hálsinn róast. Þetta te er ekki bara bragðgott, heldur líka náttúruleg leið til að styðja ónæmiskerfið og draga úr flensueinkennum. Að taka sér þessa stund fyrir sjálfa sig á veturna er eins konar dagleg rútína sem gerir mikið fyrir vellíðan.
Hefur flensan bankað upp á hjá þér?
Hver er þín uppáhalds leið til að komast undan kvefi og líða vel á veturna?
–
Lestu einnig:
Grænmetissúpa gegn flensu og kvefi
5 mínútna heilsuskot gegn kvefi og pestum
Dropi: Íslenskt hágæða lýsi

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!



