
Sítrónu og hungangs te
14th October 2025
Súkkulaðiklattar sem slá í gegn
20th November 2025
Sítrónu og hungangs te
14th October 2025
Súkkulaðiklattar sem slá í gegn
20th November 2025Í tilefni bleiku slaufunnar og bleika daginn núna 22.október langar mig að deila með ykkur þessari fallegu bleiku skál sem er bæði góð á bragðið og full af próteini.
Hún er einföld, próteinrík og einstaklega góð á bragðið. Fullkomin þegar þig langar í eitthvað ferskt og nærandi sem gefur orku og setur fallegan tón fyrir daginn. Þessi bleika skál er bæði létt og mettandi, og það er eitthvað svo ánægjulegt við að njóta hennar á rólegum morgni eða sem hressandi millimál yfir daginn.
Lesa einnig:
Bleikar bollakökur fyrir bleikan október
Bleikar uppskriftir fyrir bleikan október
Rauðrófusafi fyrir bleikan október
0

–
Bleika skálin
Innihald
300 g kotasæla
1 bolli jarðarber, fersk eða afþýdd
1-2 msk. hunang/hlynsíróp eða 3-4 dropar stevia
2–4 msk. sykurlaust múslí eða granóla að eigin vali
Aðferð
1. Setjið kotasæluna, jarðarberin og hlynsírópið í matvinnsluvél eða blandara og hrærið þar til blandan verður slétt og rjómakennd.
2. Berið fram með granóla og ferskum ávöxtum að eigin vali. Einnig er hægt að bæta við dökku súkkulaði fyrir auka sætindi.
Athugasemd
Einnig er hægt að nota grískt jógúrt eða skyr í staðin fyrir kotasælu.
–
Ef þú prófar skálina endilega deildu með okkur hvað þér finnst og ekki gleyma að tagga okkur á Instagram og Facebook!
–
Viltu fleiri einfaldar og hollar uppskriftir
–

–
Uppskriftabók Lifðu til fulls er loksins fáanleg aftur, nú sem rafbók sem þú færð senda beint á netfangið þitt.
Í bókinni finnur þú m.a. dásamlega morgunverði, millimál, hollar útgáfur af skyndibita, mexíkórétti og sektarlausum sætindum, ásamt ýmsum fróðleik eins og hvernig má skipta út sykur, hvað er gott að eiga í búrskápnum

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!



