
Bleik skál fyrir bleikan október
23rd October 2025
Sætkartöflumús með pekan hnetum
26th November 2025
Bleik skál fyrir bleikan október
23rd October 2025
Sætkartöflumús með pekan hnetum
26th November 2025Ég bíð fyrir framan ofninn þegar þessir súkkulaðibitaklattar eru að bakast til þess að passa að þeir verði dúnmjúkir að innan og fallega gylltir og stökkir að utan. Mér finnst nefnilega skipta miklu máli að ofbaka þá ekki.
Þeir taka ekki nema 8 mín í ofninum og útkoman er algjörlega sturluð.
–

ö,
Margir sem hafa smakkað þessa klatta horfa á mig og spyrja: Þetta getur ekki verið hollt?
En jú, kæru vinir, þessi uppskrift er án hveitis og unnins hvíts sykurs. Ef þú vilt er líka auðvelt að sleppa mjólkurvörum með því að nota vegan smjör, eins og ég geri sjálf.
Hér fyrir neðan er uppskriftin af þessum dásamlegu súkkulaðiklöttum sem eru eitt af mínum uppáhalds til að eiga til í kæli. Þeir eru ekki síðri daginn eftir og jafnvel eftir viku, ef þú nærð að geyma þá svo lengi. Fullkomnir yfir hátíðirnar eða á uppteknum dögum þegar þig langar að grípa í eitthvað gott og njóta augnabliksins.
.
Lesa einnig:
Uppáhalds konfektið mitt
Jólasmákökurnar mínar
Súkkulaði brownies með möndlusmjörkremi og poppuðu kínóa
–

l-
Súkkulaðiklattar með heslihnetum og höfrum!
Gefur u.þ.b. 14-17 kökur, fer eftir stærð.
½ bolli smjör (120 gr) við stofuhita (hefðbundið eða vegan smjör)
¾ bolli hrásykur eða kókospálmasykur (100 gr)
10 dropar stevia
1 egg
½ tsk. vanilludropar
1 1/4 bolli hafrar (100 gr) (tröllahafrar eða venjulegir)
1 bolli möndlumjöl (130g)
1/2 tsk. vínsteinslyftiduft
1/2 tsk. matarsódi
1/4 tsk. salt
100 g dökkt súkkulaði, smátt skorið
100 g af heslihnetum, saxaðar
–
1. Forhitið ofninn við 180 gráður
2. Ristið heslihnetur með því að setja þær á ofnskúffu með bökunarpappír og inní ofn í c.a 6-10 mín. Leyfið að kólna örlítið. Fjarlægið hýðið af hnetunum með því að taka nokkrar upp í einu og nudda saman með lófunum. Allt í góðu ef allt hýðið næst ekki fullkomlega af. Leggið hneturnar án hýðis á skurðarbretti og saxið niður eftir smekk, ég saxaði þær gróflega en einnig má saxa þær smátt. Geymið til hliðar. Einnig er hægt að prófa að nota heslihnetur sem keyptar eru saxaðar en mér finnst það gefa smákökum ákveðna dýpt að rista hneturnar fyrst
3. Setjið smjör og sætuefni í skál og hrærið vel með hrærivél eða handþeytara. Ef gleymist að láta smjörið þiðna við stofuhita þarf aðeins að hræra saman með höndum. Ég notaði vegan smjör en bæði gengur. Bætið egginu við ásamt vanilludropum og þeytið. Síðan bætið við höfrum, möndlumjöli, matarsóda, lyftidufti og salti og hrærið örlítið. Bætið svo við súkkulaði og hesilhnetum undir lokin og hrærið þar til það hefur dreift vel úr sér.
4. Setjið bökunarpappír á ofnplötu og skammtið matskeið af deiginu. Mótið smákökurnar með því að fletja kökurnar út, hafið pláss á milli hverrar því þær munu aðeins dreifa úr sér. Mér þykir best að gera nokkuð stórar kökur eins og klatta en sjálfsagt er hægt að gera smærri kökur og þá gæti þurft að minnka baksturstímann. Hægt er að hafa allar smákökurnar stórar eða minni eftir smekk svo bakist jafnt.
5. Bakið í 8-10 mín. Það getur verið munur á ofnum svo best er að fylgjast vel við fyrsta bakstur og taka þær út þegar þær eru gylltar að utan. Þú gætir haldið að smákökurnar séu ekki nægilega vel bakaðar en ef þær eru örlítið gylltar að utan halda þær áfram að bakast í smá tíma þegar þú tekur þær út. Leyfið smákökunum að kólna í allt að 20 mín og njótið.
–
Ég vona að þið prófið og njótið vel!
Látið vita í spjallinu hér að neðan hvernig smakkast.
Ekki gleyma svo að setja like á þessa færslu, deila með á samfélagsmiðlum og tagga @lifdutilfulls á Instagram ef þið prófið svo við getum séð kökurnar ykkar!
.
0
–
Nóvember tilboð lifðu til fulls!
Í tilefni 13 ára afmæli Lifðu til fulls eru öll námskeið á 30 – 70 prósent afslætti. Þú getur valið úr fjölbreyttum námskeiðum sem hjálpa þér að minnka sykurlöngun, bæta svefn, auka orku og byggja upp heilsuvenjur sem endast þá ættir þú að finna það námskeið sem hentar þér hér!.

Þú átt það skilið að taka þetta skref í átt að orkumeiri og heilbrigðari útgáfu af sjálfri þér. Tíminn er naumur, aðeins takmarkaðar komast að í hvert námskeið.
Finndu námskeið fyrir þig hér!

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!



