
Súkkulaðiklattar sem slá í gegn
20th November 2025
Súkkulaði-matcha stykki
2nd December 2025
Súkkulaðiklattar sem slá í gegn
20th November 2025
Súkkulaði-matcha stykki
2nd December 2025Í tilefni þess að þakkagjörðahátíðin eða “Thanksgiving” er á næsta leiti langaði mig að deila þessari æðislegu sætkartöflumús með ykkur. Hún er alltaf jafn góð og hentar bæði sem aðalréttur með ferskum salötum eða sem meðlæti með öðru.
Einhverra hluta vegna fer ég í sérstakt skap fyrir grasker og sætar kartöflur þegar fer að kólna og er þessi sætkartöflumús þá í einstöku uppáhaldi. Ég nota lífræna kókosmjólk frá Coop sem fæst í Nettó og gerir sætkartöflumúsina sérlega rjómkennda og girnilega. Hún er svo toppuð með ristuðum pecanhentum sem gefur stökka áferð og falleg útlit þegar hún er borin fram.
–
Lesa einnig
Súkkulaðiklattar sem slá í gegn
Hvernig ég skipti út sykri í jólabakstri
Kanilhjúpaðar jólamöndlur
0-

-.
Sætkartöflumús með ristuðum pekanhnetum
1 meðalstór elduð sætkartafla, afhýdd
2-4 msk kókosmjólk eða meira eftir smekk
1 tsk kókosolía
1/4 tsk salt
Krydd ( 1/8 tsk kanill, 1/8 tsk engifer, 1/8 tsk múskat)
1 tsk hlynsíróp eða hrár kókospálmanektar eða notið 2-4 dropa stevia (val)
1/3 bolli pecanhnetur, muldar
1. Eldið sætu kartöflurnar með því að sjóða þær í 20-25 mín eða þar til auðvelt er að stinga gafli í gegnum þær. Leyfið að kólna örlítið.
2. Hitið ofn við 180 gráður. Smyrjið eldfast mót með kókosolíu.
3. Hrærið saman öll innihaldsefni fyrir utan pecanhnetur í hrærivél, blandara eða skál með handþeytara þar til silkimjúkt. Dreifið kartöflublöndunni jafnt yfir eldfast mótið. Bakið í 20 mín, takið út, stráið pecanhnetum yfir og bakið í 20 mín til viðbót eða þar til pecanhneturnar eru stökkar. Einnig má rista pecanhneturnar úr olífuolíu, salti og hlynsírópi til að hafa þær sérstaklega sætar.
–
Ef þið prófið uppskriftina endilega deilið með mér og taggið mig á Instagram og Facebook. Mér finnst alltaf jafn skemmtilegt að sjá ykkar útgáfur og heyra hvernig hún heppnast.

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!



