Súkkulaði-matcha stykki

Sætkartöflumús með pekan hnetum

26th November 2025
Jólauppskriftir

3 hollari jólauppskriftir

9th December 2025

Sætkartöflumús með pekan hnetum

26th November 2025
Jólauppskriftir

3 hollari jólauppskriftir

9th December 2025
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Súkkulaði-matcha stykki

Súkkulaði-matcha

Yfir hátíðirnar er svo gott að eiga eitthvað einfalt og nærandi við höndina. Þessir súkkulaði-matcha bitar eru mjúkir, sætir og alveg ómótstæðilegir. Þeir eru gerðir úr einföldum hráefnum fullir af góðri næringu. Uppskriftin sem er ein af fjölmörgum ljúffengum uppskriftum úr hátíðarpakka 2.0 sem er núna á tilboði!

Lesa einnig:
Sætkartöflumús með pekan hnetum
Súkkulaðibita smákökur fyrir jólin
Hátíðarleg Karamelluostakaka


Mynd frá Jun&Tonic

Súkkulaði-matcha bitar

Botn:
1 bolli möndlumjöl
2 msk. kakóduft
2 msk. kókosolía
2 msk. hlynsýróp

Efra lag:
1 bolli kasjúhnetur lagðar í bleyti
¼ bolli kókosrjómi
2 msk. hlynsýróp
1 msk. matcha-duft
½ tsk. vanilludropar

1. Blandið öllu innihaldi fyrir botninn saman í skál þar til blandan verður mjúk og þrýstið blöndunni niður í form (um 20×20 cm) og geymið í kæli.

2. Maukið kasjúhnetur, kókosrjóma, hlynsýróp, matcha og vanillu saman þar til blandan verður slétt og mjúk og hellið yfir botninn.

3. Frystið í tvo tíma og skerið í bita áður en borið er fram.

Ef þú prófar þessa uppskrift, ekki hika við að tagga okkur á Instagram og Facebook, við elskum að heyra hvað ykkur finnst!

.

Viltu fleiri hugmyndir fyrir jólin?

Þú finnur fleiri jóla­uppskriftir í Hátíðarpakka 2.0, sem er nýr og spenanndi. Fullur af einföldum og bragðgóðum réttum. Hannaður til að hjálpa þér að upplifa jafnvægi og vellíðan án þess að fórna bragði og stemningu.

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *