
Súkkulaði-matcha stykki
2nd December 2025
Grænn drykkur, vænn og sterkur!
14th January 2026
Súkkulaði-matcha stykki
2nd December 2025
Grænn drykkur, vænn og sterkur!
14th January 2026Desember er mánuður þar sem mig langar í eitthvað smá sætt. Ég tók saman þrjár góðar og einfaldar uppskriftir sem ég geri reglulega á þessum árstíma, sérstaklega þegar ég vil hafa það huggulegt án þess að detta í hefðbundinn sykur og jólasmákökur.
,

–
Jólin eru tími gleði, góðra veitinga og samverustunda og fátt toppar ilminn af nýbökuðum smákökum. Þetta er uppskrift að jólasmákökum frá Sollu Eiríks. Þessar kökur eru fullkomnar fyrir hátíðarnar og henta vel fyrir þá sem vilja njóta veitinga á hollari hátt.
Solla Eiríks er konan á bak við Himneska hollustu, hún er þekkt fyrir fjölbreyttar og hollari uppskriftir sem gleðja bæði bragðlaukana og líkamann.
,

Súkkulaðibita smákökur
⅔ b kókosolía (eða vegan smjör)
1 bolli hrásykur
½ bolli möndlumjólk eða önnur mjólk
2 tsk vanilla
1 bolli spelt, fínt malað
1 bolli spelt, gróft malað
½ bolli kókosflögur
½ bolli kakó
1 tsk lyftiduft
1 tsk matarsódi
¼-½ tsk sjávarsalt
200g sykurlaust súkkulaði, saxað t.d frá Balance.
1. Setjið kókosolíu og kókospálmasykur í matvinnsluvél eða hrærivél og hrærið saman.
2. Bætið möndlumjólk og vanillu út í og blandið.
3. Blandið restinni af uppskriftinni saman og hrærið rólega út í.
4. Gott er að kæla deigið í ísskáp áður en kökurnar eru mótaðar, en það er ekki nauðsynlegt.
5. Mótið smákökur og setjið á bökunarpappír á bökunarplötu, hafið smá bil á milli því kökurnar breiða úr sér í ofninum. Þrýstið ofan á hverja köku með teskeið eða fingri.
6. Bakið við 190°C í 6-9 mín (aðeins misjafnt eftir ofnum og stærðinni á kökunum – fylgist bara með fyrstu umferð til að sjá hvað er passlega lengd).
7. Leyfið kökunum að kólna svolítið og stífna áður en þið smakkið. Kökurnar eru dásamlegar nýbakaðar.
–
Lesa einnig:
Súkkulaði-matcha stykki
Jóladagatal Lifðu Til Fulls
Súkkulaðiklattar sem slá í gegn
–
Þetta er uppáhalds afmæliskakan mín og geri ég hana á hverju ári: Þriggja laga terta með browniebotni, ostakökufyllingu og jarðaberjakremi!
Að sjálfsögðu er hún laus við unninn sykur, dásamlega holl og ljúffeng! Það vantar aldeilis ekki uppá sætindin í desember og kjörið er að breyta gömlum siðum til hins betra.
-.

Brownie með ostaköku og jarðaberjakremi
Súkkulaðibrownie:
2 bollar möndlur
1 1/2 bolli döðlur
1 bolli kókosmjöl
2 msk. kakó
salt
Ostakökukrem:
3 bollar kasjúhnetur (lagðar í bleyti í um það bil 1-2 klukkustundir)
3/4 bolli kreistur sítrónusafi
1/2 bolli hrár kókospálmanektar/hlynsíróp
1 tsk vanilludropar eða meira
3/4 bolli kókosolía (brædd í vatnsbaði)
Jarðaberjakrem:
1 bolli af ostakökukreminu
2 bollar jarðaber fersk (ef þið notið frosin er gott að afþýða)
1-2 msk kókosolía fljótandi
1tsk vanilludropar
1. Setjið öll hráefnin fyrir brownie-botninn í matvinnsluvél og hrærið. Þjappið niður í 23cm hringlaga smelluform eða ílangt sílikonform, ég notaði 22×8 cm form.
2. Gerið næst ostakökukrem með því að blanda öllu nema kókosolíu í matvinnsluvél eða blandara og vinna þar til silkimjúk áferð fæst. Bætið kókosolíu í fljótandi formi yfir að lokum. Takið 1 bolla af kreminu frá eða skiljið eftir í vélinni og hellið rest yfir kökuna. Geymið kökuna síðan í frysti í 2-4 klst eða þar til kremið hefur stífnað.
3. Á meðan má útbúa jarðaberjakrem með því að hræra öll hráefni saman út í það sem eftir var af ostakökukreminu og hella að lokum yfir. Kakan er svo geymd í frysti yfir nótt. Takið út klukkustund áður en hún er borin fram og skreytið.
–
Þar sem konfekt og sætindi munu skreyta hvert heimili þennan mánuð fannst mér við hæfi að deila uppskrift af mjög einföldum og ljúffengum marsipankonfektmolum!
Það er næstum lygilegt að þeir séu hollir og án nokkurs sykurs eða hveitis. Það fylgir þeim líka afar lítil fyrirhöfn þar sem ekki þarf að baka þá í ofni. Þeirra má virkilega njóta með góðri samvisku, sem er það besta!
-,

Marsipan Konfekt
Marsipan:
2 bollar lífrænar möndlur án hýðis, malaðar (500 ml)
4 msk. hlynsíróp eða hrár kókospálmanektar
1 msk. lífrænir vanilludropar
Súkkulaðikrem:
4 msk kakó
1/4 bolli kókosolía
4 dropar stevia
1. Til þess að falleg hvít áferð náist er mikilvægt að nota afhýddar möndlur. Ef þær fást ekki keyptar er auðvelt að leggja möndlur með hýði í bleyti í 8 klst eða yfir nóttu, skola svo af þeim, kreista hýðið af og þerra örlítið. Byrjið á að mala afhýddu möndlurnar í blandara eða kaffikvörn í fínt mjöl. Bætið sætugjafa og vanilludropum saman við þar til þétt marsipandeig myndast. Notið fingur til að mynda kúlur.
2. Útbúið súkkulaði með því að hræra öllu saman í blandara eða potti. Mikilvægt er að kókosolían sé í fljótandi formi hvort sem kókosolíukrukkan er lögð í heitt vatnsbað eða brædd í potti. Einnig má kaupa dökkt súkkulaði t.d sætað með steviu og bræða í potti.
3. Dýfið marsipankúlunum í súkkulaðið (ég nota skeið og fingur) og rúllið strax upp úr pistasíuhnetum eða kókosmjöli. Setjið á disk og geymið í kæli í hálftíma áður en þær eru borðaðar.
–
Ég vona að þið prófið þessar uppskriftir elsku vinir og hafið það huggulegt og hollt yfir jólin!
Látið vita í spjallinu ef þið ætlið að prófa og ef þið prófið, látið vita hvernig smakkst! Og ekki gleyma að deila með okkur á Facebook og Instagram.
–
,.
Viltu fleiri hugmyndir fyrir jólin?
Þú finnur fleiri jólauppskriftir í Hátíðartvennunni, sem samaneinar báða hátíðarpakkana með einföldum og bragðgóðum réttum. Til að hjálpa þér að upplifa jafnvægi og vellíðan án þess að fórna bragði og stemningu.


Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!



