Súkkulaðibita smákökur fyrir jólin

7 hlutir sem geta gerst þegar þú sleppir sykri

18th November 2024

Hinn fullkomni vegan jólaís

2nd December 2024

7 hlutir sem geta gerst þegar þú sleppir sykri

18th November 2024

Hinn fullkomni vegan jólaís

2nd December 2024
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Súkkulaðibita smákökur fyrir jólin

Jólin eru tími gleði, góðra veitinga og samverustunda og fátt toppar ilminn af nýbökuðum smákökum í eldhúsinu! Í dag deili ég með ykkur dásamlegri uppskrift að jólasmákökum frá Sollu Eiríks. Þessar kökur eru fullkomnar fyrir hátíðarnar og henta vel fyrir þá sem vilja njóta góðra veitinga á hollari hátt.

Solla Eiríks er konan á bak við Himneska hollustu, hún er þekkt fyrir fjölbreyttar og hollari uppskriftir sem gleðja bæði bragðlaukana og líkamann.
–

–

Súkkulaðibita smákökur

⅔ b kókosolía (eða vegan smjör)
1 bolli hrásykur
½ bolli möndlumjólk eða önnur mjólk
2 tsk vanilla
1 bolli spelt, fínt malað
1 bolli spelt, gróft malað
½ bolli kókosflögur
½ bolli kakó
1 tsk lyftiduft
1 tsk matarsódi
¼-½ tsk sjávarsalt
200g sykurlaust súkkulaði, saxað t.d frá Balance.
—
—

Lesa einnig:
Súkkulaði brownies með möndlusmjörkremi og poppuðu kínóa
Súkkulaðibitaklattar með heslíhnetum og höfrum
Jóla súkkulaði trufflur með lakkrís
—
–


1. Setjið kókosolíu og kókospálmasykur í matvinnsluvél eða hrærivél og hrærið saman.

2. Bætið möndlumjólk og vanillu út í og blandið. 

3. Blandið restinni af uppskriftinni saman og hrærið rólega út í.

4. Gott er að kæla deigið í ísskáp áður en kökurnar eru mótaðar, en það er ekki nauðsynlegt. 

5. Mótið smákökur og setjið á bökunarpappír á bökunarplötu, hafið smá bil á milli því kökurnar breiða úr sér í ofninum. Þrýstið ofan á hverja köku með teskeið eða fingri.

6. Bakið við 190°C í 6-9 mín (aðeins misjafnt eftir ofnum og stærðinni á kökunum – fylgist bara með fyrstu umferð til að sjá hvað er passlega lengd).

7. Leyfið kökunum að kólna svolítið og stífna áður en þið smakkið. Kökurnar eru dásamlegar nýbakaðar. 

—

Ef þér líkaði þessi færsla, endilega deildu henni með vinkonu eða öðrum sem þú heldur að muni gagnast.

Mundu svo að taggaðu okkur á Instagram @lifdutilfulls – við elskum að sjá ykkar útfærslur!

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *