
Ókeypis rafbók
Inniheldur uppskriftir af sykurlausum eftirréttum sem allir elska


Ef það er eitthvað sem einkennir hátíðirnar þá er það smákökur og konfekt!
Deili ég því með þér uppskriftum af tveim uppáhalds konfektmolum mínum sem mér finnst ómissandi að eiga til, Syndsamlegar Súkkulaði trufflur með lakkrís og Hollt Marsipan Konfekt….Hlakkaðu til að smakka!
Þessir konfektmolar krefjast ekki baksturs sem er afar þægilegt og má njóta sektarlaust enda ekki með neinu hveiti eða hvítum sykri.
Í marsipanmolana hér að neðan býrð þú til marsipan með hreinum hráefnum, þá notarðu nóg af lífrænum vanilludropum og sætugjafa frá hlynsírópi.
En þessar trufflur… Hvað get ég sagt, þær eru trufflaðar! Allir sem hafa smakkað trúa ekki að þetta skyldi geta kallast hollt og sykurlaust. Það mætti líkja trufflunum við hráfæðisútgáfu af þrist.
Marsipan
2 bollar lífrænar möndlur án hýðis, malaðar (500 ml)
4 msk hlynsíróp eða hrár kókospálmanektar
1 msk lífrænir vanilludropar
Súkkulaðikrem:
4 msk kakó
1/4 bolli kókosolía
4 dropar stevia
Til þess að falleg hvít áferð náist er mikilvægt að nota afhýddar m
öndlur. Ef þær fást ekki keyptar er auðvelt að leggja möndlur með hýði í bleyti í 8 klst eða yfir nóttu, skola svo af þeim, kreista hýðið af og þerra örlítið.
1. Byrjið á að mala afhýddu möndlurnar í blandara eða kaffikvörn í fínt mjöl. Bætið sætugjafa og vanilludropum saman við þar til þétt marsipandeig myndast. Notið fingur til að mynda kúlur.
2. Útbúið súkkulaði með því að hræra öllu saman í blandara eða potti. Mikilvægt er að kókosolían sé í fljótandi formi hvort sem kókosolíukrukkan er lögð í heitt vatnsbað eða brædd í potti. Einnig má kaupa dökkt súkkulaði t.d sætað með steviu og bræða í potti.
3. Dýfið marsipankúlunum í súkkulaðið (ég nota skeið og fingur) og rúllið strax upp úr pistasíuhnetum eða kókosmjöli. Setjið á disk og geymið í kæli í hálftíma áður en þær eru borðaðar.
Uppskrift gefur 35-40 trufflur, fer eftir stærð
Súkkulaði trufflurnar:
1 bolli (130 gr) möndlur
1 ¼ bolli (150 gr) mjúkar döðlur
⅛ tsk vanilluduft eða 1 tsk vanilludropar
salt á hnífsoddi
smá vatn
–
¼ bolli (40 gr) kakó
rétt undir ¼ bolla (60 gr) kakósmjör
Marsipan lakkrísinn:
1/4 bolli afhýddar möndlur (ég notaði frá Rapunzel)
1 ½ msk hlynsíróp
⅛ tsk vanilluduft eða ¼ tsk vanilludropar
1 tsk hreint lakkrís duft (t.d gróft duft frá Lakrids by Johan Bülow sem fæst í epal)
10 klípur himalaya salt eða í kringum 1 tsk
¼ tsk activated charcoal powder (valfjálst að nota þar sem þetta bætir bara svarta litinn)
Súkkulaðihjúpur:
75% dökkt súkkulaði sætað með kókospálmasykri eða annað náttúrulegt súkkulaði (t.d frá vivani)
Álfaduft:
pistasíur, túrmerik og sítrónubörkur
frostþurrkuð jarðaber
pistasíuhnetur og matcha duft
100% fínt lakkrís duft (t.d fínt frá Lakrids by Johan Bülow sem fæst í Epal)
kókosmjöl eða kókoshveiti
hraun útgáfa með kakónibbum
Kvöldið áður:
Ef þið kaupið afhýddar möndlur fyrir lakkrísinn er óþarfi að leggja þær í bleyti. Ef þið finnið ekki afhýddar möndlur má leggja venjulegar möndlur í bleyti í 8 klst eða yfir nóttu, og taka hýðið síðan af þeim.
1. Byrjið á að leggja kakósmjör í vatnsbað svo það sé klárt fyrir trufflurnar
2. Útbúið lakkrísinn með því að mala afhýddu möndlurnar í blandara eða kaffikvörn í afar fínt mjöl. Bætið við restinni af hráefnum og vinnið þar til blandan myndar deigáferð. Setjið í skál og geymið í kæli á meðan þið útbúið súkkulaðitrufflurnar.
3. Fyrir súkkulaði trufflurnar má byrja á að mala möndlur í afar fínt mjöl fyrst, svipað og gert var með lakkrísnum. Bætið þá döðlum, vanillu og salti þar til silkimjúkt og kekkjalaust deig myndast. Bætið útí örlitlu vatni ef þið þurfið, c.a 1-2 msk. Kakó og brætt kakósmjör er næst bætt útí og hrært örlítið. Geymið í skál og kælið aðeins.
4. Takið næst 1 tsk af súkkulaðideiginu og þekjið út flatt í lófa, myndið litla kúlu af lakkrísdeiginu (c.a ¼ tsk að stærð) og setjið ofan á súkkulaðideigið, rúllið upp og leggið til hliðar. Kælið í c.a. klst eða yfir nóttu.
5. Bræðið súkkulaði og gerið duftin ykkar klár ef þið notið þau.
6. Leggið bökunarpappír á eldhúsborðið. Hafið brædda súkkulaðið til hliðar og duft í skálum. Dýfið súkkulaði trufflunni í súkkulaðið, veiðið uppúr með skeið og rúllið uppúr því dufti sem þið viljið. Leggið á bakka með hreinum bökunarpappír og setjið það síðan í kæli eða frysti. Kælið í amk 1-2 klst áður en borið er fram!
Ég vona að þú prófir!
Smelltu HÉR til að vera með, það verður jólastemning og þú munt enda kvöldið full af fróðleik!
Heilsa og hamingja,