Matcha sumarskál
7 einföld hreinsunarráð
7th April 2026
Kjúklingabaunasalat sem allir elska
5th May 2026
7 einföld hreinsunarráð
7th April 2026
Kjúklingabaunasalat sem allir elska
5th May 2026
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Matcha sumarskál

Nú þegar dagarnir lengjast og sólin fer að láta sjá sig meira finnst mér fátt betra en að byrja morguninn á litríkri og nærandi morgunskál. Skál sem er ekki bara falleg heldur lætur mér líka líða vel.
Þessi matcha sumarskál er ein af mínum uppáhalds á þessum tíma árs. Hún er fallega græn, fersk og full af næringu sem gefur mjúka og jafna orku inn í daginn. Hún minnir mig smá á vorið og gleðina sem fylgir því. 



Hvað er matcha?

Matcha er fínmalað grænt te sem hefur verið notað í Japan í aldir. Þegar þú drekkur matcha ertu í raun að drekka teblöðin sjálf í duftformi, ekki bara seyðið eins og í hefðbundnu tei. Þess vegna fær líkaminn meiri næringarefni í hverjum sopa.

Það er sérstaklega ríkt af L-theanine, amínósýru sem hefur róandi áhrif á taugakerfið og styður við einbeitingu. Í bland við náttúrulegt koffín í matcha myndast jafnvægi sem gefur hæga og stöðuga orku oft lýst sem „hreinni og meðvitaðri orku“ þar sem þú finnur fyrir skýrleika án þess að verða stressuð/aður eða orkufall síðar.

Auk þess er matcha mjög ríkt af andoxunarefnum, sérstaklega EGCG (epigallocatechin gallate) sem hefur verið tengt við ýmsa heilsufarslega kosti, þar á meðal stuðning við hjartaheilsu, efnaskipti og minnkun bólgu í líkamanum.

Lesa einnig:
Pitaya sumarskál full af orku
3 skálar fyrir sumarið
Granola með kókosflögum og skógarberjum

Mynd er í eigu Jade Leaf

Matcha sumarskálin:

  • 1 frosinn banani
  • 1/2 bolli mango (frosið eða ferskt)
  • 1/2 bolli spínat
  • 1 tsk matcha-duft
  • 1/2–1 bolli möndlumjólk (eða önnur mjólk)
  • 1 tsk hunang eða hlynsíróp (val)
  • 1/2 tsk vanilludropar (val)

Til að toppa skálina (hugmyndir)

  • Kiwi sneiðar
  • Jarðarber eða hindber
  • Granóla
  • Kókosflögur

1. Settu öll hráefnin í blandara.
2. Blandaðu þar til áferðin er þykk og kremuð (bættu við meiri mjólk ef þarf).
3. Helltu í skál og skreyttu með kiwi, berjum, granaóla, kókosflögum eða öðru að eigin vali.


Njóttu vel og gleðilegt sumar.


Deildu þinni útgáfu af matcha skálinni á Instagram og mundu að merkja okkur. Við elskum að sjá þegar þið gerið uppskriftanna okkar. Fylgstu með okkur á Instagram og Facebook fyrir fleiri næringarríkar uppskriftir, innblástur og hugleiðingar um heilsu og vellíðan.

Þreytt á öfgum og orkuleysi?

Ég er að halda nýjan ókeypis fyrirlestur í beinni, þar sem ég deili 5 einföldum og sannreyndum skrefum sem hjálpuðu mér að: Losna við orkuleysi og bjúg, léttast á náttúrulegan hátt og finna jafnvægi með mataræðið. 

Ef þú þreytt á endalausum öfgum og skyndilausnum, þá er þessi fyrirlestur fyrir þig. 

Engin upptaka verður send, tryggðu þér þitt pláss í dag 👉 Smelltu hér til að skrá þig! 

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *