Kjúklingabaunasalat sem allir elska
Matcha sumarskál
20th April 2026
Safaríkar kjúklingabringur með rósmarín og smjöri
19th May 2026
Matcha sumarskál
20th April 2026
Safaríkar kjúklingabringur með rósmarín og smjöri
19th May 2026
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Kjúklingabaunasalat sem allir elska

Eftir að ég bjó þetta kjúklingabaunasalat fyrst til hef ég gert það aftur og aftur en breyti alltaf aðeins til. Það er einmitt það sem ég elska við það. Þetta er eitt af því sem þú grípur í þegar þú nennir ekki elda, en vilt samt eitthvað gott, næringarríkt og einfalt.

Sagan á bak við salatið er líka svolítið skemmtileg.

Það varð til síðasta vor, daginn sem rafmagnið fór af stórum hluta Spánar og víðar í Evrópu. Við hjónin vorum stödd á Spáni og höfðum pantað borð á fallegum veitingastað við strandlengjuna í Altea.

Þegar leið á daginn varð allt skyndilega rafmagnslaust. Veitingastaðir og verslanir lokuðu þar sem það var hvorki hægt að elda mat né afgreiða. Sem betur fer vorum við að gista hjá vinkonu minni.

Við opnuðum ísskáp sem var nánast tómur, kveiktum á kertum og fórum að tína saman það sem við fundum úr ísskápnum.

Úr því varð þetta dásamlega salat. Síðan þá hef ég gert það aftur og aftur, sérstaklega á kvöldum þegar ég vil hafa hlutina einfalda. Ég nota það sem ég á til hverju sinni og það klikkar aldrei.


Lestu einnig:
Sumarleg jógúrtskál með blárri spirulínu
3 Fersk sumarsalöt
Pitaya sumarskál full af orku

Mynd í eigu Lisashealthykitchen

Kjúklingabaunasalat sem allir elska

1 dós kjúklingabaunir c.a 400 gr

½ kúrbítur, skorin smátt

2 gulrætur, afhýddar og skornar í litla teninga

1 tómatur eða nokkrir litlir, skornir eftir smekk

½ sítróna

Salt og pipar eftir smekk

Fetaostur eftir smekk*

½ avocado

Borið fram með salati og hrískökum

—-

1.  Skolið kjúklingabaunir með fersku vatni og setjið í skál.

2.  Skolið af grænmeti og skerið eins og ykkur lystir. Kreistið sítrónu yfir og kryddið með salt og pipar. Bætið við fetaosti og hrærið saman með tveimur skeiðum.

3. Skerið avokadó í sneiðar eða teninga og bætið við ofan á salatið áður en borið fram. Einnig er gott að setja ferskar kryddjurtir yfir.

4. Berið fram með fersku salti eða/og hrískökum. Njótið.

b
Athugasemdir:

Ég er mjög hrifin af því að kaupa grískan fetakubb og skera eða útbúa minn eigin fetaost (sjá hér)

Ef þessi saga kenndi mér eitthvða, þá er það að segja aldrei „það er ekkert til“ heldur nýta það sem er til á heimilinu.

Næringarrík máltíð þarf ekki að innihalda milljón hráefni né allt að vera ferskt.
Það má alveg taka það sem er til í ísskápnum og setja saman einfalda, góða máltíð.
Láttu vita í spjallið ef þú hefur einhvern tímann skapað eitthvað girnilegt úr ísskáp sem var með nær engu. 

Ef þú prófar salatið ekki vera feiminn að deila með því að tagga okkur í story hjá þér á Facebook eða Instagram.

Við elskum að sjá ykkar útfærslur

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *