Safaríkar kjúklingabringur með rósmarín og smjöri
Kjúklingabaunasalat sem allir elska
5th May 2026
32 kílóum léttari, verkjalaus og full af lífsgleði
15th June 2026
Kjúklingabaunasalat sem allir elska
5th May 2026
32 kílóum léttari, verkjalaus og full af lífsgleði
15th June 2026
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Safaríkar kjúklingabringur með rósmarín og smjöri

Lengi vel borðaði ég varla kjúkling.
Mér fannst hann oft verða þurr, bragðlítill og bara ekkert sérstaklega spennandi…

Þangað til ég prófaði þessa uppskrift.

Síðan þá geri ég hana hana aftur og aftur og hún klikkar aldrei.
Útkoman er alltaf safaríkur, mjúkur og ótrúlega bragðgóður kjúklingur sem öllum finnst góður.

Leyndarmálið er einfaldara en þú heldur.

Áður en kjúklingurinn er eldaður legg ég hann í saltpækil (e. salt water brine). Það hljómar kannski flókið en er í raun eitt auðveldasta trikkið sem ég hef lært í eldhúsinu.

Hvað þýðir að leggja kjöt í saltpækil?

Þú blandar einfaldlega vatni og sjávarsalti saman í skál og leyfir kjúklingnum að liggja í blöndunni í smá stund áður en hann er eldaður. Þetta hjálpar kjötinu að halda raka og gerir það ótrúlega mjúkt og safaríkt.

Ég er að segja þér það, þetta skiptir öllu og útkoman er mjúkur og safaríkur kjúklingur í hvert einasta skipti.

Að sjálfsögðu er hægt að nota þessa aðferð með alls konar kjúklingauppskriftum, en þessi rósmarín og smjör marinering er klárlega í miklu uppáhaldi hjá mér.

Uppskriftin er einföld, þægileg og fullkomin bæði á grillið eða pönnuna. Ég geri oft extra mikið svo ég eigi afgang í hádeginu daginn eftir.


Lesa einnig: 
Holl Grillsósa
Fyllt sæt kartafla með hvítlaukssóu
Vegan burger með “kokteilsósu” og sætkartöflufrönskum


Fullkomin rósmarín smjör kjúklingur


3-4 kjúklingabringur c.a 1 900 gr pakki

3 bollar Vatn

1-3 msk salt

Rósmarín og smjörs marinering

3-4 msk smjör (1 msk fyrir hverja bringu)

2 tsk hunang 

5 hvítlauksgeirar

2-4 msk Fersk rósmarín smátt skorin

Salt og pipar eftir smekk

½ tsk papríkuduft

Undirbúningur

1. Fjarlægið kjúkling úr umbúðum og skerðu hverja bringu til helminga eftir endilöngur. Þá eldast þær jafnari og hraðar.

2. Settu vatn í stóra skál c.a 4 bollar (1 líter) og bætið við 2-3 msk af salti. Hrærðu örlítið þar til saltið leysist upp. Leggðu kjúklingabringurnar í skálina og geymdu í kæli í að minnsta kosti 1 klukkustund. Ef þú lætur hann liggja lengur er gott að minnka aðeins saltmagnið.

Uppskrift

1. Taktu kjúklingin úr kæli um 30 mínútum áður en hann er eldaður svo hann nái stofuhita. Þerraðu bringurnar vel með eldhúspappír og settu í hreina skál.

2.  Bræddu smjör og hunang saman við lágan hita í litlum potti. Hrærðu reglulega og slökktu undir þegar blandan hefur bráðnað saman.  

3. Saxaðu rósmarín smátt og pressaðu hvítlaukinn. Settu út í smjörblönduna ásamt kryddunum og helltu síðan yfir kjúklinginn.


4. Mér finnst langbest að grilla kjúklinginn. Þegar er grillið orðið þokkalega heitt eru bringunar eldaðar í c.a 15-20 mín. Þar sem marineringin inniheldur smjör gta komið smá logar á grillinu og því gott að fylgjast með.

Einnig er hægt að brúna bringurnar á heitri pönnu í 2–3 mínútur á hvorri hlið og klára þær síðan í ofni við 200°C þar til kjarnhiti nær 73–74°C.

Ekki gleyma að skeiða smjörinu reglulega yfir kjúklinginn meðan hann eldast til að halda honum extra safaríkum.

Njóttu vel.

Athugasemdir:

Ég hef keypt kjúklingabringur frá Holta eða Ali sem er vottað 100% og án viðbætts sykurs eða annara óæskilega efna.

Mér finnst dásamlegt að borða þennan kjúkling með ofnbökuðu grænmeti mínu hér.

Settu í spjallið ef þú hefur einhvern tímann prófað að leggja kjöt í salt-vatn og hvernig hvort þú hafir fundið mun? 

Ef þú prófar endilega taggaðu okkur á Instagram  lifdutilfuls. Við elskum að heyra frá ykkur og sjá ykkar girnilegu útfærlsur!



Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *