32 kílóum léttari, verkjalaus og full af lífsgleði
Safaríkar kjúklingabringur með rósmarín og smjöri
19th May 2026
Salat sem kemur á óvart
22nd June 2026
Safaríkar kjúklingabringur með rósmarín og smjöri
19th May 2026
Salat sem kemur á óvart
22nd June 2026
Show all
Deildu á facebook
Facebook

32 kílóum léttari, verkjalaus og full af lífsgleði

Það er alltaf jafn hressandi að lesa góða árangurssögu en saga Elínar Óskar Óskarsdóttur er eitthvað meira en það. Þetta er saga um konu sem missti sjálfa sig um tíma, röddina, heilsuna, orkuna og sjálfstraustið en fann sig aftur.

Elín er óperusöngkona, söngkennari og kórstjóri. Hún hefur alla tíð verið hress og kát, notið lífsins og náð góðum árangri í leik og starfi. En árið 2015 breyttist allt. Næstu sex árin glímdi hún við verki, þreytu, heilaþoku og þyngdaraukningu sem virtist enginn endir á.

Í dag er Elín 32 kílóum léttari, full af orku og lífsgleði og í febrúar síðastliðnum steig hún aftur á svið í fyrsta skipti eftir 10 ára hlé.

Við erum afar stolt af að deila sögu hennar og vonum að hún veiti þér innblástur til að trúa á sjálfa þig og setja heilsuna í fyrsta sæti.


„Ég þekkti mig ekki orðið… hvað þá aðrir”

Elín lýsir árinu 2015 sem þeim tímapunkti þegar allt fór að breytast. Úr því að vera orkumikil og lífsglöð kona fann hún sig skyndilega í aðstæðum sem hún þekkti ekki.

Læknar greindu hana með vefjagigt og sögðu henni að læra að lifa með því. Næstu sex árin glímdi hún við verki um allan líkamann, lífsleiða, heilaþoku og þyngdaraukningu. Hún missti jafnvel söngröddina sem hafði verið stór hluti af hennar lífi og starfsframa.

Síðan kom vendipunkturinn.

Baráttukonan í henni gafst ekki upp og hún leitaði frekari svara. Þegar hún komst loks til kvensjúkdómalæknis kom í ljós að estrógenmagnið hennar var orðið mjög lágt. Hún hóf meðferð með Estrogel og smám saman fóru verkirnir að minnka, heilaþokan hvarf og orkan fór að snúa aftur.


„Ég var búin að reyna allt en þyngdin sat eftir”

Þrátt fyrir að heilsan væri farin að batna stóð eitt stórt verkefni eftir.

Þyngdin sem hafði safnast upp á veikindatímanum vildi ekki fara. Elín hafði prófað ýmsar leiðir en fann að hún þyrfti meira en bara mataræðisráð. Hún þurfti stuðning, aðhald og leiðsögn.

„Ég yrði að ná af mér ótal kílóum og sá að ég þyrfti aðhald og hjálp frá fagfólki,“ segir hún.

Hún ákvað því að skrá sig í Betri leið hjá Lifðu til fulls og hóf samstarf með heilsumarkþjálfa.

„Það var Lifðu til fulls sem hjálpaði mér að verða aftur ég sjálf”

Í Betri leið fékk Elín sérsniða áætlun sem var sniðin að hennar þörfum og markmiðum.

Á reglulegum Zoom-fundum með heilsumarkþjálfanum sínum fékk hún stuðning, leiðsögn og aðhald. Hún lærði að byggja upp nýjar venjur og nærast á mat sem bæði bragðast vel og styður við góða heilsu.

Fyrir Elínu snerist þetta ekki um svelti eða skyndilausnir heldur um að skapa lífsstíl sem hún gat haldið til lengri tíma.

Lesa einnig:
16 kílóum léttari og uppgötvaði leyndarmálið að hinni fullkomnu húð!
11 kílóum léttari, sjálfsöruggari og sterkari á 30 dögum : Árangurssaga Guðrúnar
Árangurssaga Þorgerðar : Aldrei of seint að breyta um lífsstíl

„Ég hef misst 32 kg á 10 mánuðum”

Árangurinn lét ekki á sér standa. Á tíu mánuðum missti Elín 32 kíló en það sem skiptir hana mestu máli er ekki talan á vigtinni heldur hvernig henni líður í dag.

Verkirnir eru horfnir, heilaþokan hefur ekki komið aftur og orkan sem hafði verið fjarri í mörg ár er komin til baka. Hún upplifir meiri lífsgleði, meira sjálfstraust og finnst hún loksins hafa endurheimt líf sitt.

En kannski er stærsti sigurinn af öllum sá að söngröddin hennar er komin aftur. Röddin sem hún óttaðist að hún hefði misst fyrir fullt og allt er í dag sterkari en nokkru sinni fyrr og Elín segir hana jafnvel betri en hún hefur verið í áratugi.

Þann 22. febrúar 2025 stóð hún aftur á sviði eftir tíu ára hlé og hélt endurkomutónleika í Langholtskirkju. Fyrir Elínu var það meira en tónleikar það var staðfesting á því hversu langt hún hafði náð á sinni vegferð og augnablik sem hún hefði vart þorað að dreyma um nokkrum árum fyrr.

Í lokin spyrjum við Elínu Ósk hvað hún myndi segja við þá sem eru að íhuga að skrá sig

„Skráðu þig. Þær hjá Lifðu til fulls vita hvað þær eru að gera. Við erum öll með mismunandi þarfir og þær hjálpa hverjum og einum að finna leið sem hentar. Fyrir mig hefur þetta breytt lífi mínu til hins betra. Ekki hika.“

Þráir þú nýjan lífsstíl, sjálfstraust og betri líðan? 


Þá ertu á réttum stað og núna er tíminn til að setja heilsuna í forgang.

Við eigum örfá pláss laus í Betri leið okkar á þessu ári þar sem þú vinnur náið með heilsumarkþjálfa til þess að komast að því hvað virkar fyrir þig og setja af stað lífsstíll plan í mataræði, hreyfing, bætiefnum og hugarvinnu sem skilar þér árangri til frambúðar.

Bókaðu ókeypis 15 mín símtal hér og við förum saman yfir þína heilsu og skoðum hvað við getum gert svo að þú náir þínum markmiðum 2026.

Enginn binding fylgir símtalinu. Takmörkuð pláss laus.

Þetta er þitt tækifæri. Þú ert þess virði og þú ERT tilbúin!

Byrjaðu breytinguna sem þú þráir að sjá með ókeypis 15 mín símtali.

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *