Salat sem kemur á óvart
32 kílóum léttari, verkjalaus og full af lífsgleði
15th June 2026
Einfalt og hollt rabarbarapæ með höfrum og kanil
22nd July 2026
32 kílóum léttari, verkjalaus og full af lífsgleði
15th June 2026
Einfalt og hollt rabarbarapæ með höfrum og kanil
22nd July 2026
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Salat sem kemur á óvart

Þetta salat er eitt af mínum uppáhalds þessa dagana. Það tekur innan við 15 mínútur að útbúa, er stútfullt af næringu og hentar fullkomlega sem fljótlegur hádegismatur eða léttur kvöldmatur.

Það besta er líka hversu sveigjanlegt það er. Þú getur oft notað bara það sem er til í ísskápnum. Stundum borða ég það með fersku grænmeti, stundum með kotasælu og súrdeigsbrauði.

Eitt af lykilhráefnunum í salatinu eru sardínur sem eru einstaklega ríkar af omega-3 fitusýrum. Þær styðja meðal annars við rakastig húðarinnar, geta dregið úr bólgum og eru taldar einn af þeim næringarþáttum sem geta stuðlað að heilbrigðum ljóma húðarinnar.

Ef þú hefur ekki prófað sardínur lengi gæti þetta salat komið þér skemmtilega á óvart.



Af hverju sardínur?

Sardínur eru eitt næringarríkasta matvæli sem við getum borðað. Þær eru náttúrulega ríkar af omega-3 fitusýrum, próteini, kalsíum, D-vítamíni og B12, blanda sem styður ekki bara við húðina heldur líka hjartaheilsu, bein og taugakerfið.

Það sem gerir sardínur sérstaklega áhugaverðar er að omega-3 fitusýrurnar í þeim eru af gerðinni EPA og DHA — þ.e. í því formi sem líkaminn getur nýtt sér beint. Það er stór munur frá plöntu-omega (eins og úr hörfræjum), sem líkaminn þarf fyrst að umbreyta.

Rannsóknir benda til þess að regluleg neysla á þessum fitusýrum geti stutt við betra rakastig húðarinnar, dregið úr bólgum og jafnvel haft áhrif á fyrstu merki öldrunar.

Lesa einnig:
Matcha sumarskál full af orku
3 skálar fyrir sumarið
Grillaður þorskur með granateplasalsa og hvítlaukssósu

Myndir eru í eigu dontskipthecookie.com

Sardínusalat

Innihald (2 skammtar)

  • 1 dós sardínur í ólífuolíu eða vatni
  • 1 avókadó
  • 1 msk rjómaostur eða Grískt jógúrt
  • 1 tsk dijon-sinnep
  • 1 msk sítrónusafi
  • 1/4 rauðlaukur, fínt saxaður
  • Handfylli af ferskri steinselju eða dilli
  • Salt og pipar eftir smekk
  • Ólífuolía yfir

Til að bera fram

  • Agúrkusneiðar (val)
  • Kirsuberjatómatar (val)
  • Súrkál (val)
  • Kotasæla (val )
  • Súrdeigsbrauð (val)

Aðferð

1. Stappaðu sardínurnar létt niður með gaffli í skál.
Bættu avókadóinu út í og blandaðu saman þar til áferðin verður mjúk og kremuð.

2. Hrærðu síðan saman sinnepi, sítrónusafa, rauðlauk og kryddjurtum og blandaðu saman við. Smakkaðu til með salti og pipar og settu smá ólífuolíu yfir.

3. Berðu fram með agúrku, súrkáli og tómötum. Njóttu.

Athugasemdir:
Mér finnst einnig gott að bæta við kotasælu og súrdeigsbrauði til að borða með.



Deildu þinni útgáfu af salatinu á Instagram og mundu að merkja okkur. Við elskum að sjá þegar þið gerið uppskriftanna okkar. Fylgstu með okkur á Instagram og Facebook fyrir fleiri næringarríkar uppskriftir, innblástur og hugleiðingar um heilsu og vellíðan.

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *