Salat sem kemur á óvart
22nd June 2026
3 einföld grillspjót sem slá alltaf í gegn
27th July 2026Salat sem kemur á óvart
22nd June 2026
3 einföld grillspjót sem slá alltaf í gegn
27th July 2026Rabarbara tímabilið er eitt það skemmtilegasta á sumrin. Ef þú átt enn rabarbara í garðinum eða hefur komist yfir ferskan rabarbara er tilvalið að nýta hann í þessa einföldu og ljúffengu uppskrift.
—

—
Þó að rabarbari sé oft notaður í kökur og eftirrétti sem innihalda töluvert magn af sykri, þá er vel hægt að njóta hans á hollari hátt. Rabarbari er náttúrulega trefjaríkur, inniheldur andoxunarefni og gefur ferskt og skemmtilegt bragð sem passar einstaklega vel með kanil og höfrum.
Ef þú átt rabarbara í garðinum þá mæli ég með að nýta tækifærið og prófa þessa einföldu útgáfu af rabarbarapæ án hvíts sykurs. Fullkomið sem helgarnammi, eftirréttur eða með kaffibollanum úti í sólinni (þegar hún lætur sjá sig).
–
—
Lesa einnig:
Bolludagsbollur með kókosrjóma
Hreinsandi gulrótarmúffur sem hafa aldrei farið eins hratt!
Hráfæðis snickers sem allir elska
—

—
Rababarapæ
Fylling
500–600 g rabarbari, skorinn í bita
1–2 msk hunang eða hlynsíróp
1 tsk kanill
1 tsk vanilludropar
1 msk kartöflumjöl eða maíssterkja
Mulningur
2 dl haframjöl
1 dl möndlumjöl eða saxaðar möndlur
2 msk kókosolía eða smjör
1–2 msk hunang eða hlynsíróp
Örlítið salt
–
–
1. Hitið ofninn í 180°C.
2. Setjið rabarbarann í eldfast mót og blandið saman við hunang, kanil, vanillu og kartöflumjöl.
3. Blandið öllum hráefnum fyrir mulninginn saman í skál þar til þau hafa blandast vel.
4. Dreifið mulningnum jafnt yfir rabarbarann.
5. Bakið í 30–35 mínútur eða þar til toppurinn er orðinn fallega gylltur og rabarbarinn mjúkur.
6. Leyfið pæinu að standa í nokkrar mínútur áður en það er borið fram.
–
Það þarf ekki alltaf mikið til að njóta sumarsins. Stundum er nóg að nýta það sem er í árstíð hverju sinni og útbúa eitthvað einfalt og gott úr fersku hráefni.
Rabarbarinn er sannkölluð sumargjöf sem vert er að nýta á meðan tímabilið stendur yfir. Við vonum að þessi uppskrift verði til þess að þú njótir hans á nýjan og næringarríkari hátt.
Fyrir extra ljúfa útgáfu mælum við með að bera pæið fram með þeyttum kókosrjóma eða grískri jógúrt.
—
–
–
Láttu okkur vita í athugasemdum hvort þú prófar þetta hollara rabarbarapæ og hvernig þér fannst það smakkast!
Ef þú átt þína eigin uppáhalds leið til að nota rabarbara væri líka gaman að heyra hana.
Ekki gleyma að tagga okkur á Instagram ef þú prófar uppskriftina við elskum að sjá ykkar útfærslur og hvernig þið njótið sumarsins í eldhúsinu.
—

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!



