3 einföld grillspjót sem slá alltaf í gegn

Einfalt og hollt rabarbarapæ með höfrum og kanil

22nd July 2026

Kefir: Allt sem þú þarft að vita

11th August 2026

Einfalt og hollt rabarbarapæ með höfrum og kanil

22nd July 2026

Kefir: Allt sem þú þarft að vita

11th August 2026
Show all
Deildu á facebook
Facebook

3 einföld grillspjót sem slá alltaf í gegn

Þegar grilltímabilið er í fullum gangi þarf maturinn ekki bara að vera hamborgarar og pylsur. Með nokkrum einföldum hráefnum getur þú útbúið litríkan og bragðgóðan mat sem allri fjölskyldunni finnst góður.

Ég gríp oft í grillspjót þegar mig langar í einfaldan kvöldmat. Það tekur stuttan tíma að undirbúa þau, auðvelt er að laga þau að því sem er til í ísskápnum og þau henta jafnt í grillveislur og róleg kvöld heima.

Í þessari færslu deili ég þremur uppáhalds grillspjót hugmyndum, kjúklingaspjót, fiskispjót og grænmetisspjót. Þær eru einfaldar, bragðgóðar og fullkomnar þegar þig langar í ferskan og litríkan mat af grillinu.

–

–
Sítrónu- og hvítlaukskjúklingaspjót

500 g kjúklingabringur, skornar í bita
1 rauð paprika
1 gul paprika
1 rauðlaukur
2 msk ólífuolía
Safi úr 1 sítrónu
2 hvítlauksrif, pressuð
1 tsk oregano
1/2 tsk sjávarsalt

1. Blandið saman ólífuolíu, sítrónusafa, hvítlauk, oregano, salti og pipar.

2. Veltið kjúklingabitunum upp úr marineringunni og látið standa í að minnsta kosti 30 mínútur.

3. Þræðið kjúkling, papriku og rauðlauk til skiptis á grillspjót.

4. Grillið í 10–12 mínútur eða þar til kjúklingurinn er fulleldaður.
–

–
Lesa einnig:
Grillaður kjúklingur með sítrónu og salati
8 hollar grill uppskriftir
Holl grillsósa
–
–
–

–
Sítrónu- og kryddjurtaspjót með hvítum fiski

500 g þorskur, ýsa eða annar hvítur fiskur, skorinn í stóra teninga
1 sítróna, skorin í báta
1 gul paprika
1 rauð paprika
2 msk ólífuolía
Safi úr 1 sítrónu
1 hvítlauksrif, pressað
1 tsk þurrkað oregano
1 msk fersk steinselja, smátt söxuð
1/2 tsk sjávarsalt
1/4 tsk svartur pipar
–

1. Blandið saman ólífuolíu, sítrónusafa, hvítlauk, oregano, steinselju, salti og pipar.

2. Veltið fiskbitunum varlega upp úr marineringunni og látið standa í 15–20 mínútur.

3. Þræðið fisk, sítrónubáta og papriku til skiptis á grillspjót.

4. Grillið í 6–8 mínútur eða þar til fiskurinn er eldaður í gegn og byrjar að flagna auðveldlega.
–

–

–
Miðjarðarhafs grænmetisspjót

1 rauð paprika
1 gul paprika
1 rauðlaukur
200 g sveppir
16 kirsuberjatómatar
2 msk ólífuolía
1 tsk þurrkað oregano
1/2 tsk hvítlauksduft
1/2 tsk sjávarsalt
1/4 tsk svartur pipar

1. Skerið papriku, sveppi og lauk í grófa bita.

2. Blandið grænmetinu saman við ólífuolíu og krydd.

3. Þræðið á grillspjót og grillið í 8–10 mínútur þar til grænmetið er mjúkt og fallega brúnað.


–

Góð ráð fyrir fullkomin grillspjót

  • Leggið tréspjót í bleyti í 30 mínútur áður en þau fara á grillið.
  • Marinering gerir gæfumuninn, jafnvel 20–30 mínútur geta aukið bragðið verulega.
  • Berið fram með fersku salati, grískri jógúrtsósu eða kartöflum af grillinu.
  • Tilvalið er að undirbúa spjótin fyrr um daginn og geyma í kæli þar til grillið er heitt.

–
Við mælum með að bera spjótin fram með fersku salati, grilluðum kartöflum eða léttri jógúrtsósu. Þannig færðu litríka og næringarríka máltíð sem hentar fullkomlega á björtum sumarkvöldum.
–

Ekki gleyma að fylgja okkur á Facebook og Instagram  fyrir fleiri ráð og nýjar uppskriftir sem styðja heilsuna og orkuna.



—

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *