
3 einföld grillspjót sem slá alltaf í gegn
27th July 2026Svona býrðu til kefir heima
17th August 2026
3 einföld grillspjót sem slá alltaf í gegn
27th July 2026Svona býrðu til kefir heima
17th August 2026Kefir hefur fengið mikla athygli undanfarið enda góð ástæða fyrir.
Kefir er gerjaður mjólkurdrykkur sem er ríkur af lifandi góðgerlum og getur stutt við heilbrigða meltingu og fjölbreytta þarmaflóru.
Drykkurinn verður til þegar sérstök kefir grjón eru látin gerjast í fullfeitri mjólk, yfirleitt í 12-24 klukkustundir. Grjónin eru síðan síuð frá og eftir situr sjálfur kefirinn, örlítið súr og létt freyðandi drykkur sem er aðeins þynnri en jógúrt áferð.
Kefir getur verið einstaklega góður fyrir meltinguna. Hann er léttur í maga, sem gerir hann kjörinn til að fá sér á morgnana. Þessi ofurdrykkur getur a hjálpað til við að draga úr bólgum og bjúg, styrkja ónæmiskerfið og aukið orkuna okkar. Eitthvað sem við þurfum flest á að halda rétt eftir sumarfrí, ekki satt?!
Þótt kefir sé vinsælli en nokkru sinni fyrr er hann alls ekki ný uppfinning. Fólk hefur drukkið kefir víða um heim í hundruð ára og margar ömmur og langömmur muna eflaust eftir því að hafa búið hann til heima.
–

–
Uppruna kefirs má rekja meira en þúsund ár aftur í tímann, til hirðingja í Kákasusfjöllunum. Sagan segir að þeir hafi geymt mjólk í leður pokum þars sem hún gerjaðist fyrir tilviljun. Útkoman var freyðandi, örlítið súr drykkur sem reyndist ótrúlega góður fyrir meltinguna og þannig varð kefirinn eins og við þekkjum hann í dag, til.
Hvers vegna er góðgerlar mikilvægir?
Góðgerlar (e. probiotics) eru lifandi örverur sem geta haft jákvæð áhrif á heilsuna þegar þeirra er neytt í nægilegu magni.
Þeir hjálpa til við að styðja við heilbrigða þarmaflóru sem samanstendur af billjónum baktería og annarra örvera sem búa í meltingarveginum. Þegar þarmaflóran er í góðu jafnvægi getur það haft jákvæð áhrif á meltinguna og almenna vellíðan.
Stór hluti ónæmiskerfisins tengist meltingarveginum og rannsóknir hafa einnig sýnt fram á náin tengsl milli þarma og heila. Heilbrigð þarmaflóra getur haft áhrif á mun meira en bara meltinguna.
–
Lesa einnig:
Steinefni og streita
7 einföld hreinsunarráð
10 mín morgunrútína sem gefur þér orku og léttleika
–
Það sem gerir kefir sérstaklega áhugaverðan í þessu samhengi er hversu fjölbreyttur hann er af gerlum. Á meðan venjuleg jógúrt inniheldur yfirleitt færri gerlastofna er talað um að kefir getir innihaldið 30-40 mismunandi geralstofna, jafnvel fleiri. Fjöldi og samsetning gerla stofnanna getur þó verið mismunandi eftir kefirum og því hvernig hann er búin til.
Margir telja að kefir sé betri en hefðbundin góðgerlabætiefni. Það fer þó eftir því hvaða bætiefni er verið að bera saman, þar sem mismunandi gerlastofnar hafa mismunandi eiginleika. Eitt er þó ljóst: líkaminn nýtur góðs af fjölbreyttum góðgerlum og þar getur kefir verið góður kostur.
–
–

–
Heimageður Kefir eða keyptur út í búð?
Kefir er annaðhvort hægt að búa til heima eins og ég geri sjálf eða kaupa tilbúinn út í búð, til dæmis frá Mjólkursamsölunni.
Hægt er að kaupa kefir með ýmsum bragðtegundum en margar þeirra innihalda viðbættan sykur. Ef þú vilt hann eins hreinan og hægt er, er best að velja hreinan, ósætan kefir og bæta sjálf/ur við nokkrum dropum af steviu, berjum eða kanil.
–
–
Settu í spjallið hér að neðan: Tekur þú inn góðgerla eða kefir? Hvaða mun finnur þú á þér?
Vertu svo viss um að deila færslunni með vinkonu sem gæti haft gott af þessu og skráðu þig endilega á póstlistann minn til að missa ekki af næstu grein.
Í næstu viku fer ég dýpra í hvernig ég geri heimagerðan kefir sjálf, skref fyrir skref.
Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!


