Kefir: Allt sem þú þarft að vita
11th August 2026
Heimagert súrkál eins og það gerist best
24th August 2026Kefir: Allt sem þú þarft að vita
11th August 2026
Heimagert súrkál eins og það gerist best
24th August 2026Ég byrjaði að gera mér heimagerðan kefir fyrir nokkrum árum og hef ekki hætt síðan.
Í dag drekkur öll fjölskyldan kefir. Sonur minn, sem er tæplega tveggja ára, fær sér oft kefir á morgnana og biður um „meira, meira“ þegar glasið klárast.
Kefir er næringarríkur gerjaður mjólkurdrykkur sem er ríkur af lifandi góðgerlum og getur stutt við heilbrigða meltingu og þarmaflóru.
Ef þú hefur ekki lesið fyrra bloggið mitt um kefir mæli ég með að byrja þar. Þar fer ég yfir hvað kefir er, hvers vegna hann hefur orðið svona vinsæll og hvernig hann getur stutt við meltinguna.
–

–
Í dag ætla ég hins vegar að segja þér hvernig ég geri minn eigin kefir, skref fyrir skref. Það er auðvitað líka hægt að kaupa tilbúinn kefir í flestum matvöruverslunum, en mér finnst bæði skemmtilegt og hagkvæmara að búa hann til sjálf.
Það eina sem getur verið smá áskorun við að gera sinn eigin kefir er að útvega sér kefirgrjón. Þau fást yfirleitt ekki í hefðbundnum matvöruverslunum hér á landi og því þarf oft að fá þau frá einhverjum sem er nú þegar að rækta kefir, til dæmis í Facebook-hópum eða panta þau erlendis. Ég keypti mín kefirgrjón á Amazon.
–
Lesa einnig:
Kvöldrútína fyrir betri svef
Candida og sykur
10 mín morgunrútína sem gefur þér orku og léttleika
–
Þó það geti tekið smá tíma að finna kefirgrjón er það vel þess virði þegar þú ert komin með þau, þar sem hægt er að nota þau aftur og aftur. Þá er ekkert eftir nema að fylgja þessum einföldu leiðbeiningum og byrja að búa til þinn eigin kefir heima.
–

–
Kefir uppskrift
1 msk kefir grjón
1 bolli mjólk (sjá ath)
1. Leggið kefir grjónin í hreina glerkrukku. Hellið mjólk yfir og hrærið vel saman.
2. Leggðu grisju, viskustykki eða annað efni sem andar yfir opið og festu með teygju. Þetta ver kefirinn en leyfir loftflæði meðan á gerjun stendur.
3. Geymið krukkuna á þurrum stað við stofuhita, fjarri beinu sólarljósi. Ef heimilið er svalt getur verið gott að vefja viskustykki utan um krukkuna til að halda stöðugri hlýju.
4. Látið kefirinn gerjast í 12-24 klst eftir því sem þú hversu súran þú vilt hafa hann. Gott getur verið að hræra í krukkunni 1-2 yfir þennan tíma t.d alltaf á morgna eða kvöld.
5. Þegar kefirinn er tilbúinn skaltu sigta grjónin frá mjólkinni. Leggðu sigti ofaná skál eða krukku, helltu vökvanum yfir og notið tréskeið til að hræra svo eftir skilur eingöngu kefir grjón í sigtinu og kefir-jógúrt í ílátinu undir.
6. Setjið kefir-jógúrtið í krukku og geymið inní ískáp. Fyllið krukkurnar aðeins að ½-¾ þar sem gerjunarferið heldur áfram og ef krukkan er fyllt alveg upp á topp getur hún sprungið. Þetta segi ég af reynslu. Kefirinn er þá tilbúin til að drekka, drekktu eitt og sér eða bætt við berjum, smá kanil eða nokkrum dropum af stevíu ef þú vilt mildara bragð.
Byrjaðu þá ferlið uppá nýtt. Bættu við kefirgrjónun sem eftir eru í sigtinni í krukkunan sem var notuð í gerjunarferlinu, bættu við nýrri mjólk og láttu aftur sitja á eldhúsborði með grisju/tusku yfir.
–
Athugasemdir:
Notið fullfeita mjólk t.d nýmjólk eða lífræna mjólk. Ef þú getur notað hráa mjólk beint frá bónda er það kostur, ófitusprend og ógerilsneidd, rík af gerlum. Ekki er hægt að nota jurtamjólk.
Ef þú vilt stöðva ferlið t.d ef ert að fara á ferðalag er hægt að kefirgrjónun í mjólk inní ískáp. Skiptu þá um mjólk á nokkra daga fresti ef þú getur eða svo til að halda kefirgrjónunum ferskum. Einnig er hægt frysta kefir grjónin. Ef þú ákveður að frysta kefirgrjónin þarftu aðeins að endurvekja grjónin við afrystingu, þar sem ferlið að frysta mun setja þau aðeins í dvala og gera gerlana ekki eins sterka. Til þess að verkja gerlana þarf einfaldlega að gera kefir 1-2 og henda síðan kefirnum sem verður til. Hann mun ekki smakkst sérstaklega vel og ekki vera eins góðgerlaríkur og óskað.
Sumir tala um að gott sé að nota áfram sömu krukkuna í gerjunarferlið og þvo hana ekki þess á milli. Þetta á að vera betra fyrir gerjunarferlið.
–
Hefur þú prófað að gera þér kefir sjálf?
Er þetta eitthvað sem þig langar til að prófa?
Settu í spjallið og köfum dýpra.

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!


