Heimagert súrkál eins og það gerist best

Svona býrðu til kefir heima

17th August 2026

Kaffi og kortisól

1st September 2026

Svona býrðu til kefir heima

17th August 2026

Kaffi og kortisól

1st September 2026
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Heimagert súrkál eins og það gerist best

Þegar líða fer á haustið og bændamarkaðir fyllast af fersku íslensku grænmeti er fullkominn tími til að búa til heimagert súrkál.

Ég hef búið til súrkál á hverju hausti í þó nokkur ár. Yfirleitt bý til það mikið að það endist langt fram á næsta ár, eða þar til fjölskyldan klárar það!

Þegar ég byrjaði fyrst að borða súrkál fékk ég mér aðeins eina til tvær teskeiðar með kvöldmatnum til að venjast bragðinu. Fljótlega fann ég jákvæðan mun á meltingunni og í dag er súrkál fastur hluti af mataræðinu hjá mér. Mér finnst sérstaklega gott að bæta því í salatskálar, vefjur eða bera það fram með öðrum máltíðum.

Ég hef þróað með mér ýmsar uppskriftir í gegnum tíðina og í dag höfum við fjölskyldan fundið okkar uppáhalds.

Ég byrjaði þó á einföldu súrkáli úr hvítkáli, uppskrift sem ég ætla að deila með ykkur í dag. Þetta er sama súrkálið og ég kynnti fyrir syni mínum. Fyrstu mánuðina fékk hann smá súrkálssafa útþynntan í vatni, og síðan fékk hann súrkálið sjálft. Í dag, tveggja ára, elskar hann súrkál.

Það besta við þessa byrjendauppskrift er hversu einföld hún er. Þú þarft aðeins þrjú innihaldsefni; hvítkál, salt og vatn. Eitthvað sem allir geta gert.


Af hverju súrkál?

Þegar hvítkál er gerjað myndast mjólkursýra sem gefur súrkálinu einkennandi súrt bragð, rétt eins og með kefir, myndast lifandi góðgerlar sem styðja við jafnvægi í meltingar flórunni okkar. Meltingin hefur áhrif á orkuna okkar, andlega líðan, ónæmiskerfið og nánast alla aðra starfsemi líkamans.

Auk þess er súrkál trefjaríkt og inniheldur meðal annars C-vítamín og K-vítamín. Trefjarnar virka sem fæða fyrir gagnlegar bakteríur í meltingarveginum og stuðla þannig að heilbrigðari þarmaflóru.

Lesa einnig:
Svona lítur hreinsunardagurinn minn út
Kraftur þarmaflórunnar: Leiðin að betri heilsu
Reynslusaga Þórdísar frá 3 daga hráfæðishreinsun

Mikilvægt er að fá fjölbreytta góðgerla og besta leiðin til þess er að neyta mismunandi gerjaðra matvæla, eins og súrkáls, kefirs, kombucha og annars gerjaðs grænmetis.

Ef þú hefur aldrei borðað súrkál áður mæli ég með að byrja rólega, til dæmis með einni til tveimur teskeiðum með máltíð. Þú getur aukið magnið smám saman eftir því hvernig þér líður. Flestir venjast bragðinu fljótt og margir finna fyrir jákvæðum breytingum á meltingunni.

Einfalt heimagert súrkál

Þú þarft

1 meðalstórt íslenskt hvítkál (um 1 kg)

20 g íslenskt sjávarsalt (2% af þyngd kálsins)

1 stóra glerkrukku með loftþéttu loki (sjá athugasemd)

Aðferð

1. Fjarlægið ystu blöðin af hvítkálinu og geymið eitt heilt blað til hliðar. Skerið hvítkálið í þunnar ræmur eða rífið það í matvinnsluvél og setjið í stóra skál.

2. Vigtið hvítkálið og bætið við 2% íslensku sjávarsalti (20 g salt á hvert 1 kg af hvítkáli).

3. Hnoðið hvítkálið með höndunum í 5–10 mínútur þar til það verður mjúkt og byrjar að gefa vel af sér safa.

4. Setjið hvítkálið í hreina glerkrukku og þrýstið vel niður með viðarsleif eða hnefa svo ekkert loft sé á milli. Varist að fylla krukkurnar ekki of mikið annars getað þær sprungið, frekar að fylla krukkurnar uppað ⅔ eða rúmlega 80%.

5. Hellið öllum safanum úr skálinni yfir hvítkálið. Ef safinn nær ekki alveg yfir má bæta við örlitlu vatni svo það nái rétt yfir yfirborðið.

6. Leggið heilt hvítkálsblað yfir og þrýstið því niður til að hylja vel. Einnig má setja kjarnann úr hvítkálinu ofan á svo hvítkálið haldist vel undir vökvanum. Mikilvægt er að hvítkálið sé ávallt hulið vökva á meðan gerjun stendur, annars er hætta á að mygla myndist. 

7. Lokið krukkunni og geymið hana við stofuhita í 7–21 daga. Gott er að geyma frá sólarljósi t.d í búrskápnum hulið viskustykki. Smakkið reglulega og þegar súrkálið hefur náð því bragði sem ykkur finnst best er kominn tími til að færa það í ísskáp. Því lengur sem það gerjast, því sterkara verður bragðið. Ég persónulega gerja yfirleitt í lágmark 2 vikur stundum þrjár og geymi svo í kæli. 

8. Gott er að leyfa súrkálinu að ,,ropa” daglega, með því að opna krukkurnar og hleypa lofti frá. 

9. Geymið súrkálið í ísskáp. Það geymist í marga mánuði og bragðið heldur áfram að þróast með tímanum.

Athugasemdir

Mér hafa reynst korken glerkrukkurnar frá IKEA langbestar til súrkálsgerðar.

Hefur þú prófað að gera súrkál? Hvaða uppskrift notar þú?

Deildu með okkur í spjallinu og köfum dýpra.

Mundu síðan að skrá þig á póstlista Lifðu til fulls hér að neðan fyrir fleiri uppskriftir og ráð. Og ef þú býrð til gómsætt súrkál, endilega taggaðu okkur á Instagram @lifdutilfulls.

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *