Kaffi og kortisól | Einfaldar en öflugar uppskriftir
grænmetisborgara á grillið
Gerðu þinn eigin grænmetisborgara
8th August 2022
skothelt kaffi
Skothelt kaffi
29th August 2022
grænmetisborgara á grillið
Gerðu þinn eigin grænmetisborgara
8th August 2022
skothelt kaffi
Skothelt kaffi
29th August 2022
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Kaffi og kortisól

kaffi

Þú vaknar, lufsast inn í eldhús og byrjar að útbúa fyrsta kaffibollann… þú færð koffínið beint í æð og þá fyrst ertu tilbúin í daginn! 

Kannast þú við þetta?

Í dag langar mig deila með þér afhverju þú ættir ekki að drekka kaffi á fastandi maga. Þetta á sérstaklega við um konur, vegna viðkvæms og flókins hormónakerfis.

Hvað gerist þegar við drekkum kaffi á fastandi maga? 

Í fyrsta lagi, þá eykur kaffi kortisól oft kallað streituhormón, sem getur haft neikvæð áhrif á egglos, þyngd og hormónajafnvægi (þ.a hitakóf, skapsveiflur og önnur áhrif sem tengjast breytingaskeiði). Ef þú bætir við sykri, sírópi eða kaffijróma með sykri í kaffið veldur það enn meiri kortisól hækkun. 

Þetta streituhormón, ásamt öðrum þáttum, hjálpar þér að hafa stjórn á orkunni og vera vakandi. 

Kortisól magn er breytilegt yfir daginn en er sérstaklega hátt á morgnana, allt að fyrsta klukkutímann og lækkar svo með deginum og er hvað lægst á kvöldin áður en þú ferð að sofa. 

Þegar þú drekkur kaffi strax í morgunsárið, þegar kortisól magn er nú þegar hátt,  þá dregur þú úr hormónaframleiðslu og getur því ruglað líkamsklukkuna. Líkaminn gæti því farið að framleiða kortsól á tímum sem hann myndi vanalega ekki gera það, eins og t.d. áður en þú ferð að sofa. 

Rannsóknir hafa einnig sýnt að ef við drekkum kaffi þegar kortisól magn er hátt þá framleiðir líkaminn meira kortisól yfir daginn.  Of hátt kortisól magn getur sett líkamann í óþarfa streitu ástand sem hann á erfitt með að vinna úr. Sérstaklega ef hann er þegar undir miklu álagi. 

Lesa einnig:

Túrmerik latte á tvo vegu

Matcha Orka í tveimur útgáfum

Himneskt Chai boost

Afhvejru er kortisól slæmt?

Kortisól er heilbrigt innan ákveðna marka, en of mikið af því getur leitt til þyngdaraukningar, svefn vandræða eða jafnvel skert ónæmiskerfið, svo eitthvað sé nefnt. Jafnvægi í kortisól magni spilar lykilhlutverk í að kvenlíkaminn starfi eðlilega. 

Aðrar ástæður fyrir því að kaffi á fastandi maga er ekki æskilegt 

Það að drekka kaffi á fastandi maga getur einnig haft slæm áhrif á þarmana. Þetta á ekki við um alla. Það er algengur misskilningur að kaffi sé gott fyrir meltinguna vegna þess að við eigum það til að þurfa á klósettið eftir einn sterkan bolla. Aftur á móti ef þú upplifir mikið bakflæði eða óþægindi í meltingarvegi, gæti verið vert að kanna hvort kaffidrykkjan sé mögulega orsök þess. 

Jæja, hvenær má ég þá fá mér kaffi? 

Ef þú vaknar á nokkuð hefðbundnum tíma, þá er best að fá þér fyrsta bollan eftir morgunmat, t.d. milli 9:30 og 12:00, þá er kortisól magnið í líkamanum tiltölulga lágt. Ef þú vaknar mjög snemma eða mjög seint, þá getur þú aðlagað þennan tímaramma að þínum þörfum. Þegar við drekkum kaffi innan þessa ramma, getur það haft jákvæðri áhrif á okkur en að drekka kaffið strax á fastandi maga og gefið okkur orkuna sem við sækjumst í. 

Ef kortisól magnið er svona hátt á morgnana, af hverju finn ég fyrir þreytu? 

Það koma nokkrir möguleikar til greina. 

Í fyrsta lagi gæti það verið gömlum venjum að kenna. Ef þú ert vön/vanur því að drekka kaffi strax þegar þú vaknar þá er líkaminn orðinn vanur því og farinn að bíða eftir koffíninu strax þegar hann vaknar. 

Í öðru lagi gæti vandamálið einfaldlega verið þorsti. Við vöknum gjarnan þyrst eftir langan svefn og æðum beint að kaffivélinni án þess að staldra við og fá okkur vatnssopa. Prófaðu því að drekka stórt glas af vatni um leið og þú vaknar og sjáðu hver áhrifin eru.

Í þriðja lagi geta slæmar svefnvenjur verið sökudólgurinn. Flestir þurfa 7-8 tíma svefn, ef þú ert langt fyrir neðan þessar tölur þá mun það skila sér yfir daginn, á einn eða annan hátt. Góður svefn snýst heldur ekki bara um lengd heldur líka um gæði. 

Vellíðan sem fylgir því að hafa kaffið í hófi 

Ég fæ oft að heyra frá konum sem hafa lokið Frískari og Orkumeiri á 30 dögum námskeiðinu, þar sem við kaffi drykkjan er komið innan heilbrigða marka yfir 30 daga tímabil og jafnvel lengur fyrir marga, að þær finna fyrir miklu meiri orku, minni freistingum og stöðugari blóðsykri.

Breytt mataræði og lífsstíll hafa að spila að sjálfsögðu inn í þessa vellíðan, en það er þess virði að staldra við og velta því fyrir sér hvaða áhrif kaffibollinn er að hafa á mann. Þegar líkaminn er kominn í gott jafnvægi eins og gert er með námskeiðinu Frískari og Orkumeiri á 30 dögum, þá er auðveldara að hafa stjórn á kaffidrykkjunni og hver veit, kannski þarft þú bara ekkert á henni að halda! 

Mig langar að heyra frá þér!

Færð þú þér kaffi á fastandi maga? Og vaknar upp sú spurning hjá þér hvort þú eigir að breyta því? Segðu mér frá því hér að neðan og köfum dýpra í málið.

Og ekki gleyma að deila þessari færslu með á Facebook.

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *