Ofnbakað rótargrænmeti eins og það gerist best

Kaffi og kortisól

1st September 2026
breytingaskeiðið

6 fæður til að borða yfir breytingaskeiðið

14th September 2026

Kaffi og kortisól

1st September 2026
breytingaskeiðið

6 fæður til að borða yfir breytingaskeiðið

14th September 2026
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Ofnbakað rótargrænmeti eins og það gerist best

Ef það er eitthvað sem ég á nánast alltaf til í ísskápnum, þá er það rótargrænmeti, ferskar kryddjurtir og skallot lauk.

Þegar kólnar úti finnst mér fátt betra en hlýtt rótargrænmeti sem hefur fengið að karamellast fallega í ofninum. Þetta er hreint lostæti og meðlæti sem passar með ótrúlega mörgum réttum.

Ég geri þessa blöndu svo oft yfir haust og vetrartímann að ég á meira að segja sérstakan pott sem ég nota nánast eingöngu fyrir rótargrænmetið mitt!

Það skemmtilega er að þegar sumarið tekur við breytist matarlystin mín ósjálfrátt. Þá langar mig meira í ferskan og léttan mat og rótargrænmetis potturinn fær smá hvíld.

Kannski er Þetta einfaldlega leið líkamans til að kalla eftir mat sem hentar árstíðinni. Mér finnst bæði fallegt og nærandi að borða í takt við vertíðina og njóta þess hráefnis sem er í boði hverju sinni.
–

Lesa einnig: 
Holl Grillsósa
Fyllt sæt kartafla með hvítlaukssóu
Safaríkar kjúklingabringur með rósmarín og smjöri
–

Þess vegna er uppskriftin mín að rótargrænmeti viljandi nokkuð frjálsleg. Þú getur valið það rótargrænmeti sem er í boði hverju sinni, blandað saman þínum uppáhalds tegundum og gert uppskriftina að þinni.

Ég vona að þú njótir, þetta er allavega eitt af mínum allra uppáhalds meðlætum yfir kaldari mánuðina.
–
–

–

Ofnbakað rótargrænmeti eins og það gerist best

Lífrænt grasker ef fæst, mitt uppáhald

Sætar eða/og venjulegar kartöflur 

Gulrætur, nípur, rófur eða/og rauðrófur

Skallot laukur

Ferskt rósmarín

Ferskt timían

Salt eftir smekk

Kókos- , avókadó- eða ólífuolía

Aðferð

1.  Hitið ofninn við 180°C. 

2. Skolið rótargrænmetið og skerið það í hæfilega stóra bita. Mér finnst gott að flysja gulrætur, nýpur, rófur og sætar kartöflur en halda hýði á graskeri og venjulegum kartöflum. Svo má afhýða skallotlauk og skera gróflega. Ég hef ekki hlutföll í uppskriftinni svo hægt sé að sníða uppskriftina að eigin þörf og óskum.

3.  Setjið þá grænmeti í pott, eldfast mót eða ofnskúffu með bökunarpappír á. Bætið útí 1-2 tsk af kókosolíu eða örlítið af avókadó- eða olífuolíu yfir grænmetið. 

4. Bætið ferskum kryddjurtum og salti saman við. Kryddið eftir smekk og blandið öllu vel saman.

5. Bakið í 30-40 mínútur og hrærið í grænmetinu af til, sérstaklega ef þú notar harða kókosolíu. Grænmetið er tilbúið þegar laukurinn hefur karamellast fallega og auðvelt er stinga gafli í gegnum grænmetið.

6. Berið fram og njótið á meðan það er heitt. Mér þykir gott að bera fram með dökku salati eins og klettasalat, grænkál eða spínat og smá grískum feta ásamt aðalréttinum.
–

Athugasemdir:

Mér finnst æðislegt að nota lífrænt grasker sem fæst af og til í Krónunni og Nettó.
–

Finnur þú líka að líkaminn kalli eftir ólíkum mat eftir árstíðum? Til dæmis hlýju rótargrænmeti yfir veturinn en ferskari og léttari mat á sumrin?

Deildu endilega með okkur í spjallinu hér að neðan.
–
Mundu síðan að tagga okkur lifdutilfulls ef þú ákveður að gera þessa uppskrift, við elskum að sjá ykkar útfærslur á samfélagsmiðlum.

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *