16 kílóum léttari og uppgötvaði leyndarmálið að hinni fullkomnu húð!
Mín persónulega reynsla við að vinna úr áföllum
25th August 2020
Hlýlegt vetrarsalat með graskeri, linsubaunum og grænkáli
2nd February 2021
Mín persónulega reynsla við að vinna úr áföllum
25th August 2020
Hlýlegt vetrarsalat með graskeri, linsubaunum og grænkáli
2nd February 2021
Show all
Deildu á facebook
Facebook

16 kílóum léttari og uppgötvaði leyndarmálið að hinni fullkomnu húð!

Ég er alltaf jafn spennt að deila með ykkur árangurssögum frá flottu konunum á Frískari og orkumeiri námskeiðinu hjá okkur! Þær veita mér endalausan innblástur. 

Birta hefur lokið Frískari og orkumeiri á 30 dögum námskeiðinu hjá mér og hefur náð ótrúlegum árangri og breytt lífi sínu og fjölskyldu sinnar til hins betra. 

Hún hefur misst 16 kíló (10 á 30 dögum), veit nákvæmlega hvað hún á að borða fyrir hámarks vellíðan, hefur aukna orku til þess að sjá um dóttur sína og hefur uppgötvað leyndarmálið að fullkominni húð.

Við tókum létt viðtal við Birtu til þess að undirstrika árangur hennar og deila með öðrum sem innblæstri til þess að taka sömu ákvörðun um að hefja hollari lífsstíl.

Þetta snýst nefnilega allt bara um þessa einu litlu ákvörðun. Ákvörðun að setja þig í forgang og ekki leyfa kringumstæðum að segja til um eigin getu.  Allt annað fylgir.  

Hélt hún gæti ekki haldið út 

Birta byrjaði heilsuferðalag sitt með vafa um eigin getu…

„Ég hélt ég myndi ekki geta haldið þetta út og hélt í alvöru að ég gæti aldrei borðað sykur aftur ef ég myndi fara á þetta námskeið, en ég bara höndlaði þetta, hélt þetta út og uppgötvaði að það má leyfa sér innan heilbrigðs lífsstíls” 

Kom í ljós að…

„Þetta var alls ekki eins svakalegt og ég hélt” 

Mesta áskorunin var að stundum var ekki búið að undirbúa mat vikunnar (sem fólk lærir á námskeiðinu), en ef það er stærsta áskorunin þá er maður í góðum málum! 

Sykurþörfin hvarf strax

„Ég var mjög mikill nammigrís, var alltof mikið í nammi og gosi, og oftast fékk ég mér oft á diskinn og var ógeðslega svöng”

Birta fann þó strax mun á fyrstu vikunni og upplifði sykurþörfina hverfa og hana langaði ekkert í sætindi og segir hún „Eftir námskeiðið hefur mig ekkert langað í sætindi, fæ ég mér bara einn disk og er saddari. Núna er lífsstíllinn algjör andstæða”

Árangurinn lét ekki á sér standa 

Ég skráði mig því ég var komin í 3 stafa tölu á vigtinni og er núna í tveggja, er alveg að komast niður í 80 kílóa markið. 

Ég var í 110kg þegar ég byrjaði á námskeiðinu, léttist um 10kg á meðan á því stóð á þessum 30 dögum og er komin í 94kg núna, held áfram að fara hægt og sígandi niður á við.”

Það var hinsvegar ekki allt sem hún fékk út úr þessum 30 dögum: „Já ég léttist mikið, en svo fékk ég svo miklu meiri orku. Var t.d. ekkert mikið í því að fara út með dóttur mína en núna fer ég hvern einasta dag og fæ hreyfingu sjálf í leiðinni!”

10kg á 30 dögum, húðin ljómar og orkan er mun meiri, það er ekki hægt að biðja um betri árangur!

En hvað með fjölskylduna? 

Meira að segja þegar maðurinn sat við hliðina á henni með sætindi freistaðist hún ekki, töluvert afrek að vera komin á þann stað!
„Maðurinn vildi ekki vera með og vildi frekar styðja við mig, hann hélt áfram að borða nammi en mig langaði ekkert í og það truflaði mig ekkert” 

Maturinn féll vel í kramið hjá fjölskyldunni en einn réttur stóð alveg upp úr!
Birta er ánægð með að hafa fleiri hollar uppskriftir þar sem lítið var um þær áður
„Við vorum mikið í kjötinu áður, ég gerði linsubauna bolognese einn daginn og hélt að þetta myndi ekki vera neitt rosalega gott en þetta var bara eitt það besta sem ég hef borðað lengi!”

Við gátum ekki fengið álit frá dóttur hennar þar sem hún var aðeins of ung til að geta smakkað en „manninum fannst samt linsubauna bolognese það besta sem hann hefur smakkað líka.”

Viðheldur árangrinum í dag

Birta bætir við að núna þrem mánuðum eftir að námskeiðinu lauk heldur hún í sykurleysið og segir þetta um það mikilvægasta sem hún tók með sér frá námskeiðinu maður þarf ekkert sykur, vitandi hvað það er mikill sykur í öllu mögulegu kíki ég alltaf á innihaldslýsinguna og tékka hvað mikill sykur og hvernig sykur er í matnum sem ég kaupi.” 

Það hefur gengið rosalega vel að halda mataræðinu við: „Þær uppskriftir sem ég nota mest ennþá frá námskeiðinu eru Avókadó stappan, linsubauna bolognase og súrdeigsbrauðið með heimagerðu “nutella sem er það besta” 

(uppskriftir sem fást gegn skráningu í Frískari og Orkumeiri samfélagið)

Hún fær sér hollari valkosti þegar hana langar í snarl: „Stundum langar mann í nammi en þá fæ ég mér eitthvað annað frá uppskriftum námskeiðs og það bjargar mér algjörlega!”

Í lokin er hér það sem Birta vill koma á framfæri við fólk sem er að íhuga námskeiðið: 

„Fyrir þá sem eru að íhuga námskeiðið segi ég, GO FOR IT”

Vel sagt Birta og það sem við hjá Lifðu til fulls erum stolt af þér!

Tengir þú við sögu Birtu og þráir eitthvað öðruvísi fyrir sjálfa þig?

Afhverju ekki „go for it” eins og Birta segir og trúa aðeins á eigin getu?

Málið er að við munum aldrei finnast okkur vera tilbúin, alveg eins og sagan hennar Birtu sannar snýst þetta allt um ákvörðun  – það er bara að demba sér í djúpu laugina.

Núna er tíminn til að setja heilsuna í forgang – engar fleiri frestanir kannski hefur þú verið að velta þessu fyrir þér fram og aftur. Alltaf að fresta til morgundags.

Sláðu til fyrir sjálfa þig og taktu heilsuna með trompi með réttum stuðning og a-ö áætlun núna í janúar.

Skráningar í Frískari og orkumeiri á 30 dögum námskeiðið er í boðu núna á sérstöku afmælis tilboði, bestu kjörum sem við höfum veitt.  Verð hækkar þar eftir.

Einnig þegar þú skráðir þig kemstu í pottin að getað unnið vitamix blandara að andvirði 83.600 kr. Það gerist ekki betra!

Um leið og þú skráir þig færðu tafarlausan aðgang að 5-mín drykkjar uppskriftum sem slá vel og hratt á sykurþörfina, draga úr bjúg og efla brennslu og svo hefjumst við handa í 30 dagana í janúar!

Framtíðarútgáfan af þér treystir á þig að vera djörf og fara út fyrir þægindaramman!

Þetta er þitt tækifæri. Þú ert þess virði og þú ERT tilbúin!

Tryggðu þér A-Ö áætlunina og baklandið til að gera það sem eftir er árs að þínu heilsuári!

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *