Gylltur chia búðingur

Uppskriftirnar sem slóu í gegn 2025

23rd February 2026
Heimagert majónes

Vinsælustu bloggin árið 2025

9th March 2026

Uppskriftirnar sem slóu í gegn 2025

23rd February 2026
Heimagert majónes

Vinsælustu bloggin árið 2025

9th March 2026
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Gylltur chia búðingur

Í dag deili ég með ykkur gylltum chia búðingi sem er bæði bólgueyðandi og nærandi. Hann er ótrúlega góður og einstaklega einfaldur í undirbúningi, fullkominn þegar þú vilt eitthvað sem styður við líkamann og veitir þér stöðuga orku.


Uppskriftin byggir á einföldum hráefnum sem vinna með líkamanum og styðja við hormónajafnvægi.

Kryddin skapa hlýju sem vinnur með líkamanum, kókosmjólkin gefur kremkennda áferð ásamt hollri fitu. Túrmerik og engifer vinna saman að því að draga úr bólgum og styðja við ónæmiskerfið, á meðan kanill og kardimommur styðja við blóðsykur og meltingu. Svartur pipar eykur upptöku túrmeriksins og chiafræin gefa trefjar, omega-3 og prótein sem gera blönduna þykka og mettandi.


Lesa einnig: 
Berjabúst fyrir breytingaskeiðið
Orkugefandi hnetusmjörsþeytingur sem vinnur á sykurþörf
Himneskur Mangó Lassi drykkur

Ljósmyndir í eigu Wholesomelicious.

Gylltur Chia búðingur/grautur

1 dós fullfeit kókosmjólk

1/4 tsk túrmerikduft

1/4 tsk kanill

1/4 tsk kardimommur

1/4 tsk engifer

2–3 klípur svartur pipar

1 msk hunang

1 msk chiafræ


1. Blandið öllum hráefnum nema chiafræjunum saman í blandara þar til blandan er slétt.

2. Hrærið chiafræjunum út í

3. Geymið í kæli að minnsta kosti 4 klukkustundir eða yfir nótt.

4. Berið fram með bleyttum möndlum og kókosflögum.



Láttu mig vita í athugasemdum hvort þú prófar þennan gyllta chia búðing og hvernig hann smakkast!

Ekki gleyma svo að tagga okkur á Instagram ef þú gerir þér þennan drykk, við elskum að sjá ykkar útfærslur.


Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *