Uppskriftirnar sem slóu í gegn 2025

Pönnukökur með kotasælu og höfrum

27th January 2026

Gylltur chia búðingur

3rd March 2026

Pönnukökur með kotasælu og höfrum

27th January 2026

Gylltur chia búðingur

3rd March 2026
Show all
Deildu á facebook
Facebook

Uppskriftirnar sem slóu í gegn 2025

Árið 2025 var fullt af dásamlegum uppskriftum og það var svo gaman að fylgjast með hvaða réttir urðu ykkar uppáhalds. Ég tók saman þær 8 uppskriftir sem þið elskuðuð mest, elduðuð aftur og aftur og deilduð áfram.

Kannski prófaðir þú þær allar, eða kannski leynist hér ein sem þú átt enn eftir að uppgötva?

Frískandi bólgueyðandi drykkur fyrir hormónajafnvægi og vellíðan


Þessi ljúffengi drykkur styður við hormónajafnvægi, dregur úr bólgum og gefur jafna orku yfir daginn. Hann er frískandi og tilvalinn sem hollt og gott millimál. Smelltu hér fyrir uppskrift.


Heimagert majónes sem klikkar ekki

Þetta majónes er alltaf til á heimilinu hjá okkur. Það er sykurlaust, án óæskilegra olía og ótrúlega einfalt í gerð. Uppskriftin inniheldur aðeins 5 hráefni og tekur ekki nema um 5 mínútur. Fullkominn grunnur í alls konar matargerð. Smelltu hér fyrir uppskrift.

6 hollari súkkulaði uppskriftir fyrir Valentínusardaginn

Hér tók ég saman sex einfaldar og fljótlegar sætar uppskriftir fyrir valentínusardaginn en í raun sem henta fyrir hvaða tilefni sem er. Fullkomið þegar þig langar í eitthvað sætt en samt nærandi og heimagert, til að njóta sjálf/ur eða deila með þeim sem þér þykir vænt um. Smelltu hér fyrir uppskriftir.

Ferskju- og engiferdrykkur

Ferskju- og engiferdrykkur

Einfaldur og ferskur drykkur sem styður við meltingu, dregur úr bólgum og veitir náttúrulega orku. Engifer, kanill, chia- og hempfræ vinna saman með ferskju fyrir gott bragð og andoxunarefni. Fullkomin sem hollt og gott millimál. Smelltu hér fyrir uppskrift

Lesa einnig: 
Vinsælustu uppskriftirnar mínar 2023
Vinsælustu uppskriftirnar mínar 2024
Berjabúst fyrir breytingaskeiðið


fetaostur, feta, heimagert

Heimagerður fetaostur í kryddolíu

Ótrúlega einfalt að gera heima og þú velur sjálf(ur) hráefnin. Frábær leið til að forðast óæskilegar olíur og fá fetaost sem er bæði hreinni og bragðbetri. Auðvelt að leika sér með mismunandi kryddblöndur og búa til sína uppáhaldsútgáfu. Þú einfaldlega verður að prófa! Smelltu hér fyrir uppskrift.


Besta hnetublanda sem ég hef smakkað

Þessi hnetublanda er fullkomið millimál þegar löngunin í nart og eitthvað sætt bankar upp á. Próteinrík, styður við jafnan blóðsykur og veitir langvarandi orku. Auðvelt að gera stóran skammt til að eiga og taka með sér í krukku þegar þú ert á ferðinni.  Smelltu hér fyrir uppskrift.



Dásamlegt jarðarbrauð

Þetta heimagerð jarðarbrauð hefur alltaf verið í uppáhaldi hjá mér þegar kemur að næringarríkum og hollari valkost fyrir brauð.  Það er einnig einfalt að breyta og bæta uppskriftina með mismunandi hnetum, fræjum eða jafnvel rifnu grænmeti til að fá skemmtilegar útfærslur. Smelltu hér fyrir uppskrift.


Einfaldur hummus á tvenna vegu

Mjúkir og bragðmiklir bitar úr einföldum hráefnum sem veita bæði ánægju og næringu. Frábær kostur þegar þig langar í eitthvað sætt. Auðvelt að eiga tilbúna og grípa í þegar sykurlöngunin kallar. Smelltu hér fyrir uppskrift.

Nú langar mig að heyra frá þér, ef þú hefur prófað eitthvað af þessum uppskriftum, hver er þín uppáhalds? 

Láttu vita í spjallinu hér að neðan!

Mundu síðan að tagga Lifðu til fulls á instagram í story hjá þér. Við elskum að sjá ykkar útgáfur af matnum.

Áttu vinkonu sem gæti gagnast af þessari færslu? Deildu þessu bloggi endilega yfir til þess að við getum náð til fleiri og haldið áfram að deila uppskriftum til ykkar.

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *