
Grænn drykkur, vænn og sterkur!
14th January 2026
Uppskriftirnar sem slóu í gegn 2025
23rd February 2026
Grænn drykkur, vænn og sterkur!
14th January 2026
Uppskriftirnar sem slóu í gegn 2025
23rd February 2026Kotasæla hefur verið áberandi undanfarið, bæði í morgunverði og bakstri. Ég ákvað að prófa hana í pönnukökur og úr varð mjúkar og ljúffengar pönnukökur.
Þetta er einföld uppskrift sem byggir á fáum hráefnum og er því fullkomin þegar mig langar í eitthvað sætt án þess að líða eins og ég sé að „fara út af sporinu“. Auk þess eru pönnukökurnar auðveldar í gerð og ég elska að toppa þær með smá hlynsírópi og ferskum berjum.
Sjá einnig:
Granola með kókosflögum og skógarberjum
Sumarleg jógúrtskál með blárri spirulínu
Grænn drykkur, vænn og sterkur!
–

ö
Næringaríkar pönnukökur með kotasælu.
225g kotasæla
80g hafrar
5 egg
2 tsk. kanill
1 msk. hlynsíróp
2 msk. kókosolía
1. Setjið allt hráefnið í blandara eða matvinnsluvél og blandið saman þar til deigið er slétt.
2. Hitið ¼ af kókosolíunni á stórri pönnu við meðalháan hita, hellið um ¼ bolla af deigi í hverja pönnuköku.
3. Steikið þar til loftbólur myndast á yfirborði pönnukökunnar, um 1-2 mínútur. Snúið henni við og steikið í aðra mínútu eða þar til gullinbrúnt á báðum hliðum.
4. Endurtakið þetta ferli þar til allt deigið hefur verið notað. Berið fram með áleggi að eigin vali.
,.
Það er dásamlegt að toppa pönnukökurnar með berjum, smá sýrópi eða jógúrti fyrir kremkennda og nærandi áferð.
Ef þig langar í aðeins sætari útgáfu getur þú bætt við dökku súkkulaði (70%) sem gerir þetta að algjöru nammi.
Þess vegna henta pönnukökurnar jafnt á sunnudagsmorgnum sem og þegar þú vilt gera vel við þig með einhverju sem er bæði notalegt og næringarríkt.
–
Gerðu þér góðan morgun með frábærum pönnukökum og ef þú prófar uppskriftina, mundu að tagga okkur á Facebook eða Instagram.
.,

––
Ef þú vilt fá fleiri einfaldar og nærandi uppskriftir, þá er Lifðu til fulls áskriftin fyrir þig.
Lifðu til fulls áskriftin leiðir þig skref fyrir skref að heilbrigðum lífsstíl með vikuplönum, uppskriftum, íhugun og heilsuráðum sem styðja við betri líðan og jafnvægi í daglegu lífi.
Nú í janúar getur þú skráð þig með 40% afslætti og fengið kaupaukann bólgueyðandi drykkir – 15 næringarrílar uppskriftir sem styðja við vellíðan og orku.

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?
Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.
Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!



