Af hverju sumir hafa hægari brennslu en aðrir og hvað þú getur gert!
8 hollráð til þess að hindra ofát í veislum
7th May 2015
Boost fyrir brennsluna
Drekktu þennan fyrir aukna brennslu
19th May 2015
8 hollráð til þess að hindra ofát í veislum
7th May 2015
Boost fyrir brennsluna
Drekktu þennan fyrir aukna brennslu
19th May 2015
Show all

Af hverju sumir hafa hægari brennslu en aðrir og hvað þú getur gert!

Hæg brennsla

Hefurðu velt fyrir þér hvort sumir hafa náttúrulega hæga brennslu á meðan aðrir hraða?

Erfðir okkar spila hlutverk þegar kemur að brennslu eða efnaskiptum líkamans og sumir hafa hraðari brennslu á meðan aðrir hægari.

Í dag langaði mig að tala við þig um hvað er hægt að gera í þessu svo þú getir aukið brennsluna ef það er óskandi og hver afleiðingin er á því að vera með hæga eða hraða brennslu.


Fyrst, h
vað er brennsla?

Brennsla eða efnaskipti er líffræðilegt ferli í flestum lífverum sem brýtur niður fæðu og notar næringarefnin sem orkugjafa. Ferlið snýr að því að brjóta niður fæðuna og hleypa næringarefnum inn í blóðrásina og til frumna sem síðan er notuð til þess að byggja upp og endurnýja vefi líkamans. Þetta ferli er þinn grunn efnaskiptiahraði (BMR) sem hefur mikil áhrif á þyngd þína og getu til að léttast.


Hröð brennsla


Á yfirborðinu, hljómar það vel að hafa hraða brennslu því þá geturðu borðað hvað sem er og ekki þyngst neitt, ekki satt? Aftur á móti er kenningin ekki eins góð og hún virðist vera þar sem einstaklingar með hraða brennslu borða yfirleitt mikið af kalóríum á dag einungis til að finna ekki fyrir hungri og hjá sumum er mikið af þeim mat ríkur af kalóríum,  mettaðri fitu, sykri og salti. Allt sem er ekki gott fyrir heilsu okkar og getur leitt til aukinnar hættu á hjartasjúkdómum, háu kólesteróli og sykursýki.

Hröð brennsla getur verið af völdum erfða, kyni og aldri en einnig orsök af ofvirkum skjaldkirtli, reykingum og/eða streitu. Þau síðari er hægt að meðhöndla með heilbrigðum lífsstíl og aukinni núvitund og sjálfsumhyggju. Ef þú telur þig vera með hraða brennslu mundu þá að gefa þér næringarríka fæðu, borða reglulega og ljúka máltið þar sem þú ert mett/ur en ekki að springa.


Hæg brennsla

Hæg brennsla getur komið til vegna hormóna ójafnvægis því þegar við eldumst missum við testósterón sem hjálpar okkur að hafa stjórn á vöðvamassa. Því meiri vöðva sem við höfum, þeim mun fleiri hitaeiningum brennum við. Að byggja upp vöðva getur því hjálpað þeim sem hafa hæga brennslu.

Alveg eins og ofvirkur skjaldkirtill getur valdið hraðari brennslu getur vanvirkur skjaldkirtill valdið hægari brennslu. Að svelta eða fasta líkaman getur ýtt undir latan skjaldkirtli og því er algjört lykilatriði að borða morgunmat þó svo það sé lítið og passa að halda blóðsykurstigi líkamans í jafnvægi yfir daginn með því að borða reglulega næringaríka fæðu og forðast sykur.

Þrátt fyrir að streita getur hraðað brennslu getur hún einnig hægt á brennslu vegna hækkun á korísól stigum við þyngdaraukningu. Með því að sinna sálinni og þér geturu dregið úr streitu og hjálpað líkamanum að auka brennsluna og orku.

attack-calories

Ef þú telur þig vera með hæga brennslu prófaðu einnig að bæta við reglulegri hreyfingu og uppbyggingu vöðva, borða regulega næringarríkar máltíðir og með því geturðu byrjað að koma betra jafnvægi á brennslu og orku.

 

Nú er komið að þér og að innsigla þessa þekkingu;

Hvort telur þú þið vera með hraða eða hæga brennslu? Hvað ertu að gera til að viðhalda góðri brennslu og orkustigi?

Ég les hvert komment frá þér og þykir ótrúlega vænt um svörin þín. Ef þér líkaði við greinin endilega smelltu við like hér og deildu með vinum á facebook 😉

 

Heilsa og hamingja

Júlía heilsumarkþjálfi

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

14 Comments

  1. Brigitte Einarsson says:

    Takk fyrir þessi upplysingar. Ég er með latan skjaldkirtill og hæga brennslu. Gott að minna mig á að það auka brennslu ef ég borða morgunmat. Ég hef nefnilega sleppt stundum morgunmat og held þetta væri bara allt i lagi fyrir mig.

  2. Sòlrún Ósk says:

    Virðist hafa hæga brennslu, geri æfingu, astmi og ofnæmi hádegi mér.

    • Júlía, heilsumarkþjálfi says:

      Sæl Sólrún, hvað af þessum hollráðum gætir þú byrjað að tileikna þér? 😉

  3. sigurbjörg says:

    Takk fyrir þessi skilaboð alltaf gott að láta minna sig á. Ég er með latan skjaldkirtil og frekar
    hæga brennslu. Best að fara að auka hreyfinguna 🙂

  4. Lára says:

    Ég virðist vera með hæga brennslu, nógu auðvelt á ég með að bæta á mig amk. Ég geri ekkert en hugsa um að gera margt.

    • Júlía, heilsumarkþjálfi says:

      Sæl Lára, ég skil þig ótrúlega vel. Ef þú finnur þig strand gæti 5 daga matarhreinsun okkar hjálpað þér að koma þér af stað, hún hefur hjálpað hundruðum kvenna og hjóna að koma sér af stað, léttast og auka orkuna og er matarhreinsuninn það sem ég mæli með fyrir alla að byrja á. 😉 Þú getur farið hér og fengið hreinsunarpróf og 1 dags matseðill frá mér úr þessari matarheinsun ókeypis, https://lifdutilfulls.is.old.webhstngapps.net/okeypis-kennslusimtal/webinar-register.php?

      Vona að þér gangi allt í haginn!

  5. Svala says:

    Ég er komin á þennan aldur sem hæg brennla er í gangi…hvað gett ég gert til að fá brennslu aftur hraða?

  6. Arney Ingólfsdóttir says:

    Ég hef tvisvar farið í skjaldkirtils test en allt kemur út í lagi!! Ég hef mjög hæga brennslu en er þó fyrir ca tveim mánuðum farin að borða morgunmat um leið og ég vakna, það er eitthvað sem ég hef ekki gert í mörg ár. Ég léttist ekki heldur þyngist og ef ég hreyfi mig ekki, þá gerist ekkert. Ég er búin að vera löt í ræktinni í 6 mánuði og þá kemur á mig 1 kíló á mánuði. Ég held að ég sé þessi týpa se4m verð að hreyfa mig til að þyngjast ekki…..en ég léttist ekki auðveldlega, sem er mjög pirrandi. En takk fyrir þennan pistil, hann er flottur 🙂

  7. Fríða says:

    ég er með latan skjaldkirtil og hæga brennslu. Hef ekki lyst á morgunmat, fyrr en oft um kl. 10 og þar sem mér hefur fundist best hjá mér að borða þegar ég finn fyrir svengd hef ég reynt að láta það stjórna. Ég hef verið að hlaupa og fleira til að hreyfa mig. Langar að léttast um ca. 5-10 kíló en virðist alveg stopp núna. Ég er orðin fimmtug og á því víst von á að allt hægist. Takk fyrir

    • Júlía, heilsumarkþjálfi says:

      Fríða gaman að heyra frá þér. Það er vissulega hægt að bæta bæði brennslu og starfsemi skjaldkirtils með lífstíllsþáttum, réttum bætiefnum og næringarefnum og mataræði – það hefur vinna mín með yfir hundruðum kvenna sýnt mér. Þú gætir byrjað að prófa okkar 5 daga matarhreinsun, hún er frábær byrjun og gæti komið þér vel af stað! Þú getur fengið smá ókeypis sýnishorn úr matarhreinsuninni hér, https://lifdutilfulls.is.old.webhstngapps.net/okeypis-kennslusimtal/webinar-register.php?
      heilsa og hamingja

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *