Hugaræfing sem hjálpar þér að brjótast úr gömlu fari
Uppáhalds Acai skál eiginmannsins
3rd June 2020
10 hlutir sem næra líkama og sál á erfiðum tímum
4th August 2020
Uppáhalds Acai skál eiginmannsins
3rd June 2020
10 hlutir sem næra líkama og sál á erfiðum tímum
4th August 2020
Show all

Hugaræfing sem hjálpar þér að brjótast úr gömlu fari

Þetta snýst allt um rétta hugarfarið! Hér kemur stutt en öflug hugaræfing  sem auðveldlega er hægt að innleiða inn í okkar daglega amstur án mikillar fyrirhafnar.

Síðustu helgi átti ég alveg æðislegan dag með konum sem eru hjá mér í Nýtt líf og Ný þú Eðalþjálfun í töfrandi umhverfi í Hveragerði.

Við byrjuðum daginn á því að konurnar áttuðu sig á gömlum sögum um líkama sinn sem voru að valda neikvæðum hugsunum og halda þeim í sama fari. Málið er að við eigum öll þá tilhneygingu að hugsa oftar neikvætt en jákvætt.

Þegar við tökum eftir neikvæðum hugsunum höfum við val um það að trúa þeim eða varpa þeim svolítið í kastljóstið og spurja okkur hvort þær séu raunverulega sannar eða ekki, og beðið þær síðan vinsamlegast um að hverfa á brott.

Hugsanir óspurðar leiða til þjáningar í lífinu segir Byron Katie ein af mínum mentorum.

Eitt af því sem ég deildi með dömunum um helgina var einmitt einföld 4 mín æfing til að brjótast úr gömlum hugsunum.

Þessi einfalda og öfluga æfing byggist á 4 spurningum og tækifærin til að nota hana eru óendanleg.

Dæmi um hugsanir sem hægt er að vinna úr væri; “ohh ég er svo feit…” eða “ég er pirruð útí manninn minn”, “ég er ekki að standa mig nógu vel” “ég kem mér ekki af stað til að byrja” “ég er ómöguleg, mér tekst þetta aldrei…”

Æfingin “the work” eftir Byron Katie

1. Er það satt? (já eða nei svar)

2. Getur þú vitað með vissu að þessi hugsun er sönn? (já eða nei svar)

3. Hvað gerist og hvernig bregst þú við þegar þú trúir þessari hugsun?

4. Hver eða hvað værir þú án þessarar hugsunar?

Svo snýrð þú dæmi þínu við með fjórum “turnarounds” eins og Byron Katie kallar. Þar tekur þú upprununarlegu hugsunina þína, snýrð henni við og spyrð þig hvort það sé ennþá  satt. Hér má sjá fulla æfingu á ensku ef þú skyldi vilja prenta æfinguna út. Til að fá dýpri skilning mæli ég eindregið með því að kynna þér vefsíðu Byron Katie og youtube þar sem má finna fjölda myndbanda.

Konurnar enduðu daginn úti á palli með kombucha, hráköku og nýja líkamsögu skrifaða sem var einstaklega töfrandi.

Ég læt hér fylgja nokkrar myndir frá deginum.

Hugaræfing á Nýtt líf Nýtt þú námskeiði

Þær lærðu allt um Acai-gerð í hádeginu með mér og systur minni Lilju Líf.

Lesa einnig
Áhrif áfalla á heilsuna okkar með Dr. Don Wood
5 ráð að skilvirkri markmiðasetningu
Einföld ráð til þess að hefja breyttann lífstíl 

Hugaræfing á Nýtt líf Nýtt þú námskeiði

Eyrún heilsumarkþjálfi Lifðu til fulls skreytti skálarnar með miklu ástúð frá Acai “toppings station” okkar. Þvílíkt girnó!

Landsins bestu Acai skálar. Troðfullar af kærleik, Feel Iceland Collagen dufti, Próteini og Orkugefandi Maca frá Vivo Life sem fæst í yogi.is.

Hugaræfing á Nýtt líf Nýtt þú námskeiði

Ekki slæmt að borða acai útá palli í Frost og Funa hveragerði.

Hugaræfing á Nýtt líf Nýtt þú námskeiði

Svo fengum við gestakennara til að sýna okkur æfingar sem hægt er að gera til að styðja við náttúrulega stinningu húðar – þvílíkt geggjaður dagur í alla staði.

Hugaræfing á Nýtt líf Nýtt þú námskeiði

Hugaræfing á Nýtt líf Nýtt þú námskeiði


Ég væri svo til í að heyra frá þér, hvaða neikvæðu hugsanir (ef einhverjar) hefuru í tengslum við þinn líkama? Og þegar þú hefur lokið því að svara þessum 4 spurningum, hvernig líður þér þá?

Svaraðu í spjallið að neðan og endilega deildu yfir á samfélagsmiðla! Þú finnur okkur á Facebook hér.

Heilsa og hamingja

Hreint mataræði þarf ekki að vera flókið! Langar þig að læra meira?

Skráðu þig á ókeypis net-fyrirlesturinn minn “3 leiðir til þess að losna við sykurþörfina og öðlast orku náttúrulega”.

Gegn skráningu færðu líka aðgang að spennandi uppskrift sem slær á sykurþörf og ásamt öðrum ráðum sem bætir mataræði þitt til muna!

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *